blank'/> blank'/> +++Aldrei að hafa gaman af lífinu+++

þriðjudagur, janúar 31, 2006

Brútus

Búinn að posta nýrri myndasögu með Brútusi. Þarf samt sennilega að skipta um hýsingu því að þessar sögur eru alltaf að hrynja út og inn í tíma og ótíma.
Helvítis drasl.

fimmtudagur, janúar 19, 2006

Klámblað og Brútus

Menn eru orðnir varir um sig síðan að það fréttist að ég hafði fundið klámblaðið undir dínuni í kojuni minni um borð. Einn sagðist eiga það og byrjaði að rukka mig um nýtt blað þegar það hvarf úr klefanum frá mér. Bláa spólan mín er líka horfin. Spurning hvað hefur orðið um hana, hmmmm.......

Og hér höfum við svo Brútus vin okkar með smá Bubba gríni. (Ýta svo á refresh ef sagan kemur ekki upp)

mánudagur, janúar 16, 2006

Uhhh....Shit

Það kom brælukast um daginn. Varð ég þar fyrir því óhappi að þegar ég var að henda fiskinum í kör niðri í lest þá ultu oná mig tvö kör full af Stórþorski(330 kg +330 gk = 660 kg ) Slapp furðuvel undan þessu með aðeins skrámur og smábrákaðar lappir.
Er í fríi einn túr núna.

þriðjudagur, janúar 10, 2006

Slæmt

Mér er sagt að maður sé það sem maður borðar. Ég var að éta Lúðu. Er ég þá Lúði ?

miðvikudagur, janúar 04, 2006

Prump

Það er margt sem maður þolir ekki eins og fyrr segir. Eitt þoli ég td ekki en það er þegar einhver prumpar í minni návist. Flestir reyna að leyna fretinu en oftast fá þeir það í bakið með fýluni sem kemur upp um þá. En samt var nú einn sem var ekkert að leyna þessu og lét allt vaða. Þetta var þegar ég var að vinna hjá Ísvá sem var tryggingamiðlun en einn tryggingasalinn lét þrumuna ganga og labbaði svo fram á meðan ég og einn annar skrifstofukall héldum fyrir vit okkar til að drepast ekki úr sinnepsgas eitrun.
Ég á kannski ekki að vera að segja neitt. Ég er ekkert saklaus sjálfur. Ég prumpaði einu sinni þegar ég var að labba út úr liftu á annari hæð en liftan var á leiðinni með fullt af fólki á þá sjöundu. Svo fretaði ég í kringum fullt af fólki í Hagkaup um daginn. Stakk svo af þegar pestin gerði vart við sig. og allir héldu um nef sér og grettu sig. En þetta er þá sennilega eitt af því sem er í mínu tvöfalda siðgæði, að ég geri það sem ég vil ekki að aðrir geri. En eins og einhver sagði þá finnst manni nú eigin prumpulikt alltaf ágæt.

En allavega þá postaði ég Brútusi hér og set einnig línk á Bibba hér og Þarna til hliðar.
Góðar stundir.

þriðjudagur, janúar 03, 2006

Það sem ég þoli ekki

Já, það sem ég þoli ekki er eftirfarandi:

* Þegar einhver potar eða togar í peysuna mína til að ná athygli minni.
* Enska boltann.
* Leonci.
* Þegar einhver er að trufla mig meðan ég tala í símann.
* Drasl í bílnum mínum.
* Konu sem rekur ónefndan skemmtistað á Akureyri.
* Tölvuvírusa.
* læti.
* Óþægar kýr.
* Hund nágrannans.
* Stefið í Speglinum(Þáttur á rás 1 eða2).
* Þegar ég er að posta bloggi og netið hrynur u.þ.b. 1 sek. áður.
* Kólnað kaffi.
* Þjófa
* Popup
* Að detta á svelli.
* Klámmyndir með sænskum texta.

sunnudagur, janúar 01, 2006

laugardagur, desember 31, 2005

Og þá er komin síðasti dagur þessa árs. Ég vil þá bara nota tækifærið og þakka öllum fyrir allt gamalt og gott á liðnum árum. Svo að gefnu tilefni vil ég minna á Brútus. Það er komin ný saga.
Takk takk.

þriðjudagur, desember 27, 2005

Helvida

Image hosted by Photobucket.com

Ég er búinn að vera veikur. Angoda eyrnabólga sem er að gera mig sköllóttann. Ekki nóg með það heldur er maður með hita og óráð.

