blank'/> blank'/> +++Aldrei að hafa gaman af lífinu+++

föstudagur, febrúar 26, 2010

Furðulegt

Einhver hafði sett fullan Bónus innkaupapoka af mat fyrir utan dyrnar heima hjá mér. Í pokanum var Brauð, 2l. kók, 1kg.kartöflur, bananar, ostur, gúrka, flatkökur frá Gæðabakstri, 1l.léttmjólk, tómatar, smjör og súrmjólk. Spurning hver það var sem asnaði þessu á tröppurnar mínar og til hvers. Kannski var þetta einhver api sem var alveg út úr kú og keypti bara eitthvað út í búð til að skilja það eftir einhverstaðar og lét það fyrir framan dyrnar hjá mér. Það má vera að þetta hafi verið einhver góðhjartaður einstaklingur sem heldur að ég sé fátækur maður og viljað gefa mér mat enn ekki viljað að ég vissi hver hann væri, svona nokkurskonar tannálfur eða jólasveinn. Svo er það þriðja ástæðan og sú sem ég vil síst hugsa. Það er einhver sem hatar mig og setti eitur í allan þennan mat til að skilja hann eftir á tröppunum heima hjá mér svo að ég myndi éta eitraða matinn. Ég ætla að kýla á það og prufa að borða það sem var í pokanum. Ef ég dey, þá elskaði ég ykkur öll.
---------------------
Svo er það músík. Þetta eru lög sem ég hlusta stundum á. Ég nenni ekkert að röfla um það neitt frekar. Það er bara þannig og ekkert flókið við það, hmmm.....

John Frusciante - A Loop


The Cab - Risky Buisness

fimmtudagur, febrúar 25, 2010

Gúggúli glúggúli gú

Veðrið er bara orðið alveg znælduvitlaust hérna í Breiðholtinu. Það eru margir búnir að festa sig bara á bílaplaninu hérna fyrir framan gluggann minn. Já ég voga mér ekki út fyrir hússins dyr. Bezt að vera bara inni og hanga á facebokk eða eitthvað. Horfa á dvd kannski bara.

laugardagur, febrúar 20, 2010

Í sveit og í kaupstað

Draumarnir í nótt voru stuttir en fjölbreytilegir. Fyrst var ég heima í sveit að bardúsa í fjárhúsunum, gefa kindunum og laga til með pabba. Í næsta draumi vesenaðist ég við að skipta um traktorsdekk á gamla Fordson, svo fór ég eitthvað að yfirfara keðjurnar í skítadreyfaranum. En svo burt frá sveitinni og yfir í kaupstaðinn. Þá spásseraði ég á götum Ísafjarðar. Fór inn í hús og enginn var heima en ég mátti samt til með að reka nefið inn í ískáp hússins, egg, jógúrt, mjólk, lýsi, álegg, tómatsósa, sinnep, laukur og koppafeitissprauta. Hún var kámug. "Hmm.... best að fara með þetta yfir í bílskúrinn". Í bílskúrnum var bíll í uppgerð, Dodge Coronet '67. Ég lagði koppafeitissprautuna á borð sem var við hliðina á bílnum og ætlaði að labba út úr bílskúrnum sem stóð opinn en í vegi mér varð maðurinn sem átti heima í húsinu. Hann stóð spariklæddur með vatnsgreitt hárið og miðaði á mig 38kalíbera skammbyssu. "Ó, ég ætlaði bara að setja koppafeitissprautuna á sinn stað". Maðurinn lét byssuna síga en sagði ekkert. Ég hljóp út og kom mér í nærlyggjandi sjoppu. Næsti draumur var öllu rólegri og samanstóð af flugusveiðitöng og árhyl og góðu veðri. Meira var nú ekki um drauma þá nóttina.
------------------------------
Maggie Bell - No Mean City (Taggartlagið)

