blank'/> blank'/> +++Aldrei að hafa gaman af lífinu+++

sunnudagur, janúar 26, 2003

Áðan var ég nærri því dáinn. Málið er það að ég smellti mér á síðu nokkra er ber nafnið apotek.tk og hló ég svo hressilega sökum lestursins að ég dó næstum því. Ja.. eða ég dó alveg. En Brynjar bróðir sá hvað ég hló agalega og sá hvert stefndi. Svo loks datt ég niður dauður. Brynjar dó ekki ráðalaus heldur tók hann framlengingarsnúru, tróð henni í samband og gaf mér stuð í nokkur skipti. Ég reys upp frá dauðum og er allur að koma til.
Nú ég skoðaði bílin sem ég kem til með aað kaupa mér ig még líst bara helvíti vel á gripinn. Þetta er svona lítil gömul, rauð mazta. Svo er maður búinn að kaupa geislaspilara í dótið, maður svo að þetta verður almennilegt. Það verður munur að komast í bíl en ekki þetta helvítis strætó brölt endalaust. Jú jú það er sossum ágætt að ferðast með vagninum svona í dálítinn tíma 1-2 mánuði eða eitthvað svoleiðis. En ekki meira en árið það er alveg vonlaust. Ég þekki það.

Engin ummæli: