blank'/> blank'/> +++Aldrei að hafa gaman af lífinu+++

laugardagur, júlí 25, 2009

Naumindis

Það er naumast að maður mætir löggubílum á leiðinni að norðan. Þessir andskotar segjast með auknu eftirliti vera að stuðla að auknu umferðaröryggi. Umferðaröryggi minn rass. Þeir eru að reyna að sekta fólk sem mest til að það komi meiri aur í ríkiskassann og í þeirra eigin starfsmannasjóð. Ég hef nú heyrt um það að þeir séu að hirða þetta eitthvað sjálfir þegar menn borga sektina á staðnum. Og þess vegna borga ég aldrei á staðnum.
---------------------------------
Mjög gott. Ég keypti mér þennan tónleikadisk með Cream nú á dögunum. Er nokkuð sáttur bara.

Cream - White Room


Cream - Sunshine Of Your Love


Cream - Born Under a Bad Sign

þriðjudagur, júlí 21, 2009

Bjánaháttur

Þetta er nú alveg... Ég fór nú og ætlaði að taka benzín á Fosshóli enda alveg að verða benzínlaus en atburðarrásir og tilviljanir urðu til þess að ég var ekki með pening á kortinu mínu akkúrat það augnablik en á Fosshóli er bara korta sjálfsali. Það var þó bót í máli að það er hægt að kaupa ákveðið innkort inná benzínstöðinni til að nota í sjálfsalann ef maður er bara með kass. En til þess að geta keypt innkort, þarf að borga það með korti. Fífl.

sunnudagur, júlí 19, 2009

Augun út


Lesandi var ég bók í gær sem heitir Sálmurinn um blómið. Sú skrudda er eftir Þórberg Þórðarson. Í einum kaflanum er Þórbergur að segja litlu manneskjunni frá manni sem dó þegar hann var á leiðinni úr veislu og spurði litlu manneskjuna síðan hvort það væri betra að deyja þegar maður væri að koma í veislu eða fara úr veislu. Telpan vissi það auðvitað ekki og þá spurði hann hvort betra væri að deyja þegar maður er að fara að éta nammi eða þegar maður er búinn að éta það og krakkinn svaraði um hæl að það væri betra að drepast þegar maður er búinn að éta nammið(Eða ullabjakk eins og karlstaurinn kallaði nú blessað nammið).
Ég er auðvitað sammála þessu. Ég meina ég myndi miklu frekar drepast úr hjartaáfalli þegar ég er búinn að ríða heldur en að drepast úr hjartaáfalli í greddukastinu á undan ríðingunum. Það liggur nú í augum úti eins og maðurinn sagði.

miðvikudagur, júlí 15, 2009

Hhhhhhhhhhhhhhhhhhh......

Draugagangur eina ferðina enn. Kona nokkur sem ég þekki er óhóflega skyggn og í morgun vaknaði hún við fólk í húsinu sínu. Mikill fyrirgangur þarna og mikið talað, hrópað og gengið um. En þegar hún brölti fram úr bælinu og gekk fram var þar auðvitað engin lifandi maður og allt var þagnað um leið og hún opnaði herbergisdyrnar. Kona þessi hefur séð kaffikönnu og bolla í undirskál svífandi í lausu lofti og um leið helltist auðvitað kaffi úr könnuni í bollann. Ég væri til í að sjá svoleiðis.
Pældíðí, þetta er fyrsta sumarið í mörg ár þar sem ég hef ekki þurft að fá yfirdrátt í bankanum né og er ekki einu sinni blankur. Þetta er öfugsnúið miðað við að það er kreppa og ég er að gera meira í ár en síðustu sumarfrí. Skrítið en satt og alls ekki leiðinlegt. Og þá er bezt að græja veiðidótið fyrir morgundaginn.
----------------------
Keypti ég ekki þennan fína disk á hundraðkall um daginn. Ekki svo galin tónlist á þessari skífu.


Del Amitri - Not Where It's at


Del Amitri - Mother Nature's Writing

mánudagur, júlí 13, 2009

On Fire

Ljóta mambóið að kveikja svona í Valhöll. Ég kom þarna eitt sinn í teiti og þótti staðurinn mjög fínn. En talandi um Þingvelli þá er hugsanlegt að maður skreppi þangað að veiða í vatninu á næstu dögum. Ég ætlaði nú að skreppa á veiðar í Elliðavatni um daginn en þá kom einhver leiðinda kallugla og heimtaði að ég verzlaði af sér veiðileifi þegar uppgötvaðist að Veiðikortið sem fæst keypt á benzínstöðvum N1 gildir ekki í Elliðavatni. Ég hélt nú ekki og spólaði bölvandi og ragnandi af stað í áttina að Vífilstaðavatni sem er glatað veiðivatn og það eina sem veiðist þar er gróður og slý.
------------------------------
Ég nældi mér á sínum tíma í eintak af plötunni I’m a Bird Now með Anthony & The Johnsons. Þessi snillingur getur brætt hjarta hvers manns og fengið hörðustu togarajaxla til að vökna um augun. Hér er lag sem mér finnst mjög gott að hlusta á af og til. Textinn er einfaldur en snilld. Þetta er eitthvað svo innilegt.

Anthony & The Johnsons - fistful of love

laugardagur, júlí 11, 2009

Hjúds

Þetta er svona. Stundum hefur maður ekkert að segja og þá er alveg eins gott að skrifa bara eitthvað um draugagang eða eitthvað álíka vitlaust. Betra heldur en ekki neitt. Við mamma stútuðum þessu geitungabúi í garðinum hennar í gærkveldi. Drápum líka flesta íbúana og kveiktum varðeld í garðinum með geitungabúið sem aðalefnivið. Þeir geitungar sem sluppu verða því bara heimskulegar geldflugur sem verða öllum til ama og leiðinda allt sumarið og fram á haustið.

fimmtudagur, júlí 09, 2009

Múhúhúhaha

Já helvítis draugarnir. Það er merkilegt eins og hvað þetta lið er nú mikið í kring um mann að maður verið ekki meira var við þá. Það er nú svoleiðis að í húsi einu hjér í bæ hafa búið nokkrar fjölskyldur í gegn um nokkra áratugi og í öllum tilfellum hafa heimilisfeðurnir látist heimafyrir hver á sinn hátt. Einn fékk hjartaáfall, annar datt niður stigann, hinn féll af þakinu þegar hann var að mála þar uppá og svo sá fjórði var nú kominn vel á sjötugsaldurinn en vaknaði víst steindauður í rúminu sínu einn morguninn. Skrítið eða ekki því að húsið var reist á álagabletti. Tilviljun eða álög? Það veit enginn.

-----------------------------------------------------

Tónlistin að þessu sinni er hundraðkrónuforvitnin. Ég keypti mér þennan disk á hundraðkall í verzlun einni hér í borg til að forvitnast um efni hans. Ég hitti svosem sæmilega á góðan því að mér líkar ágætlega músík sem þessi. Jájá það er vel hægt að kinka kollinum í takt við lögin hans Joe Tex. gjörið svo vel.


Joe Tex - Buying a Book


Joe Tex - S.Y.S.L.J.F.M (The Letter Song)


Joe Tex - A Sweet Woman Like You

miðvikudagur, júlí 08, 2009

Já hver þremillinn!

Sumir pæla voða mikið í draugagang. Mér þykir allt slíkt voða skemmtilegt og spennandi. Ég hef líka lent í ýmsu tengt draugagangi og ætlaði líka einu sinni að ganga dálítið langt við að fikta við slíkt en komst að því að það er best að láta svoleiðis fikt í friði ef maður kann ekkert á það. Einn ónefndur var að segja mér frá því að fyrir skemmstu var hann á gangi á svolítið afskekktum stað og veit ekki fyrr en einhver af öðrum heimi stendur fyrir aftan sig. Hárin risu víst svoleiðis á hnakkanum á honum að hann gat fryst ýsuflak oná skallanum á sér.

þriðjudagur, júlí 07, 2009

Alveg tómur

Ég veit nú ekki almennilega hvað ég á að segja. Maður situr bara hérna á rassgatinu og gerir ekki neitt. Þetta er algjör afslöppun. Einhver myndi segja að maður væri með fingurinn á kafi í rassgatinu en það er ég nú ekki.
Ér er samt abúinn að leggja drög að annarri smásögu.

mánudagur, júlí 06, 2009

Namminamminamm

Heitur pottur grillmatur og afslöppun í sumarbústað. Aðallega heitur pottur samt. Svo í gær krifaði ég smásögu.

miðvikudagur, júlí 01, 2009

Абу ль-Аля аль-Мааррі розумі

Laddi, Stefán Karl og eitthvað fleira pakk er að leika í kvikmynd í blokkinni minni. Þetta lið er búið að vera valsandi hér inn og út allan daginn. Óþolandi.
Ég fór á rúntinn núna síðdegis sá engan sem ég þekki. Leit við í verzlun er hefur dc og dvd til sölu en ég keypti mér ekki neitt. Fjandans aulaháttur að gera það ekki.
Mér var gefin bók í dag og er að hugsa um að lesa hana núna ef ég er þá ekki búinn að tína henni eins og öllu öðru hérna í þessu blessaða koti.
----------------------------------------------------------
Svo eru það blessuð lögin. Hér hef ég eitthvað dót frá Albaníu. Ekki það að mér finnist það eitthvað skemmtilegt. Ég er bara að reyna að vera alþjóðlegur hérna. Reyndar þá hefur balkanskaginn alltaf heillað mig. Ég set stefnuna á að skreppa þangað einhvern tímann á næstu árum.

Dj Teko - Feat DuLi


Shpat Kasapi - Sa e bukur

þriðjudagur, júní 30, 2009

blipp

Ég er eiginlega á því aðdauðarefsingar á íslandi ættu að vera til taks þegar um landráð er að ræða. Bara stilla landráðamönnum upp við múr með bundið fyrir augun og einhvern grænklæddan mann með rússneskan herrifil fyrir framan þá. Slíkt gerist enn víða.
Ég kom í bæinn í gær eftir laxveiðiferð. Lá reyndar í bælinu upp í bústað með bakverki megnið af tímanum. Veiddi engan lax en samt var allt morandi af honum í ánni. Danni og Snúður fengu reyndar sitthvorn drjólann. Ég er að spá í að læra fluguhnýtingar.

föstudagur, júní 26, 2009

Landráð

Æi ég veit það ekki. Ég er nú eiginlega búinn að láta aðra blogghausa sjá um að blogga eitthvert kreppukjaftæði. Ekki var ég með nein lán á mér að ráði eða neitt sem heitir myntkörfu-eitthvað svo að ég þarf ekki beinlínis að amast neitt. En mér ofbauð nú alveg þetta IceSave dæmi. Að samþykkt verði að Íslenska þjóðin verði tekin í kakóið af Bretum og Hollendingum með 300.000 milljarða, bara í vexti er landráð og ekkert annað og bæði ríkisstjórnin og þessir fjandans útrásavíkingar eru heppnir að fremja landráð á Íslandi en ekki annarstaðar, því að enn er það við lýði í sumum löndum að menn eru hreinlega teknir og skotnir fyrir að fremja landráð. Ef ekki af yfirvöldum, þá almúganum. Að Ísland borgi IceSave? Fokkjú!
Ég nenni samt ekki að ergja mig á þessu neitt frekar. Þetta þjóðfélag er bara eitthvað klikk. Ég ætla að fara í bústað upp í Leirársveit í kvöld og gera mig kláran í að krækja mér í lax eða tvo í Laxánni þar á morgun og hinn. þ.e.a.s. ef ég skána þá eitthvað í bakinu á milli herðablaðanna. Ég er búinn að vera að drepast þarna síðustu tvær vikurnar en ég fékk eitthvað verkja og bólgueyðandi drull hjá lækninum í dag sem virkar ævinlega ekkert eða hálf illa á mig. Já ég er alveg að verða vitlaus á þessu. Alveg. AAAAAAALLLLLLLLVEEEEEEEEG.........

---------------------------------------------------------

Mp3 dagsins er svo Horst Wessel. En horst Wessel var gerður að píslarvætti nasista vegna þess að hann var myrtur árið 1934 af einhverjum gyðing sem var ekkert að fíla þennan Wessel vitleysing. En hvort Horst þessi samdi þetta lag eða þá að lagið sé samið um hann veit ég ekkert um. Hana hafðið það.



German Militari Marches - Horst Wessel

föstudagur, júní 19, 2009

Píííííííííííííííííííp

Þá er maður í landi enn eina ferðina. Og farinn aftur á sjóinn á eftir og kem svo í land aftur og er þá kominn í sumarfrí. Allavega þá var ekkert símasamband eða netsamband í síðasta túr og þá ekkert hægt að standa í bloggkjaftæði. Það er svona að vera á fiskaríi einhverstaðar lengst útí djúpa helvíti. Pirrpirr. Ég rakst nú á eitthvað execute rugl á youtube um daginn. Verið að hengja nasista fyrir hitt og þetta. Ekki nokkur hemja að hafa þetta svona á netinu. Ég sá nú klippuna af því þegar Saddam var hengdur þarna á sínum tíma. Léleg útfærsla og illa tekið upp. Ég hefði miklu frekar vilja sjá myndband af því þegar bróðir hans var hengdur þar sem hausinn slitnaði af manninum í leiðinni. Svona skemmtilegra og meiri fjölbreytni. Kannski ekki fyrir húsvörðinn þarna í byggingunni þar sem hengingin fór fram. Maðurinn kannski ný búinn að skúra þarna og blóð og gor út um allt. Ég hefði brjálast í hans sporum. “Æi hvað hafiði gert”. Það er hugsanlegt að bróðir Saddams hafi spriklað með lappirnar áður en hausinn slitnaði af og svo þegar hann lenti á gólfinu, hafi hann náð að hlaupa hauslaus smá spöl. Getur það verið ?


Hundraðkrónudiskur úr Kolaportinu sem ég forvitnaðist til að kaupa mér þegar ég var á ferðinni þar síðast. Þokkaleg skífa og innihaldið fellur sæmilega vel inn á ipodinn. Þetta er bara ammrískt rokkeitthvaðsjitt. Fínt að hafa þetta í bílnum ef maður er á ferðinni út á land. Svo er nú það.

