blank'/> blank'/> +++Aldrei að hafa gaman af lífinu+++

föstudagur, apríl 01, 2005

HELGI AÐ MUNDA SKYRIÐ

Image hosted by Photobucket.com

Mynd sem ég bjó til í paint.
Er meirað segja að spá í að skella myndinni á striga.
Líst þér ekki vel á það ?
HELVÍTIÐITT

Einhvern tímann í skólanum í gamladaga vorum við nokkrir strákarnir, ximon og fleiri inná kennarastofu að bardúsa eitthvað með Skúla og sögðum alltaf helvítiðitt við hvorn annan. "Jæja helvítiðitt eigum við að fara í búðina á eftir helvítiðitt. "Já helvítiðitt við skulum gera það helvítiðitt.
Eða "Nenniru að rétta mér yddarann helvítiðitt". "Já helvítiðitt, hérna helvítiðitt". Svona gékk þetta í dálítinn tíma en þá var Skúla farið að leiðast þetta tal og sagði: Æi hættiði nú að kalla hvern annan "helvítiðitt". Í þeim töluðu orðum kom Trausti æðandi inná kennarastofuna, benti á ximon og sagði "neihh þarna ertu þá helvítiðitt".
Ég vissi ekki hvert Skúli greyið ætlaði.

fimmtudagur, mars 31, 2005

EITURBRAS

Þá er ég búinn að prufa kokkaríið þarna um borð á Sigurvoninni og sem betra er, enginn hlaut skaða af. Að vísu drullaði einn alveg óskaplega út af sósunni og annar STEINdrapst.

þriðjudagur, mars 29, 2005

NÝTUM SÍMASKRÁNNA TIL FULLS

Þannig er að þegar ég fer að kúka þá finnst mér afar óþægilegt þegar að kúkurinn lendir í vatninu og að slettist kalt vatn upp í rassinn. Þess vegna hef ég alltaf gamla símaskrá hjá klósettinu þar sem ég ríf eitt blað....kannski bara hálft og legg það svo oná vatnið í klósettinu þannig að þegar kúkurinn blubbsar slettist ekkert vatn upp í rassinn og ég fæ engann hroll af köldu vatninu.
Þetta er fullkomin lausn á endurnýtingu gömlu símaskrárrinar. Eða.... hvað finnst ykkur ?

sunnudagur, mars 27, 2005

MYNDIR, KROSSFESTINGAR OG LÆTI

Image hosted by Photobucket.com

Þá er hann ximon krossfestur, en þó ekki dáinn og grafinn. Þeir bræður ximon og Lárus fóru á kostum á krossinum sem þeir smíðuðu, Föstudaginn langa og var þeim vel tekið. Þetta er að vísu líka dæmi um daglega uppátækjasemi í okkur Reykdælingum. Svona lagað er ekkert nýtt.
Svo er ég búinn að plögga hér inn myndum, eftir mikið streð.
Segið mér hvað ykkur finnst um þær.

föstudagur, mars 25, 2005

ENGAR MYNDIR

Ég hef tekið burt myndasíðuna sem ég var með sökum þess að örlögin afa ætlað mér annan tilgang hér en að byrta myndir.
Þannig er það bara.
Því miður.

fimmtudagur, mars 24, 2005

PIKKNIKK MEÐ KOKTEILSÓSU

Var í fermingarveislu í dag og var ég auðvitað eins og jarðýta, eins og alltaf þegar kemur að veitingum og flottum hlaðborðum. Held samt að ég hafi étið full mikið, en samt ekki. Samt hélt ég að ég myndi æla öllu vegna ofáts en fór þá bara út og fékk mér frískt loft og þá skánaði þetta allt. Fór ég þá aftur inn og át bara meira.
Allavega fór ekki hjá mér eins og þegar ég var í fermingunni hans Halla forðum þegar ég át og át og át og át Pikknikk í kokteilsósu, fór svo heim í Lauti, ældi öllu gumsinu þar, fór svo aftur í veisluna og hélt bara áfram að éta og éta Pikknikk í kokteilsósu.
Það var fullkomin átröskun.
ÚTMEÐÐA

ÉG VAR AÐ SPURJA HVORT AÐ ÞIÐ VISSUÐ UMM EITTHVAÐ SEM VÆRI MÚSSATASSI.