Faron Young - Hello Walls

miðvikudagur, febrúar 17, 2010

Helvítis sjónvarp

Leiðinda sjónvarpsefni í gangi núna, gamalt fólk að eðla sig. Hrollvekjandi og ég verð kynkaldur næstu vikurnar. Annars er sjónvarpið í litlu uppáhaldi hjá mér þessa dagana. Best er að hafa slökkt á þessu apparati og hlusta bara á útvarpið. Eða bara gera eitthvað annað en að láta fjölmiðla almennt trufla sig. Föndra kannski eða líma saman módel. Já ég ætla á morgun að kaupa mér nokkrar flugvélar til að líma saman.

laugardagur, febrúar 13, 2010

Draugar út um allt

Það var nú eitthvað að hreyfast hérna sem átti að vera kjurt. Það er spúkí að sjá eitthvað bregða fyrir og hverfa svo með því sama. Einhverja skugga eða flyksur. Jæja en það eru draugar út um allt hvert sem maður fer. Þeir eru bara mis margir á sumum stöðum og mis athyglissjúkir. Þetta er svosem enginn alvarlegur draugagangur hérna, málningin er ekkert að sjóða á veggjunum og vatnið sýður heldur ekkert í klósettinu og hausinn á heimilisfólkinu er heldur ekkert að snúast í hringi. Þetta er bara svona lágmarks draugagangur hérna í íbúðinni. Ætli það sé liðin tíð að fólk sé að djöflast með stórar talsatöðvar heima hjá sér að tala við annað fólk útí hinum stóra heimi. Þegar ég var krakki fór ég oft með pabba mínum í heimsókn til vinar hans sem átti einhvern risa talstöðvardjöful og var með hann í íbúðinni sinni, frammi á gangi við svefnherbergisdyrnar. Ég hugsa að Skype sé búið að leggja þennan heim af. Og þó, það getur vel verið að einhverjir séu að pukrast við þetta enn. Þetta er heimur útaf fyrir sig. Mér finnst bara eitthvað svo heillandi að sitja við eitthvað risa tæki og reyna að ná sambandi við einhvern randomerað útí heimi og hafa svo einhver radíóhljóð í bakgrunninn "vúúúúúúúúíííííúúúúúúúíííííúúúúú" og "díddídídíííííídídídídí". Það er flottara en Skype.
-------------------------
Og þá er það músík músík og aftur músík. Það má ekki gleyma henni. Það er merkilegt hvað sogast í þessa tölvu hérna. Hellingur sem maður man aldrei eftir að hafa einhverntímann fyrir löngu síðan halað niður eða rippað af einhverjum disk. Ég fann þetta þrenna hérna þegar ég var að taka til í tölvunni í gær.

Danzing - Not Of This World


Techno Beats And Body Beats - Amy Can Fly

Porcupine Tree - Towel

miðvikudagur, febrúar 10, 2010

Eins og heitar lummur

Þetta er gott morgunkorn sem minnir tvímælalaust á Trix. Það samanstendur af Miklum sykri,bragðefnum og litarefni. Ég keypti það hjá Jóni Gerald í Kosti. Það þarf ævinlega að sitja um þetta því að þetta selst alltaf upp samdægurs. Gott drull og alveg örugglega 10% sykur og 90% litarefni eða er bragðiefnið kannski bara svona á litin?
------------------------------
Maður er nú búin að fíla Klovn frá því að sýningar á þeirri snilld hófst fyrir fáum árum síðan. En undanfari þeirra þátta leiknir af sömu leikurum Klovn þáttanna eru þættirnir Langt Fra Las Vegas og væri nú upplagt af Rúvinu að sýna þessa þætti. Það var sett upp facebooksíða svo að popúllinn geti ýtt á það að Langt Fra Las Vegas komi í íslenskt sjónvarp.
------------------------
Within Tempation - Angels

föstudagur, febrúar 05, 2010

Geisp

Bloggið hefur legið niðri síðustu vikur vegna tilvistarkreppu. En daginn fer snú smátt og smátt að lengja svo að hægt sé að tala um árangur. Þó að myrkrið sé gott þá hef ég nú fengið nóg af svo góðu í bili. Nákvæmlega þarna ætla ég í sumar að veiða. Setja í lax eða tvo. Það er svo chillað hamast með flugustöng við Laxfoss.
--------------------------------------
Amorphis er drullugott band. Alltaf gott að blasta þeim af og til ef skapið er vont. Fín aðferð til að draga hundshausinn upp úr skítnum. Skemmtilega melódískir í spilun. Svo er nú það.

Amophis - The Castaway

föstudagur, janúar 29, 2010

Pirr

Leiðinda gaurar á þessari vakt. Þeir vilja ekki horfa á Taggart þáttinn í sjónvarpinu og skiptu yfir á eitthvað ljósblátt drasl á Sky-movies erotic. En ég fíla Taggart meira en ljósblátt. Ég fíla Fræbbblana líka. Enginn annar á vaktinni minni gerir það heldur. Einu sinni þegar ég var í barnaskóla, var sett á einhver kvöldsamkoma á meðal nokkurra skóla í sýslunni og var skífum þeytt fram eftir kvöldi. Ég mann alltaf hvað ég brjálaðist þegar helvítis plötusnúðsauminginn vildi ekki spila Fræbbbla-kasettuna sem ég hafði þá mætt með. Einhver aumingi frá barnaskólanum á Húsavík sem ég lennti svo í slagsmálum við mörgum árum seinna á einhverju balli að Ýdölum. Jæja ég ætla að fikta í ipodinum.

miðvikudagur, janúar 27, 2010

Pezt

Það ógeðslegasta sem ég veit er að vera veikur úti á sjó. Ég fékk einhverja helvíts sólarhringspezt um daginn þar sem ég ældi og ræpti í gríð og erg. Ömurlegt. Veðrið hefur svo ekki verið neitt sérstakt síðustu daga og blablabla. Röfl er þetta. Það hefur þó verið blússandi netsamband og ég er búinn að jafna mig af drullunni.

fimmtudagur, janúar 21, 2010

Brælustopp

Það hefur ekki orðið brælustopp síðan ég veit ekki hvenær. Allavega liggur báturinn bundinn við kæjann og við látnir bíða heima í um sólarhring. Það er svo sem alveg kærkomið að fá smá pásu svona inn á milli. Fínt að vera heima, hitta börnin, gera hitt, og hanga svo á facebook. Meiri andskotinn sem ég er búinn að svitna útiá sjó. Ég hef vaknað alveg í mauki upp í kojunni. Alveg sama hvort ég skrúfa niður í ofninum nei ég vakna eins og drulla undir sænginni. Svo er ég búinn að vera hnerrandi og með nefrennsli síðustu þrjá túranna af því að ég hef alltaf gleymt að taka með mér steranefúðann sem læknirinn lét mig hafa. En þessi nef-háls og eyrnalæknir greindi meg með krónískt ofnæmisnef fyrir stuttu síðan. Ég þoli s.s. ekki ryk, frjókron eða hey og þess háttar. Þetta er orðið gott. Ég ætla á klósettið. Ég þarf að drulla.
--------------------------------
Nei áður en ég skít þá ætla ég að posta hér mp3. Ég er ekki búinn að gera það lengi. Og þetta eru sumsé 3 lög þar sem áfengi kemur við sögu.

Dead Kennedy - Too Drunk To Fuck


Willie Nelson - I Gotta Get Drunk


Deana Carter - Strawberry Wine

föstudagur, janúar 15, 2010

Ekkert að gerast

Núna er ég alveg tómur. Dettur ekkert í hug. Blogga bara á morgun eða hinn eða hinn. Þetta er náttúrulega bilun.

föstudagur, janúar 01, 2010

Tveir núll einn núll

Og þá er komið nýtt ár eina ferðina enn. Ég hef svosem ekkert um það að segja nema hvað að maður lifir í voninni um að það gerist eitthvað af viti í þessum efnahagsmálum okkar hérna. Það er auðvitað ekki nokkur einasta andskotans hemja að þetta skuli vera svona. Ég nenni ekkert að tala eitthvað í kring um hlutina og vera bjartsýnn og blablabla. Já ég hef á tilfinningunni að þetta eigi allt eftir að fara lengra og neðar til helvítis en það er núna. Bara alveg lengst.

