blank'/> blank'/> +++Aldrei að hafa gaman af lífinu+++

mánudagur, apríl 27, 2009

Vííííííííííííííííííííííííííííííííí

Þá er hún Íris mín búin að eiga afmæli í dag og árin því orðin 25ára og í tilefni þess átum við kjúkling í kvöldmatinn. Voða góðann.

Þeir urðu nokkuð hlessa skipsfélagarnir þegar ég kom æðandi um borð, veifandi Sound Of Music í dvd hulstri sem ég svo smellti í spilarann í setustofunni. Ég skemmti mér líka konunglega við að horfa á ræmuna með heddsettið á hausnum eða svo vel að mér fannst ég vera labbandi úr bíói þegar ég fór yfir í borðsalinn til að éta smjör með rúgbrauði og kindakæfu. Skipsfélagarnir fussuðu og sveiðuðu og hræktu í allar áttir. Skilðaekki.

The Sound of Music - Do Re Mi


The Sound of Music - Edelweiss


The Sound of Music - I am 16 Going on 17

laugardagur, apríl 25, 2009

Frívakt

Magnaður skítur að blogga svona úti á sjó. Ég hef nú ekki fengið mér netpung ennþá en er að spá í að verða mér út um eitt stykki á mánudaginn þegar ég kem í land. Annars erum við í lala fiskaríi hérna við Surtsey. Reyniði svo að kjósa eftir beztu sannfæringu og samvisku í dag. Sjálfur kaus ég utankjörfundar á miðvikudaginn var. En núna ætla ég að flaka mér nokkrar ýsur í soðið og svo er ég farinn að halla mér í kojunni minni.

þriðjudagur, apríl 21, 2009

Fyrr má nú vera helvítið

Meiri andskotans rugldagurinn. Ég er búinn að eyða deginum að megninu til í tóma vitleysu. Kom litlu sem engu í verk og tíminn leið eins og ég veit ekki hvað. Drakk ég samt dálítið mikið kaffi og fór í heitt bað til að mýkja upp skrokkinn sem ég er annars að drepast í allan daginn. Svo fékk ég mér ágætis búts áðan en það er klaki þeyttur saman við ávexti. Það voru eingöngu bláber í því bútsi sem ég drakk. Hún leynir á sér þessi klakadrulla.

Svo var gerður derringur þarna um árið og tókst vel. En sá gjörningur var framinn af Geira en hann á það til að bregða á leik. Þetta er snilld og þið verðið að hlusta á Derringinn. Hlustiði. Heyriði ekki neitt ?




Geiri - Derringur

sunnudagur, apríl 19, 2009

Kæsing

Lagði ég skötu til kæsingar í dag. Hún verður þá orðin skemmtilega úldin þarna seinnipartinn í maí þegar ég fer í frí. En kæst skata er algjör nauðsin tvisvar til þrisvar á ári. Annars er bara ágætis blíða hérna á sjónum. Ósköp vinalegt bara.

þriðjudagur, apríl 14, 2009

æksehrbgkserbgeaorgbewar

Það er vor í lofti. Maður finnur það á tilvistarkreppunni að hún er ekki eins sterk og verið hefur undanfarna mánuði. Ég fékk mér rúgbrauð með kæfu og drakk svart kaffi með því áðan en er núna með heiftarlegan vindgang eftir bæði rúbbann og páskaeggið sem ég jat núna yfir páskana. Í gær andskotaðist ég svo á þrekhjólinu til að stemma stigu við öll sætindin, ofreyndi mig og ældi. Ég ætla að lyfta lóðum núna.
Kom svo þessi skemmtilega NBA-mynd inn um lúgana hjá mér í morgun. Þá held ég að þetta sé bara komið það sem ég pantaði af ebay og er því Jabbar safnið mitt bara orðið nokkuð myndarlegt. Ég er svo búinn að gramsa í körfuboltamyndum sem mér voru gefnar (heilir þrír kassar) og er þá gamla safnið mitt sem ég tapaði á sínum tíma orðið upp bætt og gott betur Þökk sé Hannesi vini mínum. En talandi um myndir þá setti ég inn á myndasíðuna myndir af sjónum. Sjá þær hér.