Five Easy Pieces - Lovers

sunnudagur, júní 14, 2009

pípípípípípípípípíp

Tók mynd af þessum netapung sem við mættum á landleiðinni til grindavíkur í morgun. Veðrir var fallegt og tivalið í myndatökur. Ég þarf að gefa köttinn minn út af kattarofnæmi sonar míns(grenj). En það verður að hafa það. Ég fór í kolaportið í dag og keypti mér bók um síðustu daga Hitlers. Forvitnilegt að lesa um það. En þá er ég rokinn á sjóinn aftur. Ég nenni ekki að hafa neitt mp3 núna. Næst bara. Já já þetta er aulaháttur ég veit það. Farðu ekki að grenja maður.

mánudagur, júní 08, 2009

Yxna köttur

Ég veit ekki með ykkur en mér leiðast breima kettir í næsta nágrenni við svefnherbergisgluggann minn um miðja nótt. Það fór svo vel í mig að ég var að því kominn að opna Whiskasdollu til að koma fyrir í spenntri minkagildru utan við gluggann svo að ég fengi nú svefnfrið. Já ekki notar maður haglabyssuna hérna í þéttbýlinu og það um miðja nótt. ----------------------------------------------------------------------
Annars fór ég í Polakortið í dag og verzlaði ýmsan varning eins og dvd og cd, harðfisk og smá veiðidót. Já ég keypti þennan Italian Dance Classics á hundraðkall. Var að forvitnast og útkoman var djönk. Ég sit því uppi með þennan skít sem senn mun lenda í arninum. Ég hefði frekar átt að kaupa mér Willie Nelson diskinn sem ég sá í næsta rekka við hliðina

Black Box - Ride On Time


F.P.I. Project - Rich in Paradise

fimmtudagur, júní 04, 2009

Vevuvivuvivu

Ég fékk þessar þrjár Topps körfubolta myndir inn um póstlúguna hjá mér nú á dögunum. Er bara nokkuð ánægður með þetta þó að Jabbar-myndin sé samt leiðinlega særð í hornin en það eru heldur pirrandi skemmdir á góðri körfuboltamynd. En hvað sem körfuboltanegrum líður þá keypti ég mér slatta af veiðidóti í dag. Flugur og nýja tösku svo eitthvað sé nefnt og svo ætla ég að tína orma í kvöld en á morgun fer ég í paintball.

Café De Paris hljómar eins og nafn á söngleik. Kannski er það söngleikur en ég hef bara ekki vit á því. En ég keypti þetta revíudrasl á hundraðkall hjá manni sem var með ýmsan varning í Kolaportinu á góðu verði hér áðurfyrr, eins og cd, dvd og djúsa. En hann er nú kominn annað þessi. En ég sletti hér tveimur lögum af þessum revíudiski hér niðurfyrir. En ég hef í sjálfu sér ekkert vit á þessum flytjendum en þetta er bara diskur sem ég keypti bara til þess að kaupa hann bara af því eða bara af forvitni. Ég meina hvað er hundraðkall þegar forvitnin er annarsvegar.

Lucianne Delyle - Domino


Jean Sablon - J'ai Peur De L'automne (Septembersong)

miðvikudagur, júní 03, 2009

Ljót mynd í sjónvarpinu

Já núna rétt áðan var í sjónvarpinu maður sem gekk inn í hús og barði þar húsráðandann nánast til ólífis með felgulykil. Þar sem kona húsbóndans grát bað manninn að hætta þessu(hrópandi eitthvað á spænsku) snéri kauði sér að kerlingu og lamdi hana í klessu líka og reif utan af henni leppana. Svo sagði hann "I'm fucking starving", snéri sér að ísskápnum og fékk sér ristað brauð og mjólkurglas.
Kostulegt.

sunnudagur, maí 31, 2009

Andfúlskan

Næsta húsverk. Skipta um batterí í reykskynjaranum því að hann er að láta mig vita með reglulegu píbi að orkan sé á þrotum. Þetta helvítis píb pirrar mig. Kom að norðan í gær úr fermingu frænda míns og auðvitað þurfti Blönduóslögreglan að vera að tussast þar sem ég ók um Húnavatnssýslur. Það þýðir einn púnt í ferilsskránna og einhver sektardjöfull. Svo þessi löggukall og hvað hann var andfúll. Sennilega er eitthvað dautt uppí honum. Eitthvað dautt og búið að vera það lengi. Eitthvað dautt og búið að fylla það með fúleggjum. Æi ég nennti svo ekkert að rífast um að ég hefði verið á minni hraða og hélt kjafti. Annars var þetta bara fín norðurferð í alla kanta, gönguferðir og heimsóknir og auðvitað bara fínt að skreppa norður fyrst við í meiraprófinu rusluðum bara námskeiðinu af áður en vikan varð úti.

Trespass er bíómynd sem ég sá á unglingsárunum og eignaðist svo soundtrackið líka á cd. Ice-t og Ice cube, Bill Paxton og William Sadler eru í aðalhlutverki í myndinni og eihverjir aðrir amerískir kvikmyndasperðlar. Hlustið á lögin, þetta rappdrasl.

Sir Mix a Lot - I Check My Bank


Ice-T & Ice Cube - Trespass

miðvikudagur, maí 27, 2009

Síétandi

Svo keypti Anna svilkona candyflossvél. Alltaf gaman að fara í heimsókn núna og fá sér candyfloss. Ég er nú svo sjúkur í allt sem heitir nammi og sætindi þannig að mér er helzt hollast að sleppa því að kaupa svona vél því að þá enda ég bara sem bólugrafinn og tannlaus offitusjúklingur. Sveiattan ég verð að hætta að éta nammi svona almennt. Það sem er að redda mér frá bogadregnum línum er þrekhjólið, sippubandið og magaævingatækið. Er búinn að þjösnast á þessu dóti síðan um áramót. -----------------------------------------------------------------

En jæja mp3ið að þessu sinni er danskt. Það er semsagt hljómsveit í Danmörku sem heitir M.I.A Lyhne eftir samnefndri leikkonu þar í landi. En hún er einmitt frægust þar fyrir að leika kærustu Frank Kvam í sjónvarpsþáttunum Klovn. En allir hljómsveitarmeðlimir eru einmitt aðdáendur hennar. Svo eftir nokkurt ströggl tókst mér að grafa upp eitt lag með þessari hljómsveit en það heitir bara Mia Lyhne.

Mia Lyhne - Mia Lyhne

sunnudagur, maí 24, 2009

Sauðurinn þinn

Þá hefur bolur sumarsins verið keyptur á ebay fyrir 33 dollara plús eitthvað smá í shipping & handling. Þetta er eins og þið sjáið, Lakers hlýrabolur merktur Kareem Abdul-Jabbar #33. Það verður gaman að spássera um götur borgarinar í honum í sumar. Svo hér að neðan eru aðal bolirnir sem ég gekk hvað mest í í fyrrasumar og sumarið þar áður. Semsagt bolir sumarsins í fyrra og þaráður en ég var mikið öfundaður af því að eiga þessa boli. Svo er nú það.
-----------------------------------------------
Maður er svo að andskotast í þessum ökuskóla. En bóklegi áfangin verður kláraður í vikunni og þá taka verklegir trukkatímar við. Shit hvað maður hefur ekki minnsta hundsvit á öllum þessum búnaði í öllu draslinu, Demitt. Og lög og reglugerðir. Þetta kemur allt. Ég er ekki fáviti. Annars er ég ferkar tómur og hef ekkert að segja um það sem er búið að vera í fréttatímum enda ekki nennt að horfa eða hlusta á fréttir upp á síðkastið. En ég ætla að setja hér inn eitthvað smá mp3 tekknódrasl sem ég veit ekkert um og man ekkert hvernig ég fékk í hendurnar en það er langt síðan ég hef mp3að hér en það er auðvitað ekkert nema bara andskotans aulaháttur.

Tekknó nr.1


Tekknó nr.2


Tekknó nr.3

þriðjudagur, maí 19, 2009

ÍReykjavíkandskotinnerþetta

Þá er maður mættur í borgina á nýjan leik. Ég svaf á stíminu frá Þingeyri til Grindavíkur hér sem segir: 10:00 - 19:30. Þá skrapp ég upp og jat súpu hjá kokknum og fór á kjaftatörn við nokkra skipsfélaga uppí skipsprú. Fór svo aftur að sofa um 22:00 og vaknaði upp aftur klukkan 02:30 og gat ekki sofnað aftur. Núna er að koma kvöldmatur og ég búinn að vaka mig vitlausan.

Hér er svo myndband með vini mínum honum Finni. En kann er sannur listamaður í því sem hann tekur sér fyrir hendur, hvort sem það er tónlist, myndlist eða að sitja fyrir á dindlinum. Finnur er Reykdælingur eins og undirritaður og því æskufélagi minn líka. En hvað músík snertir þá voru menn oft að þeyta skífum og spila á hljóðfæri saman í gamladaga. Já, ýmislegt var brallað. Það er meira að segja til einhverstaðar segulbandsupptökur með okkur Finni að syngja og spila á hljóðfærin, oftast ég á hljómborðið hans Trausta og Finnur með gítarinn. Það þarf að grafa helvítis kasettuna upp og reyna að finna einhvern sem hefur tök á að setja gúmmilaðið inn á tölvu. Þá sjálfsagt emmpéþría ég því hér niður í leiðinni.

mánudagur, maí 18, 2009

Þingeyri online




Og þá er verið að landa úr dallinum á Þingeyri. Ég fékk mér göngutúr niður í fjöru sá æstan svartan hund sem gelti að mér og hlæjandi máva. Núna eru bólugrafnir unglingar úti á túni að spila fótbolta. Sennilega eru krakkarnir í frímínútum. Ósköp vinalegt í þessu krummaskuði hérna.
Nú er ég smat að hugsa um að fara um borð aftur og leggjast uppí koju. Ná smá hvíld á meðan við tökum stímið til Grindavíkur.

laugardagur, maí 16, 2009

Draumavinur



Í nótt dreymdi mig að ég væri niðrí bæ á pöbbarölti ásamt vini mínum sem er ekki til í raunveruleikanum. Var þessi vinur minn hár að vexti skolhærður á fertugsaldri. Þetta var fyrrverandi togarasjómaður en daginn í dag starfandi kafari. Hann reykti Lucky Strike og svona almennt geðgóður í alla staði. Hann blótaði mikið yfir þeirri heimskulegu hjátrú að ekki megi elda svið úti á sjó því að slíkt boðar brælur og vond veður. Já við vorum alveg sammála um það og í raunveruleikanum er ég líka viss um að þetta sé komið frá einhverjum skipstjórafávita sem hafa þótt vond svið, logið þessu að hjátrúarfullum skítkokknum og kokkurinn síðan blaðrað þessu út um allt og úr orðið þessi asnalega hjátrú. Sjálfsagt hefur þessi skipstjóri verið einhver eigingjarn og sjálfselskur leiðinda skíthaus sem þurfti endilega að koma eigin sérvisku yfir á aðra. Meira andskotans fíflið. Ekki man ég meira um hvað okkur vinanna fór á milli nema hvað að hann langaði á sjóinn aftur en gat það ekki út af hnémeiðslum. Dálítið miss yfir því. En ekki veit ég hvað þessi draumur táknar en hann draumur situr í mér. Kannski er þetta einhver sem ég á eftir að kynnast síðar.

Annars er þetta góður dagur í dag, því að nákvæmlega uppá dag hef ég verið laus frá brennivínsdrykkju og öðrum boðefnasvindls efnum í 10 ár.

þriðjudagur, maí 12, 2009

Þvílíkt

Ég var nú búinn að ætla mér að birta hér einhvern lista yfir draslið á ipodinum mínum en það er ekki nokkur vinnandi vegur að setja 1300 laga lista hér inn. Ég myndi setja Blogger HF á hausinn ef ég myndi reyna við helminginn af því. En svona það helsta sem ég er með á ipodinum er með Metallica, Iron Maiden, Rolling Stones, Nick Cave, Nirvana, Offspring, Steelheart, Led Zeppelin, AC/DC, Beatles, Helloween, Rammstein, Bob Dylan, Nightwish, Suede, Beatles og mörg lög af sólóferli Lennons. Nú svo er það Prodigy, Baggalútur, Olympia, Ham og Utangarðsmenn.

Nú bland í poka, eitt lag upp í tíu með eftirfarandi flytjendum, Sepultura, Guns’n Roses, Napalm Death, U2, Lenny Kravitz, Staind, Muse, Slade, The Smashing Pumpkins, Rem, Def Leppard, The Doors, Creed, Deep Purple, Weezer, The Wite Stripes, Alice Cooper, Kiss, Boston, Bon Jovi, Bonnie tyler, Black Sabbath, Jimi Hendrix, Britney Spears, Leonard Cohen, Crash Test Dummies, Scorpions, Fleetwood Mac, Coldplay, Duran Duran, Blur, David Bowie, Elton John, Groove Armada, Fatboy Slim, James Blunt, Shania Twain, Garbage, Toby Keith, Antony & The Johnsons, Alizee, Michael McDonald, Bloodhound Gang, Nashwille Pussy, Sex pistols, Slipknot, Radiohead og Pink Floyd,

