blank'/> blank'/> +++Aldrei að hafa gaman af lífinu+++

laugardagur, nóvember 22, 2008

носителей языка как родного



Ég fór og var við mótmæin á Austurvelli í dag og stóð þar á orginu ásamt fleirum. Ég mætti svo á þetta löggustöðvar mambó á eftir en asnaðist til að vera farinn áður en atið hófst fyrir alvöru(Helvítis vesen). Slepp þó við það að vera hálfblindur með augun svíðandi eftir Gasman Superhero. Annars hef ég tekið því rólega frameftir kvöldi.

Annars dreymdi mig í nótt að ég væri á filleríi að spila plötur heima í stofu hjá Jóni skipsfélaga mínum. Þarna var nú eitthvað fleira fólk sem ég þekkti nú reyndar ekki en alltaf bættust við fleiri og fleiri partýgestir sem ég þekkti. Meðal annars voru það allir sem sé heimsótti fyrir norðan um daginn. Voða gaman. Ásgrímur fór mikinn og fór með gamanvísur. Svo leystist draumurinn upp í jarðaför sem mig hefur oft dreymt áður. Í þessari jarðaför sem mig dreymir er ég yfirleitt heltekinn af sorg, grátandi eða alveg agalega miðurmín. Í umræddum draumi var ég hágrátandi.

Set svo hérna lög með nokkrum flytjendum sem ég er að hlusta mikið á þessa dagana.
Nick Cave and the Bad Seeds - Are You The One That I've Been Waiting For

Antony and the Johnsons - Hope There's Someone

Carl Bellew - Am I That Easy to Forget

Engin ummæli: