blank'/> blank'/> +++Aldrei að hafa gaman af lífinu+++

mánudagur, maí 24, 2010

Langt stím

Þá er best að rífa dálítið kjaft núna. Ég er kominn á sjó og verð þar næstu daga en er eftir þessa fáeinu daga komin í gott frí. Það er jákvætt. Það sem er náttúrulega neikvætt er að við erum að sigla úr net og símasambandi eitthvað lengst suðvestur í djúpasta helvítis rassgat til að ná í meira af andskotans Keilu og Löngu. Verðlaust rusl eða verri verðleysa en Ýsa og Þorskur. Jæja en ég ætla ekkert að væla. Það er langt og gott leyfi framundan hjá mér. Ég er að hugsa um að vita hvernig kokkurinn hefur það og vita hvort ég geti ekki fengið mér í nös hjá honum. Íslenst neftóbak að sjálfsögðu. Hann er allavega búinn að setja rúgbrauð og síld á borðið hérna. Rúgbrauð síld og svo í nefið.

sunnudagur, maí 16, 2010

No Alcohol

Furðulegt, það eru liðin ellefu ár síðan ég játaði mig sigraðan í stríðinu við Bakkus konung og hef ég ekki bragðað á brennivíni eða notað önnur hugbreytandi efni síðan. Samt ótrúlega stutt síðan og merkilegt að maður skuli ekki fyrir löngu vera dottinn í það aftur miðað við allt sem búið er að ganga á á þessum tíma. Mótlæti herðir mann sagði mér vitur maður. Held að það sé rétt. Ég hef líka haft í nógu að snúast en að vera drekkandi brennivín alla daga. Annars er sama tuggan búin að vera í gangi lengi. Líf mitt kallar á breytingar en kallar samt ekki á brennivín eða önnur efni sem bjóðauppá boðefnasvindl
---------------------------
Mp3 að þessu zinni er nokkuð gott en Death Cab For Cutie er amrísk hljómsveit sem var stofnuð einhvern tímann í helvítinu í Bandaríkjunum. Held að það hafi verið nítíu og eitthvað. Ef þú vilt vita hvenær þá getur google bara verið vinur þinn. Sumt af þessum lögum þeirra eru nú alveg ágæt en mörg lögin eru nú líka hreinasta eitur í eyrun. Þið verðið bara að hlusta og sjá svo til.


Death Cab For Cutie - Summer Skin


Death Cab For Cutie - California


Death Cab For Cutie - Someday You Will Be Loved

föstudagur, maí 14, 2010

Rassgatus typpalingus

Það er nú ekkert svakalegt afrek að skrifa. Maður sér hvað kemur út úr þessu. Allavega þá er ég búinn að senda eitt stykki sögu í glæpasmásögukeppni Mannlífs. Það er sumsé Gaddakylfan sem barist verður um. Ég var of seinn í fyrra. En það var í fyrra og bíttar engu lengur. Sjáum hvað setur með litla fléttu af morði, smygli, stakeout, brúðkaupi og grenjandi ungling. Það er nú það.

Kareem Abdul-Jabbar spilaði með Milwaukee Bucks(69-74) og með L.A. Lakers(75-88). Hann var mesti og besti körfuboltaleikmaður ever. Ég fékk þennan bol loksins heim sem ég hafði pantað af ebay fyrir mánuðum og mannsaldri síðan. Ég reyndi að panta mér svona eintak fyrir ári en það klikkaði eitthvað hjá mér þetta ebay sístem. En nú er bolur sumarsins s.s. komin í mínar hendur. Æði.
------------------
Ekkert mp3 verið nýlega enda ekkert verið sérlega afkastamikill síðustu mánuði á þessari síðu. Það kemur til af miklum geðsveiflum, þunglyndi, tourette og öðrum andsetningum og umskiptingum. Það stendur til bóta. Bóta, heyriði ekkert. Smá techno remix hérna handa ykkur núna ormarnir ykkar.

Base Attack - Techno rocker(rob mayth remix edit

þriðjudagur, maí 11, 2010

Lesið bækur

Jæjahhh, ég er kominn í frí. gott mál. Er búinn að lesa Horfðu á mig, eftri Yrsu Sigurðardóttur. Skemmtileg lesning þar. Ég las líka Ösku. Ekki eins skemmtilegt. Er að spá í að lesa Þriðja táknið. Ég er farinn að veiða núna. Bæ.

þriðjudagur, apríl 20, 2010

Hvern andskotansdjöfulinn

Ég keypti sódastrímtæki á dögunum. Jákvætt. Ég fer á sjóinn á morgun. Neikvætt. Mig langar ekkert þangað núna. Hef ekkert að segja. Er kominn með fríiðbúiðþunglyndi. Þunglyndi pungbindi. vonandi fiskast eitthvað. Er ekki bezt að fá sér eitthvað að éta núna. Núðlur, nei. Rugfras, nei. Hita upp pottrétt frá í gær, nei. Ert ekkert til hérna ? Jú, sódastrím og Maarud. Veiiii......... Ég er farinn í búðina að versla eitthvað að éta. Ísskápurinn er tómur. Trallala
--------------------
Mobiles - Drowing In Berlin

laugardagur, apríl 17, 2010

já já já já já já já já já

Maður verður að vera jákvæður og brosa. Jákvæmur og brosna eins og útlendingur nokkur sagði. Það er komið vor og maðkurinn er vaknaður heyrði ég víst. hann bíður bara eftir að láta tína sig upp og láta þræða sig upp á öngul og verða svo hent fyrir lax og silung í sumar. Nenni nú samt ekki að hlaupa út í gluggaveðrið aleita að maðki. Nenni bara engu almennt. Jæja ég ætla að skíta og byrja svo á að lesa aðra glæpasögu. ég þyrfti eiginlega að hafa mig í að skrifa aðra í viðbót við hina sem ég skrifaði.

fimmtudagur, apríl 15, 2010

Helvítis bloggleti

Ég er búinn að hafa ekkert fyrir stafni þegar kemur að þessari blessuðu bloggsíðu. Maður er búinn að húka á sjónum og jú jú Þá þenar maður eithvað og svo kemur maður heim um morguninn og rokinn aftur á sjó um kvöldið. Ég er reyndar að fara í frí í nokkra daga. En jæja, þessi skýrslufjandi er kominn út og er hún eins og ég bjóst við upp full af lándráðum og svínaríi. Ætlar enginn að fara í að smíða gálga við Austurvöll hvernig er það ?

fimmtudagur, apríl 01, 2010

Gott að svolgra

Fór í Kost um daginn. Skemmtileg verzlun sem Kostur er. Ég rakst á bretti með Kool-Aid. Þetta er svona amerískur svali það sem litarefnið er bragðmeira en bragðiefnið í drykknum. Það er ágætt að sulla þessu í sig. Já, já ég er hrifinn af litarefnis svaladrykkjum. Þeir minna á góðærisárin þegar menn leyfðu sér að fara til bandaríkjanna og spreða þar dollurum á alla vængi. Helvítis rugl. Jæja en þið skulið prufa þetta þegar nýjasta sending kemur ég veit ekki hvenær. Þið verðið að fylgjast bara með. Hægðirnar verða grænar af þessu.
-------------------------------
Já maður verður að standu undir væntingum þeirra sem finnst gaman að flækjast á hin og þessi mp3blogg. Jæja ég hef ekkert frekar að segja. Páskarnir eru bara að koma og ég er að komast í stuð til að rífa kjaft.

Flash Cadillac & The Continental Kids - At The Hop

mánudagur, mars 29, 2010

Óstuð

Ég hef aldrei verið í jafnmiklu bloggóstuði og núna. Bara gjörsamlega tómur þessa dagana. Það er nú það.

föstudagur, mars 26, 2010

Fjör

Fékk þessa mynd inn um póstlúguna í gær. Topps 81-82, Kareem Abdul Jabbar. Alltaf voða gaman að fá eitthvað annað en gluggapóst og reikninga senda heim.

sunnudagur, mars 21, 2010

Keðjuskítadreyfari

Þá var nú skroppið að Húsafelli þessa helgina og gert ekki rassgat þar nema að liggja í leti og éta. Svo er nú ekkert eins gaman í slíkum sveitaferðum að sjá gamla sígilda hluti á borð við Zetor, rússajeppa og keðjuskítadreifara sem þeytir skítnum út, út um síðuna. Buslugangur alltaf í þannig apparati þegar keðjurnar frussa drullunni út um allt tún. Skemmtileg sjón. En það var sumsé letihaugast í þessum sumarbústað og gert ekki neitt. Heitipotturinn var voðavoða góður. Svakalega gott að letihaugast þar. Reyndar var skroppið og fengið sér ferskt loft við Hraunfossa. Þeir eru fallegir. Seisei já. Ætti maður ekki að storma austurfyrir fjall og reyna að sjá eldgos.

----------------------------------

Þetta er diskur sem fylgdi Pampers bleiunum sem við keyptum fyrir soninn. Spilunin var eitur í eyrun allan diskinn og ef ekki væri fyrir þetta mp3 blogg hérna þá hefði diskurinn fengið að fjúka út um bílgluggann á leiðinni heim úr búðarferðinni. Nei ég segi það kannski ekki. Maður þarf allavega að vera búinn að fá sér vel í haus til að fíla þetta.


Angelique Kidjo - You Can Count On Me


Angelique Kidjo - Tobolo


Angelique - Didjo - Kelele


Angelique Kidjo - Aisha

föstudagur, mars 19, 2010

....og síðan hoppsa bomm.

Helvítis læti eru þetta. Akkúrat núna eru einhverjir að öskra hver á annan úti á götu. Karl og Kerling. Kerlingin öskrar þó mest og er í annarlegu ástandi. Ætli ég verði ekki að hringja á lögregluna. Jæja en helgin er framundan og eitthvað verður gert. Þó ekki meira en að gera ekkert, éta góðan mat og hanga í heitum potti. Það er alltaf bezt að gera ekki neitt finnst mér. Já ég er letidýr og ég skammast mín ekkert fyrir það. Þó ligg ég ekki í leti lengi í einu nema þó þegar ég tek mér langar letirispur. Ég verð nefnilega vitlaus af því að gera ekkert mjög lengi. Þá er ágætt að tékka á póstinum eða skreppa út í sjoppu og fá sé pylsu eða og velja sér mynd fyrir næstu letitörn. Bækur eru fínar líka en ef ég er í einstaklega miklu letikasti þá nenni ég ekki að lesa. Jæja nú hringi ég á lögregluna.

Leftover Salmon - Baby Hold On

þriðjudagur, mars 16, 2010

Það birtit til

Jééééé hvað það er pirrandi að horfa á sjónvarpið með bilaða fjarstýringu og þurfa að skipta um sjónvarpsstöð á gamla mátann. Þá sjaldan sem ég nenni að horfa á kassann. En jæja, núna er vorið á næsta leiti, maður finnur það. Ég held nú samt að það eigi eftir að koma eitt allsvakalegt snjóprump svona fænalí. Allavega þá verður kannski hægt að skreppa á veiðar eftir einn og hálfan mánuð. Ég skrapp nú reyndar upp að Reynisvatni í gær að gamni mínu og hitti þar menn sem veitt höfðu nokkra silunga. Þetta er bara svo mikið helvítis óæti svona um hávetur. Ég nennti ekki í geymsluna eftir veiðistönginni enda á þetta ekki við á þessum tíma ársins. En það er að birta til á þessu grjótskeri og það er gott lyf á tilvistarkreppuna.
----------------------------------------
Músíkmúsíkmúsíkmúsíkmúsíkmúsíkmúsíkmúsík
Death Cab For Cutie - Stable Song

mánudagur, mars 15, 2010

Fáránlegt

Það er nú bara vor í lofti og ég fór út að grilla hamborgara í kvöld. Ég veit það hljómar sick svona í miðjum mars en mér finnst gott að bregða út af vananum. Ég veit það ekki.
Er hægt að detta upp stiga ?

laugardagur, mars 13, 2010

Útsýni við að drulla

Helvíti magnað. Ég fór og keypti að éta í Nings í gærkvöldi. Þurfti ég svo skyndilega að skíta og fékk víáttubrjálæði á meðan ég hleypti honum út á klósettinu þarna á staðnum. Það er alveg svakalega gott útsýnið þarna af dollunni. Yfir Grafarvoginn og út yfir sundahöfn. Ég hef ekki fengið svona gott útsýni út um klósettglugga síðan ég bjó á Laugum forðum daga. Þar var útsýnið niður að Reykjadalsánni og yfir mest allt Laugaþorpið og svo bæjirnir suður með dalnum. Það er gaman að drulla og fylgjast með mannlífinu á meðan. Já ég á eftir að skíta á Nings aftur. Það er alveg pottþétt.


Girlicious - Stupid Shit


Christian - That Shit


Bloods & Crips - Gangsta Shit

mánudagur, mars 08, 2010

Achtung


Wolfenstein leikirnir. Ég er aðdáandi Wolfenstein leikjana. Heilmikill aðdáandi. Það er að vísu galli að þurfa alltaf að vera bandarískur hermaður að drepa þjóverja. Nema hvað að þegar ég er að spila Wolfenstein á netinu þá hef ég val og er ég að sjálfsögðu þýskur hermaður að freta á kanann. Músíkin er líka góð í þessum leikjum og einnig músíkin sem hefur verið gerð úr leikjunum. Jæja, alltaf í boltanum, er það ekki?

HormonE - Achtung Wolfenstein

föstudagur, mars 05, 2010

Goggogogogogogogogogg

Maður situr bara heima og lætur sér leiðast. Spurning hvað komandi helgi kemur til með að bjóða upp á. Kannski eldgos í Eyjafjallajökli. Sjálfsagt kominn tími á hann síðan 1821 - 1823 og þar á undan árið 1612. Illu er bezt af lokið. Það á einnig við um Kötlu. En ég nenni nú ekkert að þvarga um eldgos. Guð ræður þessu sjálfsagt öllu saman. Það þarf ekki annað en að það liggi eitthvað illa á kallinum og þá getur hann sett alveg heilmikil eldgos af stað. Við sjáum til. Mér finnst alltaf helvíti sniðugt að búið sé að breyta gamla vinnslusal mjólkurkexins í listasafn. Skárra þó heldur en að allt draslið standi autt. Þó stendur þessi neðstahæð skúlagötu 28 auð og eyðilögð í sögunni sem ég skrifaði og er þá íverustaður dópista og götuhyskis. Það verður gaman að vita hvort sögufjandinn kemur út á árinu. Það kemur í ljós bráðum. Rétt bráðum. Svo hef ég nú kvöldið fyrir mig í bardús. Ég nenni ekki út að gera eitthvað af því að ég er innipúki í hágæðum. Ég límdi saman módel um daginn eða þrjár plastflugvélar í einum rykk. En ég nenni bara ekki að horfa á sjónvarpið. Alltaf best að hafa slökkt á því. Já mér finnst það. Ég held nú samt að ég komi til með að nota kvöldið í að flokka körfuboltamyndir. Nóg að gera við að djöflast í því dóti.
---------------------------
Satyricon er assgoti skemmtilegt band. Fínt að blasta þeim við og við. Já, fínt að botna músíkina þeirra þegar maður er einn í bílnum. Það nennir hvort sem er enginn að hlusta á þetta með mér.

Satyricon - Hvite Krists Død

miðvikudagur, mars 03, 2010

Veskan mín

Keypti mér nýja veiðitösku í dag. Hin var of lítil og reyndar rifnaði hún í fyrrasumar. Hún var jú, of lítil. A.m.k. kem ég kaffibrúsa fyrir í þeirri nýju. Það var ekki hægt með gömlu töskuna. Þess vegna rifnaði hún. En það er fínt að græja sig dálítið upp fyrir sumarið. Jább veiða mikið í sumar þó að það sé kreppa. Allir eru í helvíti á meðan ég fer í lax. Heldurðu að það sé hemja.
------------------------

Leftover Salmon er gott band sem mér finnst ágætt að þeyta undir nálinni. Þetta er svona bluegrass, rock, country. Fínt til að svona, jahh, dilla tánum með þegar maður er að lesa eða prjóna eða raða frímerkjum eða bara flokka körfuboltamyndir eða bara að dunda eitthvað í rólegheitum. Hnýta flugur kannski.

Leftover Salmon - River's Rising


Leftover Salmon - Tangled Up In Blue


Leftover Salmon with Taj Mahal - lovin'in my baby's eyes

mánudagur, mars 01, 2010

Púff

Helgin var á allan hátt vel heppnuð. Komst því miður ekki á Nýlistasafnið Í Reykjavík sem opnaði í nýju í gömlu kexverksmiðjunni þar sem ég vann nú forðum daga. Það er dálítið spennandi að sjá hvernig þetta er orðið þarna núna. Ég kíki þangað bráðum og sé það þá. Annars hef ég ekkert að segja núna. Er alveg tómur.

laugardagur, febrúar 27, 2010

Kom honum ekki rassgat við

Einhverjir krakkaormar gerðu símaat í mig í gær. Ég hélt nú að sá tími væri liðinn með tilkomu númerabirta og aukinnar tækni til að rekja svoleiðis lagað. Jæja en mér fannst nú bara fyndið að fá smá at á mig og fíflaðist ég bara á móti. Maður var nú sjálfur mikið við þessa iðju sem krakki. Mest var þetta nú bara eitthvað saklaust bull en sum símaötin voru þó svívirðilegri en önnur. Einu sinni hringdi ég á skrifstofu héraðssambandsins og gólaði einhver bölf og formælingar inn á símsvarann þar. Skrifstofukallinn heyrði auðvitað skilaboðin síðar um daginn og fór með kasettuna til skólastjórans. Skólastjórinn þekkti röddina á segulbandinu og kallaði mig á teppið á diskóteki í skólanum um kvöldið og í hræðslukasti þverneitaði ég öllu og reif kjaft og þar með var því máli lokið nema þá að í tíma daginn eftir fór skólastjórinn að tala um það fyrir framan bekkinn hvað það væri ljótt að gera símaat og horfði á mig, níu eða tíuára krakkann á meðan hann fór með tölu sína vitandi að hann væri að noja mig í klessu. En svona á fullorðinsárum staldrar maður við. Hvern andskotann kom þetta skólastjóranum við? Nei, mér varð bara spurn rétt sí svona. Skrifstofumaðurinn hefði frekar átt að fara með þetta til foreldra minna svo að þau gætu tekið á málinu sjálf þá í stað þess að fara þeð þetta til skólastjórans sem í vanþroska sínum notaði þetta til að koma á mig höggi, einu sinni sem oftar.
-----------------------

Continental Four er svona negrahljómsveit. Veit lítið um þetta lið en mér þykir mjög gaman að hlusta á þá. Já þetta er svona svolítið í uppáhaldsflokk hjá mér. Mig minnir að ég hafi einhverntímann fyrir löngu séð plötu með þeim í kolaportinu einhverntímann en asnaðist auðvitað ekki til að kaupa hana. Það var náttúrulega bara aulaháttur.

Continental Four - How Can I Pretend


Continental Four - Heaven Must Have Sent You

Continental Four - Day For Day