þriðjudagur, mars 22, 2005

MÚSSATASSI

Ýmisleg voru uppátækin þegar maður var krakki, og ýmislegt datt manni í hug að segja þegar maður var krakki. En svo komu ný orð sem maður bjó til eins og orðið pintill, sem ég reyndar komst seinna að að væri getnaðarlimur hvals.
Svo var Gerða frænka að segja mér frá því að ég hafi einhverntímann komið til sín hlaupandi í öngum mínum og sagt að kallinn væri mússatassi. Enginn veit hvaða kall ég var að tala um né heldur hvað mússatassi er. Ég fór í orðabókina og fann ekkert þar. Fór á netið, bæði goggle og altavista en fann ekkert þar. Svo fór ég að prufa að nota þetta undir daglegum kringumstæðum, t.d. "Helvítis mússatassinn" eða "Ætti ég að skipta um dekk með mússatassi" eða "kannski að maður fái sér mússatassi í kvöld". Allir hrista bara hausinn þegar ég nefni mússatassi.
Hafi þið einhverja hugmynd hvað þetta gæti verið ?

föstudagur, mars 18, 2005

KÆST SKATA OG IDOL

Demitt...! Mér varð það á að horfa á Idolið í kvöld eða brot af því versta eins og það kallaðist og þykir mér alveg furðulegt hvað sumt fólk er blint á hvað það er ömurlegt. Já það er alveg ótrúlegt að sumir þarna skyldu dirfast að láta sjá sig þarna. Svo ömurlega laglaust, taktlaust og svo illsingjandi að ég myndi ekki einusinni bjóða geldneytum að hlusta á það.
Ég er ekki einusinni viss um að ég sjálfur myndi láta sjá mig í svona keppni. Þó held ég ágætlega lagi og hef góða rödd. (Skv heimildum menntaðra tónlistamanna). Það er bara alls ekkert nóg.
Jæja en nú eru ég og aðrir skips félagar mínir á Sigurvoninni að kæsa Skötu um borð. Nú er hún orðin þokkalega úldin núna og kominn tími á að leggja hana í salt. Það verður spennandi að sjá hvernig til tekst.
Hver vill smakka fyrstur ?

þriðjudagur, mars 15, 2005

GEIRFINNUR OG GARNAFLÆKJA

Ég og Ximon vorum að spjalla um daginn og veginn í gær en pædum svo í því hvað hafði virkilega orðið af Geirfinni. En ein sagan var þannig að hann hafði verið dreginn á einhvern afvikinn stað og sprengdur þar í svoleiðis tætlur að stærsta lufsan af honum var ekki nema bara á stærð við kóktappa. Þannig hefur þá hrafninn sjálfsagt komið í góðar þarfir til að láta hann hverfa.

Hvað er þetta með að ljúga í börnin okkar. Td: Ef þú horfir of mikið á sjónvarp verðuru blindur. Ef þú drekkur kaffi hættiru að stækka. Þú færð tölvuveikina ef þú leikur þér of mikið í tölvunni. Svo færðu garnaflækju ef þú ert alltaf að rúlla þér niður brekku.
Þetta er svo vitlaust eitthvað.

mánudagur, mars 14, 2005

BETRI VEIÐAFÆRI

Jæja þá er maður að fara á sjóinn á eftir. Verst að maður skuli ekki vera á trolli. Já það er kominn tími á að reyna það í sumar máski. Vonandi allavega. Annars er ágætt að vera á línuskipi. Allt betra en að vera á helvítisnetum. Það er nú það vonlausasta helvíti sem ég þekki. Já ég held að það sé best að vera á trolli. Í það minnsta hafa þeir trollsjómenn sem ég þekki ekki vilja sjá annað síðan þeir prufuðu það. Það veiðist bara langmest á troll. Þetta kemur í ljós.
Skoðið þetta svo og reynið að dreifa þessu út um allt ef þig getið.

laugardagur, mars 12, 2005

BÍLAR VESEN OG BRASK

Image hosted by Photobucket.com

Ég er nú búinn að reyna að finna vél í þessa blessuðu Hondu mína í meira en hálft ár en það gengur bara ekki rassgat. Þá var ég að pæla í að hætta við að laga þennan bíl og fá mér hina týpuna sem er jafn flott og algengari. En þannig var að ég hafnaði vél og gírkassa í þannig bíl um daginn vegna þess að þá var ég ekkert farinn að hugsa um að skipta.
Nú drullu sé ég eftir að hafa ekki bara keypt vélina og kassann og orðið mér út um hitt bodýið en að finna þannig body er eiginlega ekki svo mikið vésin. Þó held ég þar sem ég sit hér og pára niður þetta blogg að ég geti á sitthvorum staðnum fundið þetta tvenna bæði vél og body.
Sjáum hvort ég verð heppinn.

þriðjudagur, mars 08, 2005

SKAMMBARA

Ximon bjó til einhvern brandara á dögunum, veifaði því hátt, en harðneitar að segja hann sökum siðferðis. Menn eru orðnir bálreiðir af forvitni og iða ég sjálfur í skinninu að fá að heyra hann. Það er bara ekki með nokkru móti hægt að kreista brandarann uppúr honum. Það er búið að reyna að pína hann til þess að segja brandarann, bera á hann fé og hreinlega hóta honum en ekkert gengur.
Svo vil ég að þessi Lovísa Gunnarsdóttir fari að svipta af sér hulunni. Þetta er orðið gott.

sunnudagur, mars 06, 2005

SMÁRALIND OG REYKDÆLINGAR

Fór í Smáralind í dag, hitti þar Reykdæling spjallaði smá við viðkomandi og fór svo erinda minna.
Svo í einni búðinni sá ég Aðaldæling sem stóð og ældi og spjó í allar áttir. Augun í honum voru alveg svört
Svo var ég að heyra sögu af konu sem þurfti að láta farga kettinum sínum en tímdi ekki að fara til dýralæknis að láta svæfann. En þá hringdi hún í frænda sinn sem á byssu og fékk hann í að aflífa köttinn. Sá hafði þá tekið köttinn og látið hann í kassa og rent hlaupinu inn og hleypt af en tókst ekki að drepann nema í þriðju tilraun.
Það minnir óneytanlega á það þegar Njáll á Narfastöðum tók eitt sinn að sér að höggva Hana en öxin var bara svo vita bitlaus að þegar hann lét höggið vaða, fór hausinn ekki af og þá reyndi hann að skera hausinn af og þá rúllaði bara hausinn með blaðinu fram og til bara þangað til að hann snérist af.
Jæja ég ætla að fara og velta mér upp úr drullu og skít.

miðvikudagur, mars 02, 2005

GODDAMNIT

Var að horfa á Strákarnir á stöð2 áðan og shit hvað manndjöfullinn hann Pétur Jóhann Sigfússon er með loðið rassgat. Aldrei vitað annað eins helvíti.
Myndir þú vilja hafa svona loðið rassgat. Nei það er ég ekki viss um.




sunnudagur, febrúar 27, 2005

SIGNS

Akkúrat núna er Signs í sjónvarpinu núna en það er langdregin og leiðinleg ræma. Það reddar því þó alveg að helvítis melurinn(Mel Gibson) leikur aðalhlutverkið í myndinni. Því er hægt að horfa á hana.
Þetta væri gjörsamlega misheppnað verk ef td leppalúðar eins og bara....William Hurt eða Cristhoper Lambert færu með aðalhlutverk, eins ömulegir karakterar og þeir eru.
Sammála?

laugardagur, febrúar 26, 2005

Lloyd og Goldblum

Ég brá mér á vídeóleiguna og tók þar mynd sem heitir Quiksilver highway, sem eru tvær hryllingssögur. Önnur sagan fjallar um leikfangatennur sem lifna við og byrja að bíta fólk þangað til það drepst, en hin myndin er um lækni sem missir sjórn á eigin höndum sem fá sjálfstæðan vilja og fara að láta kallinn gera hitt og þetta. Þar fer Christopher Lloyd á kostum sem sögumaður. Mæli með þessari ræmu.
Annars er Jeff Goldblum staddur hér á skerinu. Hann er víst búinn að vera á Akureyri og á norðurlandinu að flækjast eitthvað í kvikmyndartökum. Hann er í Reykjavík núna. Jamm sá hann á Hlemmi vera að éta ís og eitthvað fylgdarlið líka. Tók að vísu ekki í spaðann á honum eins og Ximon gerði en tók mynd af honum og mun setja hana á netið fljótlega. Þaeas ef þetta HELVÍTISPHOTOSHOP kemst í lag hjá mér einhverntímann á þessari öld.

miðvikudagur, febrúar 23, 2005

ILLA ER LÁTIÐ

Hvað er eiginlega aðessu helvíti. Það er nýbúið að vesenast og laga tölvuna en nú virkar hvorki prentarinn nér photoshop. Ég ætlaði að setja myndir á hérna á síðuna. Þarf að fá Binna til að redda mér.
Ég sit hér í drullu og skít og get ekkert get af því sem ég vil gera hérna. Er að hlusta á músík núna, úr því sem komið er. Hvernig finnst ykkur Stormsker? Ég fíl'ann.
Svo skrifaði ég pistil á málefnin.com


mánudagur, febrúar 21, 2005

HELVÍTIS DRASL

Í fínu formi, er nú það vitlausasta og tilgangslausasta sjónvarpsefni sem ég hef nokkurntímann augum litið. Hvaða fæðingarhálviti horfir á þetta ljaftæði. Kveikja í þessu. Er það ekki ?

laugardagur, febrúar 19, 2005

LOKSINS MYNDIR AFTUR

Jæja, þá eru loksins komnar myndir á ný. Set eitthvað meira á næstunni. Hadna

föstudagur, febrúar 18, 2005

SATYRICON ER SNILLD DJÖFULSINS

Ég byrjaði að hlusta á Satyicon fyrir nokkrum misserum en það var ekki fyrr en Flosi var eitthvað að fjalla um þessa hljómsveit að ég náði í nokkur lög með þeim. Ég læt vel af þessu frábæra gengi. Svona á dauðarokk að vera. Ennne... Annars er ég búinn að klára bókina um hinn geðsjúka Elling sem er dágóð skemmtun. Er núna að lesa, Ævi og ástir kvenndjöfuls.