The Doors - Riders On The Storm

mánudagur, apríl 13, 2009

Víðigerði frekar en Staðarskála

Jæja. Þá er ég kominn suður aftur. Maður skrönglaðist bakaleiðina í snjó og hálku þetta á sumardekkjunum. Gef svo þessum nýja Staðarskála núll í einkunn enda bara eins og venjuleg N1 bensínstöð, ekkert persónuleg eins og hvert annað þurrkuntulegt batterí.
Þá tek ég stoppið frekar út á aðeins smærri en kósí stað eins og Víðigerði en þar er að fá sér ágætis hamborgara og líta á ýmis skemmtileg handverk sem einnig eru fáanleg fyrir rétta verðið. Prump á Staðarskála.

miðvikudagur, apríl 08, 2009

Vúúúúúúúúúúúúúúúúú

Já sveiattan ef allt fór ekki á háa loft hérna í húsinu um daginn þá veit ég ekki hvað. Í það minnsta á ég að láta draugarannsóknir í friði en til stóð að ég og einn ónefndur ætluðum að skoða og gera rannsóknir á ferðum framliðina á ákveðnum stöðum og húsum og höfðum orðið okkur út um græjur og áhöld til þess arna eins og notuð eru í þáttunum Ghost Adventures. En um daginn fékk ég ítrekaðar aðvaranir að handan og áminningar um að láta allt slíkt vera og vera ekki að ónáða hina dauðu frekar en að ég vilji að þeir ónáði mig. Ekki flóknara. Þó ég sé mikill spíritisti og áhugamaður um astralheimana þá get ég ekki áskilið mér rétt á innbroti inn á þessa staði. Einungis fólk með meðfædda miðilhæfileika hafa þannig séð bara "leyfi" til að skyggnast þangað.
En nú er ég farinn með fólkið mitt norður. Þar verður haldið ættarmót á Föstudeginum langa. Ég er ekinn af stað með Ipodinn stilltann á Country, Blues og Rythm.
Svoooooooonahhhhhhhhhhhhhh


John Lee Hooker - I Got


Willie Nelson - Goodhearted Woman


Fantastic Johnny C - Boogaloo Down Broadway

mánudagur, apríl 06, 2009

Sobbeggi

Og nú ætla ég að lesa eitthvað þórberg Þórðarstuff. Ég stikaði á bókasafnið í dag og tók mér að láni Bréf til Láru og Í kompaníi við Þórberg. Ég er nú þegar búinn að lesa Ofvitann og Sálminn um blómið en það eru dásamlegar bækur. Svo las ég líka Bréfin hans Þórbergs. Hún er líka skemmtileg. Helvíti hefði verið magnað ef þórbergur hefði geta notað tækni á borð við internet. Klárlega myndi ég lesa bloggið hans. Annars er ég ný búinn að lesa bók sem heitir Samneyti og fjallar höfundurinn þar um reynslu sína af fljúgandi furðuhlutum, svosem eins og að verða numinn á brott í fáeina klukkutíma. Furðulegur þegar menn telja sig hafa orðið fyrir þessum andskota annars tek ég allar frásagnir svona lala trúarlegar en ég er þess full viss um að eitthvað líf leynist annarstaðar en hér á þessum hnetti. Sjálfur hef ég nú aldrei séð fljúgandi furðuhlut en er áhugamikill um þá. Væri alveg til í að sjá einn. Svo er nú það.


Whistling Jack Smith - I Was Kaiser Bill's Batman

miðvikudagur, apríl 01, 2009

Serbneskt


Mikki skipsfélagi minn mælti með Riblja Corba og Ceca, þegar ég spurði hann út í skemmtileg serbnesk dægurlög en Mikki er einmitt frá Serbíu. Þangað hefur mig alltaf langað alveg óskaplega til að fara. Annars er ég farinn á sjóinn í nokkra daga og er svo kominn í kærkomið páskafrí.
Ceca - Koza Pamti


Ceca - Trn i Ruzia


Riblja Corba - Poslednja Pesma o Tebi


Riblja Corba - nemoj da ides mojom ulicom

föstudagur, mars 27, 2009

Щенки йоркширского терьера

Eru grautlinar hægðirnar að angra þig? Þá mæli ég hiklaust með þessu stöffi en þetta fæst í öllum betri apótekum bæjarins. Þetta hreinsar garnirnar og þéttir og herðir hægðirnar svo ummunar. En ef þú ert í vandræðum með of harðar hægðir þá skaltu sleppa því að fá þér svona. Aðferðin er einfölt. Aðeins ein teskeið af þessu dufti út í eitt glas af vatni og skella því svo strax í sig, glúgglúgglúgg.

Annars er maður bara í góðum gír þessa dagana. Fékk loksins síðustu Jabbar myndina afgreidda úr tollinum í dag. Merkilegt hvað tollurinn þarf alltaf að vera með lúkurnar í öllu sem maður kaupir sér af ebay. En jæja Ég hugsa að ég geri pásu á Jabbar og fari yfir í Elgin Baylor eða Julius Erving. Bæði kannski þetta voru snillingar. Maður grúskar eitthvað í þessu myndadrasli. Ég er nú búinn að fá nokkra bunka af hinu og þessu en það er náttúrulega bara svona randomdót sem búið er að vera í kössum uppá háalofti hjá fólki. Alltaf gaman að fá svona háalofts myndir til að hræra með.

fimmtudagur, mars 26, 2009

Kaffi, munntóbak og mp3

Ég fór upp í Úlfarsárdal í gær og reyndi að finna Dr Gunnasetrið. Fann það ekki en lenti þess í stað útistöðum við kallskíthaus sem var með stæla við mig á vegslóða þarna innfrá. Uppskar hann malarregn yfir bílinn sinn þegar ég spólaði í burtu. Helvítis asninn. Samt góður bíltúr þangað uppeftir. Ætla að reyna að finna setrið á morgun ef ég nenni. En núna ætla ég að fá mér kaffi og í vörina.

Svo fékk ég þessar NBA-myndir af Kareem Abdul Jabbar, inn um póstlúguna í morgun. Jeiiiii....


Að lokum eru það svo lögin. Ég er loksins byrjaður aftur að vasast með mp3 hérna á blogginu eftir stuttan aulahátt sem var í gangi hjá mér. Ég mun vera aktívari við þetta framvegins. Þessi þrjú lög hér að neðan eru úr einhverri hrollvekju. Það er alveg stolið úr mér hvaða hrollvekja það er eða hvernig í helvítinu þessi lög bárust mér og svo sem alveg leifilegt að hvísla því að mér í kommenti úr hvaða mynd þessi lög eru ef menn vita eitthvað um það.

Main Theme - I have warned thee


Alice Cooper - Teenage Frankenstein


Alice Cooper - He's Back(End theme)

mánudagur, mars 23, 2009

Sveittir svertingjar

Ég ef nú tekið upp á því á nýjan leik að safna NBA körfuboltamyndum. Við erum ennþá nokkrir sem erum enn að safna síðan NBA-körfuboltamyndabólan byrjaði árið 1993. Ég er t.d. búinn að sanka að mér 08-09 UpperDeck First Edition seríunni sem fengist hefur í reykvískum sjoppum undanfarið. Svo í tilefni af endurkominni Nbamyndaáráttu þá er ég búinn að panta og fá af ebay nokkrar myndir af Kareem Abdul Jabbar. Og hér að neðan eru þrjár sem ég er nú þegar búinn að fá.

Jabbar hafði einstakt lag á þessum Sky-hook skotum og er alltaf gaman að sjá hvernig helvítis maðurinn fór að því að vippa boltanum svona ósköp pent í körfuna eins og sjá má á myndskeiðinu neðan við þessi orð.


Svo er það músík.
Shaquille O'Neal - I Hate 2 Brag


Shaquille O'Neal - Shaq Diesel

mánudagur, mars 16, 2009

Skítalykt

Nákvæmlega! Einmitt þegar búið er að ýta sjálfstæðis gríluni úr ríkisstjórn og miklar mannabreytingar hafa orðið hjá ríkissaksóknara er loksins farið að taka upp gömul mál sem þessi. Það þykir mér líklegt að einhver pólitískur skíthaus með ítök innan lögreglunnar sé viðriðinn þetta mál og hefur því aldrei neitt verið aðhafst frekar með það. Ég er einnig á sama máli um Geirfinnsmálið. Eintóm skítalykt og ekkert annað en stórfelld spilling.
Og talandi um þetta Geirfinnsmál þá hafa komið fram kenningar sem sjá máhér. En mér þykja þær vera það sterkar að vert væri að athuga þessi mán nánar. Nei konan sem gerði uppgötvanirnar um þessi mál fékk hurðina skellta á nefið á sér í dóms og lagakerfi landsmanna sem segir manni það að lögreglan og allt dómsmálabatteríið hefur eitthvað virkilega ljótt í pokahorninu varðandi málið. Það er alveghreint með ólíkindum að svona lagað skuli þrífast í fokkans þjóðfélaginu. Bara til háborinnar skammar.
Lisa Nilsson - Det Vackraste Jag Vet


Svenne & Lotta Hedlund - Bang en boomerang

þriðjudagur, mars 10, 2009

vindlar

Eldur og vindlar

Í dag skíðlogaði hús í Ámúlanum. Alveg hjúds eldur þar. Það var svaðalegt. Í nótt dreymdi mig að ég væri að reykja vindil og svo dreymdi mig draugagang.
Annars hef ég ekki rassgat að segja.

fimmtudagur, mars 05, 2009

Stuðstuðstuð


Í nótt dreymdi mig að ég væri að reykja stuð með Lalla Johns, Hemma Gunn og nokkrum skipsfélögum mínum. Allt snérist þetta um að reykja stuð og stúdera körfuboltamyndir. Helvítis rugl.
Maður er bara kominn í daglangt stopp og fer svo aftur á sjóinn. Demitt ! Þetta er pirrpirr. Mig langar að vera í landi. Fiskverðið fer líka lækkandi. 25% lækkun á þorski frá áramótum. Vona að við getum þá fiskað meira upp á móti þessum lækkunum.

miðvikudagur, febrúar 25, 2009

Múrskeiðarhau

Dagurinn er búinn að vera leiðinlegur af því að ég svaf lítið um nóttina og fór snemma á fætur. Mig dreymdi hálf illa. Búinn að vera þreittur og önugur og dæmalaust leiðinlegur í allan dag. Ég skrapp samt í bæinn og drollaði eitthvað þar. Fékk mér pylsu og með því út í sjoppu og keypti svo í matinn. Núna er ég að fylla aðeins á ipodinn áður en ég fer og hamast á þrekhjólinu.
Er að spá í að raka rasshárin.

þriðjudagur, febrúar 24, 2009

Þvælur

Ég sit nú hérna í stofunni heima hjá mér og er með annað augað á Tremors. Skemmtilegt bull. Það væri gaman að eiga þessa mynd til á DVD ef maður myndi fá sterka flensu eða yrði einhverra hluta vegna rúmlyggjandi. Það eru ýmsar bíóræmur þeirrar tegundar sem gott er að eiga til og horfa á svona í veikindum. Ég nefni Pulp Fiction, Back to the future, Fear and Loathing in Las Vegas, Cliff Hanger, Another Day in Paradise, og Kannski bara True Lies líka. Þetta eru jú einmitt myndir sem eru óttalegar þvælur.

