blank'/> blank'/> +++Aldrei að hafa gaman af lífinu+++: júní 2013

sunnudagur, júní 30, 2013

Meira um staðreyndir lífsins


Og svo var það maður sem ég hitti í bænum í gær og sá hafði lesið síðustu færslu og hafði það á orði að ég „væri svo ruglaður". Nei þarna var ég hjartanlega ósammála. Ruglaður maður gæti aldrei skrifað svona. Ruglaður maður myndi líka trúa þeirri heimsku að allt sem færi upp kæmi aftur niður. Ég man einu sinni eftir fífli sem ruglaði með þennan frasa og sagði að allt sem færi niður kæmi ekki upp aftur. Sá var aftur á móti ruglaður. Ég get alveg sagt það, að þegar ég vann á sláturhúsinu á Akureyri þá tók ég rollulöpp og henti henni niður um lúgu sem kindahausum var kastað niður í en gaurarnir sem sáu um að taka á móti þeim til að klippa hornin af á hæðinni fyrir neðan brjáluðust við þessa stríðni og grýttu löppinni upp aftur svoleiðis að hús þaut upp um lúguna og var nærri því lent í andliti manns sem stóð þar nærri. Jæja ég held að ég leggi mig í smá stund. />
------------------------------------------------------------------------------------ />
Binni bróðir bjó til lag í sama forriti og ég bjó til lagið Pornstars. Það er engum blöðum um að að fletta að þetta er ömurlegt forrit þar sem einungis er hægt að búa til ömurleg lög. En þið verðið bara að hlusta. Sitt sýnist hvurjum.
Binni bróðir - Gay Robot

laugardagur, júní 29, 2013

Geimrusl


Þegar maður fer út að labba með hundin í rigningunni fljóta hugsanirnar í gegn um kúpuna, innum annað og útum hitt ef svo má að orði komast. Maður hefur látið sér detta ýmislegt rugl í gegn um tíðina en 96% af þeim hugdettum hefur þó skolað burt og gleymst jafnóðum. Maður reynir að finna hjá sjálfum sér eitthvað um staðreyndir lífsins en flest þarf maður að finna sjálfur þó svo að maður þurfi ekki ævinlega að standa í því að finna upp hjólið, en margt af því sem manni var kennt í æsku er þvæla og ég hef lært að trúa ekki öllu sem mér er sagt sem hefur leitt til þess að ég tortryggi flesta hluti. Einu sini var mér t.d. sagt að allt sem færi upp myndi koma aftur niður. Það er algjör della. Þegar ég var krakki stóð einu sinni fyrir neðan ljósastaur og kastaði steini upp í loftið en það vildi ekki betur til en svo að steinnin lenti á ljósinu og braut sér gat inn í gegn um luktina og rúllaði innfyrir glerið. Þetta var staur sem hætt hafði verið að nota skömmu áður og ég veit til þess að staurinn hefur ekki verið lagfærður eftir þetta né heldur verið tekinn niður þannig steinninn hlýtur að vera þarna ennþá og þá afsannast því fyrrnefnd staðfhæfing. Já og hvað um allt geimruslið fyrir ofan gufuhvolfið? Það eru hlutir sem þeytt hefur verið upp í loftið en hafa aldrei skilað sér niður aftur. Miðlar. Ég hef farið til miðla í gegn um tíðina en allir hafa þeir bullað að einum undanskyldum sem fór rétt með allt. En tæplega var nokkuð að marka það sem þeir sögðu. Svona eitt og eitt sem þeir hafa hitt rétt á en ég veit það samt ekki. En ég hef þó gefist upp á að púkka upp á þetta annars misgáfulega lið. Ég veit svosem ekki heldur hvað ég er að fara með þessum skrifum mínum núna. Já og myndin við þessa færslu, hún tengist þessu ekki neitt. />
------------------------------------------------------------------------------------ />
Já og þetta lag sem ég bjó til í einhverju forriti fyrir örugglega meira en tíu árum síðan var eitthvert tjasl sem maður gat raðað saman við hitt og sett saman við þetta. Voða sniðugt allt saman. Út koman var þetta og er ekki betri en svo að ég myndi helst ímynda mér að hægt væri að nota það í atriði í klámmynd. Það var svona það sem mér datt einna helst í hug.
Spritti - Pornstars

laugardagur, júní 22, 2013

ta ta ta ta ta taaaaaa

Voðalega lítið að gerast hjá mér um þessar mundir. Dagarnir líða og það kom loksins sól og ég hef ekkert farið að veiða. Maður er búinn að stunda laxveiðar í yfir tuttugu ár og ekki ennþá búinn að ná laxinum. Það kemur. En fátíðindi eru góð tíðindi. A.m.k. gerist ekkert slæmt á meðan. Maður kemur kannski heim eftir nokkura klukkustunda þvæling og spyr hvort eitthvað sé að frétta?(Sú spurning sameinar, hefur einhver hringt, var eitthvað í póstkassanum, hefur einhver komið, er eitthvað í sjónvarpinu hefur nokkuð orðið bilað eða eyðilagst í húsinu o.fl.)og svo andar maður léttar ef svarið er nei, fegin því að það var ekki eitthvað helvítis: Já það hringdi hérna maður frá bla bla bla og það þarf að fara með þennan pappír þangað og jarí jarí en það kostar helling að endurnýja það og svo sprakk heitavatnslögn. Svona tekur maður einn dag í einu áfallalaust. />
------------------------------------------------------------------------------------ />
En jább helgin er löngu byrjuð og því um að gera að dilla sér við smá samba.
Ginza Samba

mánudagur, júní 10, 2013

Góðan mánudag

Ég byrjaði á að fara með eldri soninn á leiklistarnámskeiðið, fyrsta tíma í dag. Hann langar að verða leikari á komandi fullorðinsárum og því geri ég það sem í mínu valdi stendur til að leggja grunn að því. Flott ef maður sjálfur hefði haft færi á að gera slíkt hið sama í æsku en það var víst bara helvítis fótboltinn sem aðallega var í boði í þá daga í minni sveit en ég nennti auðvitað ekki að eyða litlum frítíma mínum í að hlaupa inn á snjáðan túnblett til þess að hreyfa mig eitthvað. Maður var nú reyndar í körfuboltanum þegar hann komst í tísku með tilkomu NBA mynda sem menn söfnuðu vilt og galið eins og enginn væri morgundagurinn. Ágætis sport fannst mér. Þó fannst mér meira varið í að eyða frímínútunum í að rölta yfir í tónlistarskólann og slá á gítarstrengi á þeim tíma sem ég var að læra á slíkt. Maður tók þó þátt í skólaleikritunum á árshátíðum og litlujólum, en þó voru það nú helst einhverjir uppáhalds og vel útvaldir sem fengu flottu hlutverkin. Drengnum mínum leiðist fótboltinn eins og undirritaður og er ég því ekkert að ýta honum í það neitt frekar en hann vill. Nær að hvetja hann til að gera það sem hann langar. En nú er ég að hugsa um að fara á klósettið. />
------------------------------------------------------------------------------------ />
En áður en ég fer á klósettið þá verð ég að segja að mér datt allt í einu í hug þegar ég var í verslun um daginn að athuga hvort Sana Sol væri fáanlegt. Gerði nú ekki ráð fyrir því þar sem ég hef ekki séð þann varning síðan ég man ekki hvenær. En maður var látinn taka þetta inn sem barn ásamt lýsinu til þess að maður yrði nú ekki aumingi. En Sana Sol fæst víst ekki lengur enda er fólkið í landinu að verða aumingjar meira og minna eða bara heimsbyggðin öll. En það er víst til lag um Sana Sol. Þar hafiði það.
Sana Sol Sangen

þriðjudagur, júní 04, 2013

Hvað er að?

Ég fór að venju í búðina í gær til að kaupa í matinn og þegar ég geri það þá fer ég yfirleitt í Bónus sem er næsta verslun við húsið mitt. Nema hvað að þegar kemur að röðinni við kassann þá er búið að stilla upp þessum dagblöðum, Mogganum og Dv, þannig að forsíðurnar gapa framan í mann. Ósljálfrátt, ef röðin er löng og það er kannski einhver gömlu kelling á undan mér að greiða stórinkaup og borgar allt með klinki að þá tekur maður blað og flettir og þá er það forsíðufréttin einna helst, vegna þess að hún öskrar á mann að lesa sig. En hvað er verið að gera með þessar Krossa-erjur í fjölmiðlum? Kemur þetta nokkrum manni við sem ekki er í þessum söfnuði? Er fólk virkilega að láta mata sig með svona ömurlegu fjölskyldrama? Ég þekki Gunnar eða dóttur hans ekki neitt. Hef reyndar lent í dálitlu spjalli við Gunnar fyrir löngu síðan með þriðja aðila sem þekkti hann þar sem við hittum hann á kaffihúsi. Virkaði á mig sem ljúfur og indæll náungi og allt í lagi með það. En það dugar ekki til þess að ég hafi áhuga á hans fjölskylduerjum, tengdu hans söfnuði eða fyrirtæki eða hvað má kalla það. En fók er víst þarna úti og leyfir blöðunum að plata sig með því að gera þetta að æsifréttum sem verður til þess að fólk kaupir blaðið. Vissulega bissnes í því og sniðugt og allt það. En alltaf þokast ég nær og nær þeirri sannfæringu að almenningur sé fífl. Ljótt að segja það en það finnst mér nú oft á tíðum. Þetta er náttúrulega bara bilun/>
------------------------------------------------------------------------------------ />


Þrjóskan í mér er engri lík. Ég gróf upp þessi tvö lög eftir nokkuð langt ströggl en uppskar léleg gæði. Fann þetta hvergi öðruvísi en einhverjir hafa sumsé haft fyrir því taka þetta upp með mæk á meðan myndirnar voru að klárast. Gæðin eru því eins og ég segi léleg og fljótlega má heyra eitthvert röfl úr leikurum myndanna. En engu að síður góð þessi endalög úr báðum þessum kvikmyndum sem heilluðu undirritaðan.
Gerard McMahon - Let the Lightshine In The Morning
Hawaiian Sands

mánudagur, júní 03, 2013

Jahaaaaa eitthvað

/>
Ég þvældist niðrí bæ í dag og kíkti á ekki neitt. Hékk aðeins í bílaröð á mínum venjulega grandarúnti sem ég fer endrum og eins. Þetta var nú orðin svo mikil þvæla af bílum þarna og allir voru orðnir löngu brjálaðir og þá gaf því enginn séns. Þetta varð til þess að í var orðinn brjálaður líka og var farinn að fara framúr röðinni á móti umferð þegar mótakreinin var auð og keyrandi svo yfir gangstéttir eins og fáráður en allt var þetta gert til þess að losna úr öngþveitinu niðrá granda. Allavega þá skal ég aldrei fara þennan rúnt framar á stórhátíðardegi sem tengist miðbænum. Það er nú ljóta ruglið. ------------------------------------------------------------------------------------ />
/>
Meira úr Breaking Bad. Tónlistin úr þessum þáttum er sjúklega góð, það verður að segjast. />

The Be Good Tanyas - Waiting Around to Die
/>

Holy Fuck - They're Going To Take My Thumbs
/>
Hér má svo lesa um The Be Good Tanyas og Holy Fuck