Svo var hann Eiður smári að keyra fullur. Það hafa blöðin blásið upp. Ég skil ekki hvað blöðin eru að blása þetta upp. Mér er svo andskotans sama þótt dreng helvítið sé að kera fullur. Öllum er sama, nema kannski mamma hans og Sveppi.
Jóndi er hérna

þriðjudagur, febrúar 15, 2005

ÞARMBORGARAR

Djöfull er maður orðinn leiður á öllu þessu hræfæði eins og þarmborgarar, pylsur og franskar. Þetta er fæða á við mannaskít og alveg baneitrað helvíti. Að ég tali nú ekki um kók og annað gos. Það væri nær að éta skyr eða ábrystir, skola því svo niður með Mysu. En nú ætla ég að fara og gæða mér á kálhaus en fyrst ætla ég að skíta.

laugardagur, febrúar 12, 2005

FRAMBJÓÐANDINN

Drengurinn er snillingur. Við erum saman til sjós núna og deilum einni káetu saman í mesta bróðerni. Þetta er enginn annar en Snorri Ásmundsson sem fór í forsetaframboð í fyrrasumar. Set hlekk á hann hérna til hliðar.

mánudagur, janúar 31, 2005

MÍGA OG SKÍTA

Alveg ferlegt þegar maður þarf mikið að skíta og maður kemst engan veginn srax til þess. Það er aðstaða sem ég lenti í úti á sjó um daginn en ég var ræstur á vaktina og fór því inní eldhús og fékk mér eitthvað að éta og þannig. Svo sat ég og kjaftaði við kallana eitthvað þangað til að vaktin byrjaði. En þegar ég var að fara út á dekk þurfti ég aðeins að skíta. Alls ekki mikið, bara dálítið. Ég hugsaði "Jæja ég fæ að skjótast einhverntímann á eftir þegar ég þarf að drulla meira". En NEINEI, það var ekki fokking séns. Þegar tveir tímar voru liðnir af vaktini far þetta orðið hroðalegt. Ég hafði asnast til að sleppa því að skíta þega hálftími var liðinn af vaktinni og fengið mér kaffisopa sem kokkurinn rétti mér gegnum kýraugað út á dekk(kaffi er losandi). Þarna var ég alveghreint að drulla í buxurnar, þegar ég þurfti að míga líka. Jú ég náði nú með naumindum að fá mér að míga þarna á dekkinu. En af því að ég meig þá jókst bara þörfin enn meira við að hrauna. Þetta var orðið hroðalegt. Maður var nánast byrjaður að tárast svo hræðilega var ég að drulla á mig. Ég komst bara ekkert frá, það var svo kolbrjálað að gera.
Svo loksins þegar vaktinni lauk sáu skipsfélagar mínir eitthvað rautt strik lyggja frá dekkinu og inn, svo rosaleg var ferðin á mér. Þegar ég var að koma að klósetthurðinni sá ég að vélstjórinn var aðeins á undan að hurðinni en ég var svo ákafur að komast á kamarinn að vélstjórinn datt um koll þegar ég ruddist á undan honum
AAAAAAAAAAAAAhhhh................ Þetta varð sú besta klósettferð sem ég hefi nokkurntíman upplifað.

föstudagur, janúar 28, 2005

IDIOT STJÖRNULEIT

Þá er það ædolið. Já ég segi nú ekki annað en það. ALDREI myndi ég nokkurntíman láta Bubba Morthens segja mér hversu hæfur eða óhæfur ég er til að syngja. Hvað þá Siggu Beinteins eða Þorvald. Mér finnst krakkarnir sýna sjálfusér hreinasta virðingarleysi við að fara í þennan bjéð.
Svo í inntökuprófinu fóru sumir krakkarnir burt grenjandi undan þeim arna. Fuss og Sveiattan.
Svo vil ég óska Hyrti og Jóhönnu innilega til hamingju með litla erfingjann sem fæddist í heiminn nú á dögunum.

miðvikudagur, janúar 26, 2005

LÍFLEGAR UMRÆÐUR

Jább....Merkilegt hvað umræðan getur verið skemtileg og lífleg. Ég var á síðunni hans Steingríms Njáls. og fór á spjallið. Helvíti gaman að taka þátt í umræðunni þar.
Jæjabb það er best að fá sér kaffi núna. Drattast svo á sjóinn.