Annars er ég full frískur þessa dagana og ekkert annað en krafturinn og dugnaðurinn framundan við að afla sér meiraprófsréttinda.

Ég er með bólu á rassinum.

laugardagur, febrúar 21, 2009

Ztjörnuvitlaus

Gaman er að pæla í stjörnunum. Venus er núna skærust allra stjarna um þessar mundir og er í suðri á kvöldhimninum. Saturnus er sést einnig á kvöldin og er í ljónsmerkinu. Ég átti nú stjörnukíki forðum þegar ég bjó í sveitinni og þá auðvitað alveg kjöraðstaða að skoða og spá í stjörnurnar. Enda skoðaði ég Júpíter Saturnus og Venus skoðaði ég líka og sá hana jafn skýra og á myndinni hér að neðan. Mig hefur lengi langað að sjá bauga Saturnusar en hallinn á þeim er einungis bara 2° en halli bauganna ná ekki hámarki fyrr en árið 2017 en hallinn verður þá 27°. Þá verður gaman að eiga góðan stjörnukíki.

mánudagur, febrúar 16, 2009

Название типу было дано

Ég horfði á NBA Allstar-leikinn í nótt og fram á rauðan morguninn. Og auðvitað rúllaði vesturdeildin þessu upp að vanda.
Svo í morgun dreymdi mig að ég væri á hesti, á stökkinu niður laugaveginn. Þar hafði ég góða sveðju í hönd og hjó mann og annann. Á meðan að þessu stóð fyllti lag úr Hrafninn Flýgur loftið.

sunnudagur, febrúar 15, 2009

Gullgröftur

Þá sjaldan ég fer í bíó, var ég teymdur á augnlokunum á Friday The 12th í bíó nú í kvöld. Fín ræma. Í sætinu við hliðina á okkur kerling sem boraði heil ósköp í nasirnar á sér. Ég hélt sveimér að hún hafði týnt einhverju þarna inní sér. Svo át hún að sjálfsögðu allt konfektið úr sér líka. Ég verð að segja að að ég hafði varla list á að éta poppið mitt við að sjá þetta hjá manneskjunni. En ég þvældi því í mig.
Svo held ég áfram í meiraprófinu á morgun.

föstudagur, febrúar 13, 2009

Nýr bíll á hlaðið



Toyota Corolla'94. Þetta er svona hundraðþúsundkróna dós en hentar vel sem fjölskyldubíll. Ekkert bílalán eða slíkt vesen að þessu sinni. Búinn að fá nóg af því í bili. Bíllinn er meira að segja beinskiptur svona til að minna mig á krepputíma þá er nú hamast á öllu. Engan góðærismunað sem takk.
En núna ætla ég að stika niður í veiðibúð og athuga hvort ég geti ekki verslað mér nokkrar flugur fyrir laxveiðina í sumar.

föstudagur, febrúar 06, 2009

Ekki gott


Djöfull er það nú sick ef satt reynist að sambýlis maðurinn hafi kálað konunni sinni og komið skrokknum af henni fyrir í dúfnakofa. Það versta er að konan lætur eftir sig börn. Hræðilegt helvíti.

Ég er að leita mér að bíl. Bara svona eitthvað hundraðþúsundkróna dæmi. Er ekki að taka mér bílalán á þessum tímum núna.
Svo þegar ég fer í frí næst fer ég í meiraprófsskólann.

laugardagur, janúar 31, 2009

sunnudagur, janúar 25, 2009

Allskonar og amma hans

Fari það kolað. Ég er nú svo skítþreyttur núna að ég veit ekki hvað ég heiti. Er búinn að vera svona allt fjandans fríið geispandi og gapandi í tíma og ótíma. Hef ekki lent í áður að koma heim í frí svona ógeðslega langþreyttur.
Það er merkilegt að þvælast á sölusíðunum á barnalandi. Fólk að losa sig við allt draslið sem það fékk sér í góðærinu mikla og skuldar upp fyrir hvirfil. Það er hægt að fá allskonar drasl þarna, playstation tölvur, kaffivélar, hestavörur, veiðidót, plasmasjónvörp, fartölvur og bara allskonar drasl sem fólk hefur keypt sér á raðgreiðslum og á þannig lagað ekki rassgat í því heldur. Merkilegt.
Ring 2 er í sjónvarpinu. Shit er það leiðinleg mynd. Fyrr má nú vera.