Sum41 - The Hell Song


Say Anything - A Walk Through Hell

fimmtudagur, desember 31, 2009

Bara að banka á gluggann

Ég fór og var með læti við Alþingishúsið í gærkvöldi. Ég hefði vilja sjá fleira fólk en jæja. Það var kraftur í mönnum og einhverir reyndu að kveikja bál sem þá var slökkt af lögreglu med de samme. Svo var mér og öðrum stígjað frá gluggum alþingishúss þar sem við vorum nú bara rétt að banka á þá en ekki til að skemma þá. Það var alveg sama, frá gluggunum skyldum við. Ég fór þá bara í staðinn og sótti bílinn og lá nokkuð hressilega á flautunni í staðinn. Jæja en ég vona þá að forsetinn asnist ekki til að skrifa undir lögin. Þetta er náttúrulega bara bilun og aulaháttur að samþykkja þessi lög á alþingi. En hvað sem því líður þá ég þakka ykkur fyrir árið sem er að líða og vona að það sem framundan er verði ykkur ánægjulegt og farsælt. Þið haldið svo vonandi áfram að þvælast hingað á þessa vitleysu á nýja árinu líka.
-------------------------------
Svo eru það rósir. Þjú lög sem heita eitthvað "rose". Datt bara ekkert betra í hug. Kannski að maður færi forsetanum rósir ef hann skrifar ekki undir lögin. Aldrei að vita. Það má sjálfsagt rassskella hann með þyrnunum ef hann þá skrifar undir þessa vitleysu.

Toby Keith - White Rose


Freddy Fender - Roses Are Red


Lynn Anderson - Rose Garden

mánudagur, desember 28, 2009

Hvað segir klóssettið þitt um þig?

Ef klósettið mitt gæti talað þá seggði það mér sjálfsagt að borða eitthvað hollara. Jafnvel að það væri skítabragð af hægðunum mínum. Ég er núna búinn að brasa við að laga jólatrésfótinn því að jólatréið mitt hefur undanfarið hallað töluvert í suð-vestur. Einhver myndi nú segja,"iss smá halli á jólatré gerir nú ekkert til". Jú, þegar hallin dugir til þess að tréð dettur á hliðina. Ég er sum sé búinn að teipa við þetta eitthvað að spítukubbum sem ég nota sem stoðir. Tréð hallar samt smá ennþá. Held að ég sendi það á haugana eftir þrettándann. Ég er svo núna að úða lögum inn á nýja 16gb Ipodinn sem ég fékk í jólagjöf. Sá gamli sem var 8gb var orðinn of þröngur. Dugði samt vel frá því að hann var keyptur á góðæristímum 2006 þá um haustið en svo drullaði hann upp á bak fyrir skemmstu. Ekki gott.

miðvikudagur, desember 23, 2009

VeiVeiVeiVeiVeiVei

Þá er komin Þorláksmessa. Ég ætla að éta skötu í kvöld.

mánudagur, desember 21, 2009

Það drullast

Já ég hef aldrei vitað aðra eins mikla snúninga og vesen fyrir einu og sömu jólin. þetta er nú samt allt að smella saman. Og Þá fokkaði Ipodinn upp í dag *grenj*. Vonandi gefur jólasveinninn mér Ipod í skóinn eða þá kannski að hann geri við hann fyrir mig um leið og hann kemur og gefur strákunm mínum í skóinn.*meira grenj*. Ég verð svo að vísa hérna á síðu doktorsins en þar fjallar hann um framhaldsleikritið Hótel Volkswagen sem var fastur liður í útvarpsþættinum Heimsendir sem var á dagskrá rásar tvö þegar ég var unglingsgrey . Mér finnst vanta þessa tegund af þáttum í útvarpið, kvöld þáttur. Spjall í bland við grín og glens á kvöldin. En þetta voru semsagt Gnarrinn og Sigurjón og Magga Stína. En þetta var sumsé á byrjunarreit Gnarr og Grjóna(1994). "Hvað er þetta Gnarr?",Hugsaði ég. "Eitthvað ættarnafn sennilega. Er það eitthvað Franskt eða er þessi maður kannski ættaður frá Wales?" Svona hugsaði maður um þennan gauk í útvarpinu sem mér heyrðist á röddinni vera ekki ósvipaður því sem hann er nema þá kannski frekar dökkur yfirlitum og dökkhærður með þykkt hárið sleikt aftur og augnkvass. Jæja ég er kominn út í vitleysu. Hver veit nema ég sjálfur eigi eftir að vera með kvöldþátt einhverntímann. Það er stefnan. Þá kannski heldur einhver vitleysingur út í bæ að ég sé kannski frekar dökkur yfirlitum og dökkhærður með þykkt hárið sleikt aftur og augnkvass. Já eða kannski með klofin góm líka. Hú nóvs ?
-----------------------------------