Íslenst bland í poka, Sálin, Sóldögg, Todmobile, Quarashi, Ný Dönsk, Dr gunni, Tappi tíkarass, Unun, Hljómar, Hjaltalín, Megas, Hellvar, Ríkið, Reykjavík, Douglas Wilson, Sprengjuhöllin, Vínyll, 200.000 Naglbítar, GusGus, Múm, Mammút, Bangang, Fræbblarnir (og allt Rokk í Reykjavík gúmmilaðið) Hinn íslenski Þursaflokkur, Eik, Greifarnir, Írafár, Laddi, Stuðmenn, Buttercup, Dr Spock, Outloud, Flosi ólafsson og Pops, Kaktus, Ljótu Hálfvitarnir, Risaeðlan, Grýlurnar, Gautar og Sverrir Stormsker.
Bubbi Morthens hafði stóran sess á ipodinum en lögin hans eru orðin svo útspiluð og gegnnauðguð að ég hef hent þeim mjög mörgum út og fellur Bubbi því undir bland í poka. Það er mikill lagahræringur af Billboard og allskonar stöff af PottÞétt og Now.
Svo er ýmislegt gúmmilaði af mp3 bloggsíðum Doktorsins, Einars og Sýrðarjómans og annara mp3 bloggara. Einnig er kántrýíð og blúsinn ríkjandi á Ipodinum. Helstu blúsarar eru engir bara heilmikið bland héðan og þaðan, þekkt og ekki þekkt. Einnig á það sama við um Kántrýið. Þó er Willie Nelson með stóran sess inná kubbnum. Annars er heilmikið dótarí á poddaranum sem ég veit ekkert hvað er. Bara merkt eitthvað merkt “Track”, en mest af þessu stöffi er keypt og fengið á heiðarlegan hátt í plötubúðum eða á tonlist.is. En það verður að segjast að mikið af þessu dóti er síðan frá DC++ siðspillingunni þegar landsmönnum þótti sjálfsagt að hala niður tónlist og kvikmyndum af netinu án þess að borga fyrir það. Sveimér.

Svo er ég hérna með gúmmilaði frá Króatíu gaman að hlusta á það einstaka sinnum.


Drazen Zecic - Bez tebe


Safet Isovic - Bosno moja

föstudagur, maí 08, 2009

Kolvitlausir menn



Ætli Breiðholtið beri ekki nafn með rentu þegar talað er um glæpahverfi því að eitt kvöldið þegar ég var á sjónum og frúin ein heima með litla gaurinn okkar var dinglað heldur frekjulega dyrabjöllunni og barið full hressilega að dyrum. Var gestur þessi maður á miðjum aldri, lufsulegur til fara og slagandi af ölvun. Og vegna þess útgangs og hegðunar var honum ekki hleypt í bæinn. Því fór nú húsfrúin að eldhúsglugganum sem er við hliðina á útidyrunum, kallaði á manninn og spurði hvað hann vildi. Hann vildi að hringt yrði fyrir sig á leigubíl. Jú, jú, það var svosem alveg sjálfsagt og taxinn kom svo skömmu síðar og maðurinn hvarf á braut í taxanum út í myrkrið. Henni fannst þetta samt dálítið óþægilegt.

En nokkrum kvöldum eftir þetta var dyrabjöllunni hringt aftur og með enn verri látum og hurðarbankið eiginlega bara eitthvert helvítis brambolt. Og það var eins og fyrr, öll samskipti höfð í gegn um eldhúsgluggann því að gesturinn að þessu sinni var líkt og gesturinn sem áður hafði komið kvöldum áður, ölvaður eða dópaður en mun sóðalegri til fara og í allastaði æstur og dólgslegur í hegðun. Hann heimtaði að pöntuð yrði fyrir sig pizza en það var að mati konunnar alveg fráleitt mál og vísaði manninum burt en þá brjálaðist helvítis maðurinn eins og ótaminn foli með sígarettuglóð á bellinum og fór að öskra og berja á eldhúsgluggann eins og geðsjúkur öskurapi með úlf í endaþarminum. Fór það svo að hringt var á lögreglu sem kom auðvitað á staðinn þegar helvítis fíflið var horfði á braut.

Þriðji maðurinn bankaði barði að dyrum á íbúðinni við hliðina. Þar sagði konan sem þar á heima svo frá að hún hefði í raun asnast til að opna dyrnar fyrir honum en hann heimtaði að sér yrði gefinn peningur fyrir strætófargjaldi en konan varð ekki við þeirri heimtufrekju og ætlaði að loka á manninn en þá reyndi hann að troðast inn á hana. Hún rétt náði að loka dyrunum en þá fór hann yfir að þarnæstu íbúð og var brjálaður. Löggan náði í þann mannandskota.

Já ég held þið séuð kolvitlausir bara. Andskotans.

miðvikudagur, maí 06, 2009

Þvaður og meira jaríjarí

Íslenska plata vikunnar á Rás2 er Inniheldur með DrGunna. Ég er búinn að verzla mér eintak og er búinn að hlusta dálítið á diskinn. Hef að vísu ekki hlustað á Rás2 til að heyra hvað höfundurinn segir um hvert lag þegar spilað er af plötunni. Ég er eiginlega kominn með drullu af Rás2. Menn verða frekar þreyttir á sömu útvarpsmönnunum þegar ekkert er í boði nema sama útvarpsstöðin í langan tíma eins og á sjónum. Þá hefur ipodinn reddað geðheilsunni. Fékk fyrst skitu af völdum Rás2 þegar ég var krakki í sveitinni heima. Þá kom maður heim úr skólanum að éta í hádeginu og Gestur Einar var með þáttinn Hvítir Mávar. Þá þurfti maður alltaf að heyra þvaðrið í honum á meðan maður þvældi í sig ýsu eða slátri. Vond æsku minning þar. Reyndar þótti skemmtilegt þegar unnið var í Laugafiski að faxa einhverjar falskveðjur í þáttinn og láta manninn lesa upp eitthvert helvítis rugl í útvarpið. Sumt var svo mikið andskotans rugl að Gestur átti það til að henda frá sér blaðinu og byrja á einhverju öðru. Þá lágum við vinirnir sem stóðum að þessu fram á glenningarborðið öskrandi úr hlátri. En vesen varðandi útvarp snarlagaðist nú þegar loksins var farið að senda Bylgjuna út frá endurvarpsstöðinni á Skollahnjúk. Þá fengum við loksins smá fjölbreytni í Reykjadalinn. Sama sumar og Bylgjan var fyrst send út þarna heima var þátturinn, mig minnir Tveir Með Öllu. Já þetta var í eldgamladaga.

Svo fékk ég þessa flottu nba-mynd inn um póstlúguna um daginn Július Erving í Topps 79-80. Gaman gaman nema hvað að nú þarf helst að gá að sér með sendingar frá Amríku vegna Svínaflensunnar. Phihihi

sunnudagur, maí 03, 2009

Organdi

Uhh... Já... Daglangt stopp frá sjómennsku. Farið út aftur í kvöld. Komið aftur í vikulokin. Helvítis, ég hefði vilja fara á tónleika á Sódómu og styðja hljómsveit söngvarans sem stakkst á nasirnar út um gluggann niðrí bæ um daginn. Vonum að guð gefi að hann hann nái sér kallinn.
Var að spá hvort að ekki yrði gaman að fara í hugleiðslutíma hjá David Lynch og losna við andskotans geðvonskuna. Reyna að vera aðeins geðbetri almennt og losna við Ástþórinn sem blundar innra með mér. Þá getur maður kannski hætt að þeyta hlutum út um allt vegna smámuna. Annars er ég búinn að vera voðalega þungur síðustu vikurnar. Alveg organdi tilvistarkreppa í gangi.

mánudagur, apríl 27, 2009

Vííííííííííííííííííííííííííííííííí

Þá er hún Íris mín búin að eiga afmæli í dag og árin því orðin 25ára og í tilefni þess átum við kjúkling í kvöldmatinn. Voða góðann.

Þeir urðu nokkuð hlessa skipsfélagarnir þegar ég kom æðandi um borð, veifandi Sound Of Music í dvd hulstri sem ég svo smellti í spilarann í setustofunni. Ég skemmti mér líka konunglega við að horfa á ræmuna með heddsettið á hausnum eða svo vel að mér fannst ég vera labbandi úr bíói þegar ég fór yfir í borðsalinn til að éta smjör með rúgbrauði og kindakæfu. Skipsfélagarnir fussuðu og sveiðuðu og hræktu í allar áttir. Skilðaekki.

The Sound of Music - Do Re Mi


The Sound of Music - Edelweiss


The Sound of Music - I am 16 Going on 17

laugardagur, apríl 25, 2009

Frívakt

Magnaður skítur að blogga svona úti á sjó. Ég hef nú ekki fengið mér netpung ennþá en er að spá í að verða mér út um eitt stykki á mánudaginn þegar ég kem í land. Annars erum við í lala fiskaríi hérna við Surtsey. Reyniði svo að kjósa eftir beztu sannfæringu og samvisku í dag. Sjálfur kaus ég utankjörfundar á miðvikudaginn var. En núna ætla ég að flaka mér nokkrar ýsur í soðið og svo er ég farinn að halla mér í kojunni minni.

þriðjudagur, apríl 21, 2009

Fyrr má nú vera helvítið

Meiri andskotans rugldagurinn. Ég er búinn að eyða deginum að megninu til í tóma vitleysu. Kom litlu sem engu í verk og tíminn leið eins og ég veit ekki hvað. Drakk ég samt dálítið mikið kaffi og fór í heitt bað til að mýkja upp skrokkinn sem ég er annars að drepast í allan daginn. Svo fékk ég mér ágætis búts áðan en það er klaki þeyttur saman við ávexti. Það voru eingöngu bláber í því bútsi sem ég drakk. Hún leynir á sér þessi klakadrulla.

Svo var gerður derringur þarna um árið og tókst vel. En sá gjörningur var framinn af Geira en hann á það til að bregða á leik. Þetta er snilld og þið verðið að hlusta á Derringinn. Hlustiði. Heyriði ekki neitt ?




Geiri - Derringur

sunnudagur, apríl 19, 2009

Kæsing

Lagði ég skötu til kæsingar í dag. Hún verður þá orðin skemmtilega úldin þarna seinnipartinn í maí þegar ég fer í frí. En kæst skata er algjör nauðsin tvisvar til þrisvar á ári. Annars er bara ágætis blíða hérna á sjónum. Ósköp vinalegt bara.