föstudagur, janúar 23, 2009

Alýfát

Lúxus er að hafa súrmat að éta í kvöldmatinn. Svo er nú það. Ég rúntaði niður í bæ í dag og enn var verið að mótmæla. Ég held að þetta sé orðið gott. Það hefur verið boðið til kosninga í vor og þá er þetta held ég komið það sem menn vildu. Hefði nú haldið það.
Ég fer í laxveiði í sumar. Vúúúhúúú

fimmtudagur, janúar 22, 2009

þriðjudagur, janúar 20, 2009

Jesse stone



Þetta eru fínir krimmar. Þeir fjalla um Jesse Stone sem er blautur og ný fráskilinn löggukall úr LA sem tekur að sér starf lögreglustjóra í smábænum Paradise. Venjulega hef ég ekki gaman af amerískum lögguþáttum/myndum en þetta er helvíti gott. Mæli með þessu fyrir þá sem þykir gaman að horfa á krimma.

þriðjudagur, janúar 13, 2009

Æsidraumar

Meira ruglið sem mig dreymir alltaf. Fyrir stuttu síðan dreymdi mig að ég væri í hávaða rifrildi við einhvern fávita sem byrjaði að vinna á sama skipi og ég. Einn skipsfélaga minna kom þá og barði hann í klessu. Svo nóttina eftir var ég á flótta undan lögguni með skottið á bílnum hlaðið kókaíni. Svo um daginn dreymdi mig að ég væri að slást við handrukkara(svona gaur í stíl við Annþór eða Benjamín í kompás) og barði ég hann þannig að hann datt niður moldarbarðið til helvítis. Greip þá kauði í mig og ætlaði að toga mig með sér þarna niður, en sem betur fer náði ég að slíta mig lausan.

miðvikudagur, janúar 07, 2009

Helvíti gott



Jú það gerðist eitt gott á árinu 2008. Neftóbakskokkurinn byrjaði aftur um borð hjá okkur eftir langa fjarveru.

föstudagur, janúar 02, 2009

áramóta-anall

Annáll já. Þetta ár var held ég bara hálf leiðinlegt. Allt byrjaði það nú á því að það fiskaðist illa í Janúar og Febrúar. Alveg skelfilega. En í Mars fór nú allt að glæðast og ég seldi Avensisinn sem ég átti og keyptur var á bæinn Lexus is 200. Þá ætlaði ég norður helgina eftir en varð að snúa við á Blönduósi vegna veðurs. Í fyrripart apríl var ég svo mest á sjónum en ók svo á norðurlandið þar sem ég sló síðustu stafina í glæpasöguna mína. Gaman er að minnast á það að þegar GAS GAS GAS GAS-atvikið átti sér stað, var ég að keyra um í stafnshverfinu fyrir norðan og hlusta á mótmælin í útvarpinu. Í maí brá ég mér ásamt konu, syni á samt fleirum til Flórída. Það var indælt og mikið brallað og líka slappað af og verið í rólegheitum. Þegar heim var komið var farið á sjóinn og hamast á helvítis keiluveiðum allt fram í júlí en þá tók við afslöppun í sumarbústað í Svignaskarði brá ég mér í nokkrar heimsóknir í Borgarfirðinum líka. Þau leiðindi áttu sér svo stað þennan mánuð að foreldrar mínir slitu samvistum eftir 30 ára sambúð. Bróðir minn og mágkona skyldu líka sem og vina fólk okkar Írisar. Þá dó Palli vinur minn, kenndur við flug. En svo í byrjun ágúst misstu vinir okkar dóttur sína af slysförum í Svíþjóð. Þá leið á mánuðinn og ég fór á sjóinn þar sem brett var upp ermarnar til keiluveiða þrátt fyrir tal manna uppi á skrifstofu um Þorsk og Ýsuveiðar í ágúst, ne,i nei. Svo kom september og haustið. Það er minn uppáhalds árstími en við fórum þá loksins austur fyrir land á Þorsk og Ýsuveiðar. Var því landað á Djúpavogi sem er góður staður að koma á. Einnig varð úr að við lönduðum á Húsavík nokkur skipti og gat ég því tekið mér bílaleigubíl og heimsótt ættingja og vini í sveitinni heima. Svona gekk allt vel þangað til í enda nóvember að Íris lenti í árekstri á Lexusnum og hefur hún haft bakið í lamasessi eftir það og vonandi að hún jafni sig eftir sjúkraþjálfanir. Bíllinn eyðilagðist og var það lán í óláni að það litla lán sem hvíldi á honum var ekki myntkörfu. Fékk ég því dálítið af peningum greitt á milli úr tjóninu og er nú kominn á hlað Mitsubisi Galant.
En það verð ég að segja að það er þungu hræi af mér létt að þetta bölvaða ár sé búið, Því að margt annað ömurlegt gerðist óupptalið. Já annað eins helvítis ár hef ég ekki þekkt á ævinni. Ég vona að árið 2009 verið nú aðeins skárra.