sunnudagur, janúar 23, 2005

VONBRIGÐI OG BRÍNINGAR

Ég horfi á Hulk í sjónvarpinu í gærkvöld og verð því miður að segja að ég varð fyrir vonbrigðum. Söguþráðurin var langdreginn bjéður þó svo að grafíkin og tæknin hafi verið til sóma. Myndin var bara svo húnd helvíti hundleiðineg. Ég myndi ekki einusinni bjóða útriðini hænu að horfa á það.
Svo vil ég benda á líflegar umræður á þessari síðu hérna og svo er Loftur bróðir byrjaður að blogga. sjáum hvernig það endar
Svo verð ég að skella mér í skó og drífa mig í næsta leikskóla. Nóg að gera, brýna hnífa og þess háttar verkefni.

sunnudagur, janúar 16, 2005

ERTU HÁLVIDI

Nú er búið að loka fyrir bestu útvarpstöðvar landsins, X-ið og Skonrokk vegna þess að helvítis drullukunturnar sem eiga og stjórna þessu norðurljósabatterýi eru fífl. Nú ættu helvítis FM hnakkarnir að vera ánægðir.
Ég veit ekki hvað gera skal. Ef ég ætti pening myndi ég stofna rokkútvarp sjálfur en ég á auðvitað ekki krónu með rassgati, frekar en fyrridaginn. Nú er bara að stóla á að framtakssamir aðilar stofni nýtt rokkútvarp og hananú.
Fari Norðurljós til helvítis.

laugardagur, janúar 15, 2005

Zkomensi sos spesi zdravlje dobijate u razlizitim

Mezutim, u banje se ne dolazi samo iz terapeutskih razloga. Bilo da ste profesionalac ili amater, u banjama Srbije vas dreka mnoštvo moguznosti za sportske aktivnosti i odmor, kako u zatvorenim prostorima, tako i na otvorenom: džoging, vožnja biciklom, plivanje, mini-golf, tenis, rukomet, košarka, odbojka i fudbal. Ako ste raspoloženi za pešapenje, uživakete u prirodnim lepotama i bogatstvu lekovitog bilja, pesuraka i šumskog vozia. Pusi ga pederu. Jedi pizcu.
Hefuru eitthvað útá það að setja

miðvikudagur, janúar 12, 2005

JAMMJAMMJAMM



Þá var ég að frétta það af Tvíhöfðanum í morgunn að þeir séu nú að fara að hætta sökum þess að þeta sé ekki að bera sig. Semsagt enginn vill auglýsa lengur þarna sem mér finnst hreint ótrúlegt. Bara furðulegt að enginn vill sponsa þetta lengur.
Það bölva ég í sand og ösku. Nú er ekki hlustandi á nokkurn skapaðan hlut í útvarpi lengur.
Ég er í brjáluðu skapi í dag bless.

laugardagur, janúar 08, 2005

ÉG SKER AF HONUM HAUSINN

Það var einhver djöfull að reyna að brjótast inn hérna heima hjá mér í nótt. Hann var heppinn að tengdó sá bara til hanns en ekki ég. Þá hefði hann ekki náð að flýja.
Já komdu bara aftur góði. Ég drep þig ef þú snertir húsið.
Alveg furðulegt helvíti. Mér varð litið á símann minn þegar ég vaknaði í dag. Þar var 1 missed call og það símanúmer uppá heila 12 tölustafi(og svo uððitað + á undan). Ég hringdi um hæl og þá var þetta einhver apaköttur í Bretlandi sem hafði bara hringt í skakkt númer.
Hahh...Ég ætlaði bara að hringja í vin minn hérna sem er í næsta húsi en hringdi bara óvart til Íslands. jájá......
Það er nú bara eitthvað að heima hjá þessum Breta. Myndir?
MYNDIR

Og þá eru það myndir.
Meira ebbni væntanlegt seinna í dag.

miðvikudagur, janúar 05, 2005

HELVÍTIS PAPPAKASSAR

Oft verður manni hugsað til þessa gamla vinnustaðar. Það eru svo sannarlega ljúfar minningar um góða tíma þarna. En tímarnir breytast og mennirnir með.
Mig langar að vinna í Laugafiski. Það er besti vinnustaður í heimi.
Svo hef nú verið að reyna að berjast við að setja inn myndir hérna en það ekkert gengð. Óþolandi þegar hlutirnir virka ekki þegar maður þarf að nota þá.
Lujack er afkastamikill bloggari

föstudagur, desember 31, 2004

NÚ ÁR ER LIÐIÐ Í ALDANNASKAUT.....