Já og svo er það Finnur æskufélagi minn. Eins og ég hef alltaf sagt og einhverntímann hérna áður líka þá er hann sannur listamaður við hverja þá listgrein sem hann tekur sér fyrir hendur, mála myndir, hverskyns hannyrðar og svo semja og spila tónlist. Nú er hann búinn að gefa út skífu með lögum eftir sjálfan sig sem að mér fannst nú bara vera tímaspursmáð að myndi gerast. Hlýðið á Stonekey.

Stonekey - Scarecrow

sunnudagur, desember 20, 2009

Það er veðrið

Ég var að horfa á Inglourious Basterds og er nokkuð ánægður því að þetta er með betri vitleysum sem Quentin Tarantino hefur staðið fyrir eða síðan sú ágæta ræma Pulp Fiction kom út. Þá fyrst núna kemur eitthvað af viti sem skemmtir mér. Mér leiddust t.d. Kill Bill myndirnar heldur mikið. Nóg um það. Ég ætla að baka smákökur núna í nótt en ég er bara búinn að bara eina sort, piparkökur sem ég er nú reyndar að verða búinn að éta upp núna. Þá er bara að baka nýja sort til að éta líka upp til agna. Svo þykist maður vara í aðhaldi.

miðvikudagur, desember 16, 2009

ztjörnuvitlaus

Ég sá stjörnuhrap þegar ég skrapp út á tröppur að líta á stjörnurnar í fyrrinótt. Langt er síðan maður hefur séð slíkt fyrirbæri að frátöldu stjörnuhrapi sem ég leit augum fyrr í haust þegar ég var um nótt í Leirársveit á heimleið úr silungsveiði. Það var nú oft þannig á unglingsárunum að maður fór stundum út undir beran stjörnuhimininn til að mæna upp í loftið eftir stjörnuhrapi. sundum beið maður stutt og stundum leið allt að korter-tuttugumínútur. Jafnvel meira. Um þessar mundir er svo hægt að sjá Mars, Satrúnus og Júpíter þegar stjörnubjart er í veðri.
---------------------------------
Þá var nú skroppið í Kolaportið um síðustu helgi og verzlaður hákarl, harðfiskur, ástarpungar og geisladiskur sem ber heitið var Downtown, The Best Of Tony Hatch. Tony Hatch er alltaf ágætur og á ágætis smelli sem ég hef þekkt frá því að ég var smábarn. Þá fann ég nú hvergi coverið af diskinum og nenni ekki að taka mynd af því til að sýna það hér, enda gerir það ekkert til. Þið getið bara reynt að finna helvítis coverið sjálf ef þið eruð að drepast úr forvitni. Andskotans.

Tony Hatch - Best In Football


Tony Hatch - A Man And A Woman


Tony Hatch - Mr & Mrs

mánudagur, desember 14, 2009

akrabraggarbahcharabach

Já það er lítið bloggað þessa dagana, enda á maður eftir að fá heilablóðfall úr jólastressi ef þessu fer ekki að linna. Allt tekur enda um síðir.Jæja það er bezt að fara og ganga frá einhverjum pakkatussum.
--------------------------------------------------
Ég er nú mikill Shaq aðdáandi frá fornu fari og er ég þá að tala um þegar hann leikur körfubolta. En yfirleitt allt það rapp sem Shaquille O'neal hefur gefið út er hreinasta eitur í eyrun. Nema þetta eina lag. Hann gat þó rappað sig í gegn einn fjandans lagastúf einu sinni svo að hæt væri að fíla það. Það var algjör hending. Þetta er nú samt hálfgert eitur. Verð nú að segja það. Maðurinn er sperðill.

Shaquille O'neal - Newark