sunnudagur, desember 28, 2008

Fífl

Bílaauglýsing einhvers örvæntingafulls einstaklings sem sennilega er kominn er með skítinn á upp á bak og á puttana en gerir sér vonir um að losna við kvikindið með því að borga með bílnum fullt af peningum. En þá svaraði einhver.

smella á myndina til að sjá betur

Afhverju er það sem ég kalla Kartöflustappa kallað Kartöflumús. Í mínu uppeldi var þetta aldrei annað en Kartöflustappa, enda mýsnar ekki mikið hafðar útí það í minni sveit. Því ekki bara Kartöfluelgur eða kartöflufífl. Kannski bara kartöfluaumingi. Nei þetta er bara eitthvað svona heimskulegt rugl sem viðgengist hefur hjá fólki um aldir. Fávitalegt.
Jæja ég ætla að fara og kaupa mér flugelda fyrir fimmtíuþúsund.
Nightwish - I wish i had an angel

föstudagur, desember 26, 2008

Djöflast í Helga

Ég sá krakka leika sér í sandkassa í dag. Hann hafði verið að éta sand. Það sást á kjaftinum á honum. Ég get þó ekkert sagt. Ég át mkið af sandi þegar ég var smábarn. Ég var reyndar mjög sólginn í júgursmyrsl. En var samt ekki eins hrifinn af áburði(Græðir-9) og heldur ekki af kindaskítnum. Svo er nú það.
Ég fór í Hapauk í skeifunni í dag til að skila einhverjum bókum og dvd myndum sem ég var búinn að sjá og lesa. Rakst ég svo á Helga E Helgason fréttamann við búðakassana. Sá reyndar ekki hvað hann var búinn að kaupa sér. Ég hefði kannski átt að reyna að hnýsast í pokann hjá honum.
Helgi: Fyrirgefðu, ertu að hnýsast í pokann minn?
Ég: Ég má'ða.
Helgi: Svona, hættu þessu drengur.
Ég: Nei ég ætla að sjá hvað þú keyptir maður.
Helgi: Svona hvað er þetta maður.(hrifsar pokann til sín)
Ég: N-N-N-NEIIÍÍÍHHHHH....(Heldur dauða haldi í pokann)
Svo hefðum við kannski farið að togast á um pokan þangað til annar gafst upp. Nei bara svona hugmynd sem ég fékk.
Bob Dylan - Positively 4th street


Fantastic Johnn C - Boogaloo Down Broadway


Elwood&Mac Blues and The Blues Brothers Band - Looking For A Fox