Tómt rugl. Mig dreymdi í nótt að ég væri keyrandi á bíl einhverstað á leiðinni á norðurlandið. Var Megas með gítarinn í aftursætinu og söng lagið Every Grain Of Sand. Síðan komum skruppum við í kaffisopa á einhverju eyðibýli í Öxnadal. Var heimilisfólk draugar sem höfðu búið þar í gamladaga og báðu Megas að spila fyrir sig. Reyndar var KK á leiðinni á bæinn líka og biðum við í kaffi þangað til að KK mætti. Spiluðu þeir Komdu Og Skoðaðu Í Kistuna Mína. Að söngnum loknum fórum við Megas á bílnum okkar áfram heim á Norðurlandið. Hann fór svo út á Akureyri þar sem hann ætlaði að halda tónleika en ég hélt áfram keyrandi í Reykjadalinn.
![](http://3.bp.blogspot.com/_u31_bdT7gh4/SJHz-T8mD9I/AAAAAAAAAHw/pNlb4bcApsw/s320/1509.jpg)
Jæja. Þá er maður búinn að skreppa á sjóinn svona í sumarfríinu. Fór á Ásbjörninn í fjóra daga. Ég hef vanalega gert þetta síðustu ár þegar Vísisbátarnir fara í sumarstopp, að skreppa þá að gamni mínu á eitthvað annað skip. Alveg óþarfi að húka í fríi í fimm vikur í einu. Annars heyrði ég ljóta sögu af pólverja nokkrum sem á það á það til að æða inn í klefann hjá mönnum sem eru á frívakt og ráðast á menn sofandi og lemja í klessu ef honum líkar eitthvað illa við þá. Ég veit svei mér ekki hvað ég myndi gera ef ráðist yrði svona á mig berskjaldaðan í svefnró. Held að það myndi fjúka svo gasalega í mig að ég myndi ganga af viðkomandi einstaklingi dauðum þegar uppi væri staðið. Maður verður nú nógu illur við tilhugsunina eina og sér.
![](https://blogger.googleusercontent.com/img/b/R29vZ2xl/AVvXsEi88IV_hQQ2TrB4hxvwkTdyOwLSInRACz2wAEKxdQDLgilkW3yY-H2HL1QK4ODQX3e2qRbEKSrBrMVKIDAi_i5oW3iu-rOe-nePhyaL_Fo5-2X_jxgKIthNzLyzyH9vO7zd-e7EZg/s200/thumbnail.jpg)
![](https://blogger.googleusercontent.com/img/b/R29vZ2xl/AVvXsEj1SLuWXFtAxeTANU7Q3rbJrvC4NRgccRgXb2SfZ6mYgVj6gZwtwFJe0SVE5Qycc-DXMmVKSkmWyy_nXlBicnnm2lBTtLgsd0WNxkjANcTt5q3_OPP7w0yrgnveD7WKS9DtJP8iZQ/s200/Newlogo_fast.jpg)