blank'/> blank'/> +++Aldrei að hafa gaman af lífinu+++

fimmtudagur, júlí 03, 2008

ÚÒ»½ì±ùµº»ªÈËÁªÒê»áÀíÊ»á³ÉÔ±ºòÑ


Hrikalegt. Þegar ég var að sofna í nótt, dreymdi mig að ég væri einhverstaðar í 101num á bílnum mínum til að erinda eitthvað. Lagði ég bílnum mínum í stæði og ætlaði að ganga burt þegar ég sá einhvern mann læðupokast í grennd við bílinn. Ég fór að athuga með þennan sperðil og þegar ég sá hann fela sig handan við húshorn sá ég að hann var vopnaður borvél og ætlaði að brjótast inn í bílinn minn en þarna var ég búinn að koma upp um manninn en þá tók viðkomandi á árs með borvélina á lofti og ætlaði að ganga frá mér með helvítis borvélinni og hljóp á eftir mér með borvélina í gangi. Þetta er í fyrsta sinn sem ég hrópa um leið og ég vakna. En ég brjálaðist úr hlátri um leið og ég áttaði mig. Djöfull var þetta vitlaust.

Alveg er það nú makalaust af stjórnvöldum að reka úr landi Paul Ramses sem sótt hefur um hæli hérlendis. Það er ekki eins og landið fari á hausinn við að hafa hann hérna. Er ekki Ísland það ríkt land að það geti gert eitthvað fyrir þetta fólk. Er kerfið virkilega svona fokked up að það verði að reka manninn af landibrott frá konu og barni. Það að veita þessu fólki ekki skjól og leifa því ekki að koma undir sig fótunum hér á landi vegna aðstæðna sem þau koma úr í heimalandi sínu undirstrika það rækilega hverslags hræsnarar það eru sem stjórna þessu systemi hérna og eru landi og þjóð öllum til háborinar skammar og bölvunar.

En hvað sem öllu rugli líður þá er Kristín Gk komin í sumarstopp og ég þar með kominn í sumarfrí og er stefnan tekin á vikuafslöppun í sumarbústað með tilheyrandi heitapottslegu og áti. svo verður brunað á norðurlandið og chillað þar í nokkra daga. Svo bara chillað meira í reykjavík.

Núna held ég svo að ég fari að elda mér einhvern andskotann. Humar eða Naut eða eitthvað.

Engin ummæli: