MÚSSATASSI
Ýmisleg voru uppátækin þegar maður var krakki, og ýmislegt datt manni í hug að segja þegar maður var krakki. En svo komu ný orð sem maður bjó til eins og orðið
pintill, sem ég reyndar komst seinna að að væri getnaðarlimur hvals.
Svo var Gerða frænka að segja mér frá því að ég hafi einhverntímann komið til sín hlaupandi í öngum mínum og sagt að kallinn væri
mússatassi. Enginn veit hvaða kall ég var að tala um né heldur hvað
mússatassi er. Ég fór í orðabókina og fann ekkert þar. Fór á netið, bæði goggle og altavista en fann ekkert þar. Svo fór ég að prufa að nota þetta undir daglegum kringumstæðum, t.d. "Helvítis
mússatassinn" eða "Ætti ég að skipta um dekk með
mússatassi" eða "kannski að maður fái sér
mússatassi í kvöld". Allir hrista bara hausinn þegar ég nefni
mússatassi.
Hafi þið einhverja hugmynd hvað þetta gæti verið ?