En Brútus bætir og kætir. Hér er ný saga.

sunnudagur, desember 25, 2005

Draumvísa

Snemma á árunum milli 1870 - 1880 dreyndi konu einni að til hennar kæmi maður að mæla fram vísu þessa um Vindbelg* í Mývatnssveit:

Ó þú Vindbelgjar einmanna hnjúkur,
sem allsnakinn stendur á fjallana grund,
samt faldur þinn skauta fyrnist ei heldur,
Þó fjólurnar blikni og grösin í lund.
Allt er í heiminum umbreyting,
Ástin og geðið í hjartanu þjóða,
engum því veldur ásteyting,
afarhátt fjallið sem skáldin um ljóða.

Vísuna mundi hún vel þegar hún vaknaði.
Aldrei hafði kona þessi komið í Mývatnssveit, aðeins einu sinni séð Vindbelgjarhnjúk, á ferð yfir Vallnafjall.

*Fyrir þá sem kunna ekkert í landafræði þá er Vindbelgur fjall í Mývatnssveit.
VÖMB

Belgurinn á mér er stappfullur af hamborgarhygg, brúnuðumkartöflum, gulum baunum, ís, jólaöli, sveppum, salati, makkintossi, laufabrauði, kaffi tertum og öðru góðgæti.
Ég get mig hvergi hreyft.

Svo er kominn nýr Brútus hérna.

laugardagur, desember 24, 2005

Jólakeðja

Image hosted by Photobucket.com

Ég vil bara óska öllum vinum, ættingjum og öllum þeim sem nenna að koma á þessa síðu að lesa þessi ósköp hérna, gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári
vuvivu

sunnudagur, desember 11, 2005

Neihh......Fann ég ekki þetta fína klámblað hérna undir dínuni í kojuni minni. Hver skyldi hafa gleymt því þar ?

Þesa dagana er ég að láta mig dreyma um íbúð á Spáni. Fínt að geta farið þangað suðrettir í sólina þegar tíðin er hvað köldust og dimmust. Ekki það að mér líði illa á þeim tíma. Nei þvert á móti er skammdegið minn uppáhalds árstími. Myrkrið.
Samt væri það hressandi að geta baðað sig í sólinni þarna syðra.

sunnudagur, desember 04, 2005

Brútus

Ég tók til við að gera myndasög um Brútus Hinn Óviðjafnanlega. Þetta er örugglega fyrsta sagan í ár eða eitthvað.
Allavega hér kemur Brútus.(Ýta svo á refresh ef sagan kemur ekki strax)
Sniðúgt

Image hosted by Photobucket.com

Gerði Þetta piparkökuhús í gær. Keypti það í Nettó og setti saman og skreytti svo svona eins og þið sjáið.
Voða gaman alltsaman

föstudagur, desember 02, 2005

KAFFÚS

Fór á Kaffi París með ximon í dag. Þar var draugagangur.


Stóribróðir

Það er strákur sem ég þekki sem stamar. Það er vegna þess að þegar hann var lítill þá var stóribróðir hans alltaf að kitla hann. En hann kitlaði hann svoleiðis að drengurinn varð helblár í framan.
Kitlum aldrei börn.

fimmtudagur, desember 01, 2005

GníaGnía GniGniGni

Image hosted by Photobucket.com

Jább, það eru svo sannarlega ljúfir tónarnir frá þeim sveitungum mínum, Stebba í Hólkoti og Ásgeiri í Hólabrekku á þessum frábæra disk sem þeir félagar voru að gefa út. En hún Íris mín gaf mér diskinn í dag. Er ég búinn að sitja og hlusta og hef vel við unað. Harmonikutónar þeirra félaga er hrein snilld.
Takk fyrir mig.

miðvikudagur, nóvember 30, 2005

föstudagur, nóvember 25, 2005

Long tæm nó sí

Já þetta er svona. Ég hringdi í Finn, vin minn úr Reykjadal og spjölluðum við lengi. Voða gott að heyra í gömlum félaga sem maður hefur ekki heyrt eða séð í fleiri ár. Ennu ég er sum sé hættur á trilluni í bili og kominn á gamla skipið aftur en ætla svo að reyna að komast í frí eftir næsta túr. Svo þar eftir mun svo verða róið stíft fram að jólum. Ég var nefnilega að fá þá gleðifétt að það verður ekkert róið milli jóla og nýárs.
Vííííííííííííííí..............