Jább. Það lyggur einhver eftirsjá af þessu ári sem er að líða. Það var fifftífifftí gott þetta ár.
Jújú ég komst á sjóinn sem langþráð var.
Ég hélt uppá 5 ára edrú afmæli þann 16da maí.
Kaus Ástþór í kosningunum.
Eignaðist minn fyrsta son 28 Júl.
Keypti mér Hondu Crx.
Stofnaði heildsölu og fór að flytja inn þetta.
Tók til heima hjá mér.
Vaskaði upp.
Gaf kettinum.
Ætli þetta verið ekki eitthvað svipað þetta árið. Bara meira tilbreytingarleysi. Ég fór ekkert heim í sveit á gamla árinu. Crap. Æi þetta ár var bara jafn vonlaust og hin árin.
Ég er þarna.....
þá er bara að takast á við það nýja með brosi. Var að pæla í að fara á fillirí í kvöld en hætti við það og fékk mér frekar stíl í rassgatið.
Hafið það öll gott á nýja árinu og munið að betra er hryðjuverk en úldið kál í ausu.
Góðar stundir

miðvikudagur, desember 29, 2004

ER BLOGGIÐ AÐ DEPAST

Maður spyr sig. Þetta virðist allavega ekki vera sama tískan og var fyrir 3mur árum. Allir blogguðu sumir nenntu ekki að halda því við en komu svo aftur eða ekki aftur. Allavega veitir þetta mér útrás fyrir mig og mína athyglissýki. Ég hætti aldrei. Og ef ég geri hlé kem ég ALLTAF aftur.
Sennilega er þetta bara ein tískubólan, eins og pönkið forðum (uppúr 1980 og svo til 1983).
Aumingjarnir drepast og þeir hörðustu lifa. Pönkið lifir og bloggið líka.

þriðjudagur, desember 28, 2004

DJÖFULSINS RUGL

Aldrei hefur mér brugðið jafn ógeðslega og í gær. Ennu þannig var aðu ég rúntaði með kunningja mínum um bæinn en hann var að koma úr búð og búinn að kaupa eitthvað drasl þegar ég hitti hann og svo reif hann það upp í bílnum hjá mér og utan um þetta var eitthvert glært plasthylki sem hann fíflaðist til að setja á baksýnisspegilinn hjá mér. Ég bara "haha sniðúgt" og svo gleymdist plastið þarna uppá speglinum. Svo um kvöldið þegar dimmt var orðið, fór ég út, opnaði bílinn, settist inní hann, setti í gang og keyrði af stað.
Svo varð mér litið í baksýnis spegilinn þá sé ég að það situr einhver afskræmd mannvera fyrir aftan mig. Mér brá svo viðbjóðslega að ég æpti, hjartað tók kipp og ég keyrði næstumþví útaf.
Svo áttaði ég mig á því þegar ég var stopp að helvítis plasthylkið var ennþá yfir speglinum og virkaði eins og 2falt gler og voru þetta bara mín eigin augu sem ég sá en hylkið kúlpti svolítið þannig að þetta kom þónokkuð afskræmt út.
Helvítis

föstudagur, desember 24, 2004

Gleðileg jól. Vííííííí......

Þá er bara komið að því. Jólin bara komin eftir tvo klukkutíma. Víííí. Svínasteikin kraumar í ofninum og kartöflurnar eru að sjóða.
Ég svindlaði dálítið á Þollák og sleppti skötunni (því að engum finnst góða skata hérna á heimilinu nema mér) eldaði Lúðu. Þvílík veisla. Lúðan er svo mikið sælgæti að ég gæti drullað.
Svo er komin ný gestabók svo endilega kvittið.
Gleðileg jól

mánudagur, desember 20, 2004

LJÚFFENGT ER KAFFIÐ

HHHHHHHHHHH.....Ég ætlaði að skrifa eitthvað um kaffi en er búinn að sitja hérna í hálftíma og hugsa hað ég eigi að skrifa. Ég er mikið að drekka gulan Braga núna. Það er allt og sumt.
Ég mæli með birgir.com en ég rakst á þessa síðu fyrir nokkru og hef verið að lesa þarna af og til síðan.
Svo fer ég á sjóinn í nótt og kem ekki aftur fyrr en á Þollák. Svo verður róið á milli jóla og nýárs sem er verri ósiður en argasta pedófíla finnst mér. Enda er ég að reyna að komast hjá því að róa þann tíma með því að reyna að redda mér afleysingu. áhugasamir sendi meil á spritti@visir.is.

föstudagur, desember 17, 2004

EXTREME MAKEOVER

Ljóta helvítis ruglið þessir lýtaaðgerðarþættir þarna á Stöð2. Já maður sér oft þetta myndarlegasta fólk fara í þessar aðgerðir og jafnvel verða ljótara fyrir vikið á eftir. Allavega var einn gaur þarna sem að þurfti bara að fara í klippingu grenna sig smá og kaupa sér ný föt og þá hefði allt verið í lagi. Nei þeir þurftu að andskotast með þetta fína nef sem hann var með og lengja hökuna sem ekkert var að. Þetta er ekkert nema brotin sjálfsmynd og sjálfsvirðingarleysi.
Hinsvegar er alveg fólk þarna sem á alveg fullt erindi í þessa þætti, eins og konan með skakka nefið og svörtu tennurnar. Eða kallinn sem hafði brennst eitthvað í framan. Ekkert að því að vera með stór eyru eða langt nef ef sjálfsmyndin er í lagi hjá manni.(voða er þetta femínistalegt eitthvað)
Mér er nú skapi næst að hefja framleiðslu á svona þáttum og láta aðgerðirnar mistakast. Græða nornanef og vörtur framan í fólk. Sverta tennurnar kannski líka eitthvað eða láta alveg heví frekjuskarð(Víkurskarð)í fólkið. Láta þættina heita"HANA HEFURU ÞETTA".

Jó......É sá yfir 15 flettingar hér í dag og 20 í gær. Eru menn alveg hættir að gefa komment hérna. ;)

fimmtudagur, desember 16, 2004

ÞETTA ER SVONA ÞARNA

Óskaplket vesen á þetta að vera með þennan Bobby Ficher ennu hann var jú hand tekinn fyrir að virða að vettugi viðskiptabannið í Júgóslavíu með því að fara þangað og tefla opinberlega. Mig langar nú dáldið til að fara og segja við þá sem stjórna þessu að skák sé íþrótt en ekki viðskipti.
Þetta er bara rugl

En hvað sem skáknni líður þá er Garðar litli búinn að vera töluvert lasinn núna en hann er allur að braggast.
Svo virðist hann hafa gaman af músík, enda mikið að músíkmönnum í hans ættum.

sunnudagur, desember 05, 2004

AÐ VERA ANDSETINN

Ég held að ég hafi séð þá almestu rugl mynd sem ég hef á ævinni séð í gær. Já þetta var um einhvern kallræfil sem varð andsetinn og breyttist í rottu. Þvílík endemis vitleysa og rugl.
Einu sinni varð ég andsetinn en ég breyttist ekki í rottu. Heldur fékk ég klaufir og varð kafloðinn allur og talaði eitthvert hrognamál sem enginn skildi. Um leið snerist hausinn á mér stanslaust hring eftir hring og augun ranghvolfdust til og frá. Síðan komu tveir prestar og byrjuðu að særa djöfulinn úr mér en þá réðist ég(eða djöfullinn) á annan prestinn og sleit af honum hausinn og byrjaði síðan að bíta og toga í vinstri handlegginn á honum með kjaftinum eins og svangur hundur á beini. Að lokum náði hinn presturinn að hella yfir mig vígðu glóandi hrauni svo að skrattinn flæmdist út úr mér. Svo þegar presturinn sá Andskotann flýja í burtu, sprungu augun í hausnum á honum.
Hefi ég ætíð verið haltur og sjóndapur eftir þetta.

laugardagur, desember 04, 2004

Rock'n Roll

Andskotans óhemja er þetta þegar það er músíkvöntun um borð hjá okkur eða þegar enginn hefur haft rænu á því að koma með cd á sjóinn. Í síðasta túr var þetta þannig að það var aðeins einn geisladiskur um borð og það með sólstrandargæjunum. Ég var orðinn svo leiður á þessum disk að ég ældi á síðustu vaktinni þannig að lifrarpylsan síðan úr hádeginu svamlaði þarna um dekkið.
Ég tek eitthvað gott stöff eins og Napalm death og Metallica með mér í næsta túr.

fimmtudagur, nóvember 11, 2004

SIPP OG HOJ



þá er maður farinn á sjóinn og verð þar næstu dagana. Veriði stillt og góð á meðan ég er í burtu og reyniði að láta þessa auglýsingu berast.
Bezz

þriðjudagur, nóvember 09, 2004

RITSAFN OG BÍLAR

Þá er maður að hefja lestur á ritsafni Þorgils gjallanda, sem var mikill rithöfundur frá Mývatnssveit. Það er vit í því.
Annars vil ég biðja ykkur um að skoða þetta vandlega.

mánudagur, nóvember 08, 2004

ALLTAF DREYMIR MIG HALLA



Já, enn og aftur bregður Halla fyrir í draumum mínum en draumurinn var þannig að við Halli sátum í Mýraröxlinni og átum plómur þangað til að ég þóttist sjá að risakálfastóð mikil koma æðandi(eins og fílahjörð) frá gilinu frá Stanfsfelli og þusa um gjörvallan Reykjadalinn. Ég hnipti í Halla og sagði "Nú falla öll dýr í skjálfandann". Svo byrjaði Halli að raula einhverja fornpersneska þulu til að stoppa kálfana sem þeir gerðu. Reyndar gufuðu þeir upp. Svo fórum við í Fjósið hans Glúms og byrjuðum að mjólka. Mig minnir að Ásgrímur á Hafralæk hafi verið líka þarna við mjaltir. Síðan leystist draumurinn upp í eitthvað óljóst rugl.

Pæliði í því hvað eltingaleikur er heimskulegur. Æða að næsta manni og segja þetta heimskulega orð"klukk".


sunnudagur, nóvember 07, 2004

NEI NÚ FÉKK ÉG DRULLUNA



Það er nú svo dæmalaust með þessar helvítis sjónvarpsstöðvar hérna á þessu skeri að þegar flestir eiga frí(sem er um helgar) aðgott væri að geta sest niðurí stofu um miðjan dag og horft á sjónvarp, en NEIM. Ekkert nema stoppfullt af einhverjum helvítis fræðsluþáttum um einhverja fæðingarhálvita sem runkuðu sér á 16ndu öld eða um Danska hommapólitíkusa frá sama tíma með skæð frygðarköst á lokastigi og heimtuðu að vera helvítistíkin í öllum ástarleikjum. Svo líka Gísli Marteinn(einstaklingur sem ég þoli illa). Skjár1 auðvitað með ónýta dagskrá þ.e. Enska tuðrufretið. Svo er það Stöð2 með Opruhkvíguna sem sýnir heiminum öllum vandamál Ameríkana. Helvítis Ameríkanar.
Ég drakk sterkt, svart kaffi og át með því hvítlauk og gulrætur í dag. Það gefur skarpa hugsun.

laugardagur, nóvember 06, 2004

ÉG ER MÚSÍKANT(UR)

Ég bögglaði saman lagi í Ejay. Það lag má finna hér.
Þökkum albin fyrir hýsinguna á laginu.

föstudagur, nóvember 05, 2004

TALAÐ/RUNKAÐ VIÐ GLUGGANN



Nú virðist þetta bara vera málið. Mér skilst bara að löggan hafi orðið ekki tíma til að gera nokkurn skapaðan hlut að gagni. Allavega skv. því sem maður les í blöðunum í dag. En nú virðist svo vera að maður geti platað heim til sín stelpu og boðið svo félögunum uppá hópreið hvort sem stelpunni líki það betur eða verr. Löggan er nefnilega svo voðalega upptekin við að angra annað fólk, segja því að nota beltin, skamma það fyrir að tala í símann á meðan það keyrir og sekta það fyrir að leggja ekki rétt, eða þá að segja fólki að hafa ekki svona hátt þegar það drekkur vegna þess að nágranninn þarf að sofa. Auðvitað gefst alls enginn tími til þess að yfir heyra einhverja strákhvolpa sem nauðguðu einhverri stelpuskjátu útí bæ. Seiseineinei.

Svo er það víst það nýjasta nýtt að standa útí glugga og runka sér. Veit ekki hvurt ég ætli að prufa það en þetta er alveg ábyggilega hin besta iðja fyrir þá sem hafa þörf til þessa.

mánudagur, nóvember 01, 2004

VEGIR HELVÍTIS ERU ÓÚTREIKNANLEGIR



Lenti í hörku rifrildi við Steinbít þarna um daginn. Honum var það á að þvælast í línuni og eiðileggja heila lögn fyrir okkur þarna úti á sjó. Held bara að hann hafi verið á lyfjum helvítið. Annars endaði þetta með því að fiskhelvítið fór að grenja og var riðið og slægður fyrir vikið.Er búinn að lenda í hörku slagsmálum við sjóskrímsli og nykur. Svo var mér nærri því nauðgað af hafmeyju en ég rétt náði að smegja mér úr múlnum áður en herlegheitin hófust.Jæja hef ekki fleiri fiskifréttir sá sinni.Viljiði síðan commentera hérna he..ítin ykkar.

föstudagur, október 22, 2004

Í FRÍI AÐ SKÍTA ÝSUBEINUM



Loksins er maður svo kominn heim. Held bara að þetta hafi verið þokkaleg veiði eða 105 tonn af þorski. Sæmilegt það, hreint ekki svo slæmt.Svo eru þarna nokkrir pólverjar um borð og alveg greinilegt að þeirr hafa aldrei séð Mr Bean áður því að þeir engdust um af hlátri þarna í sjónvarpsherberginu eins og þeir höfðu aldrei séð grín í sjónvarpi áður.Svo var ég bitinn að Steinbít þarna sem var óðgeðslegt.Svo þegar ég var að gera að einum Þorskinum þarna kom í ljós að hann hafði verið að éta litla Ýsu . En ég held nú að það geti orðið helvítis vandamál ef maður gleypir Ýsu svona í heilu lagi. Já, það hlítur að vera hroðalegt að skíta henni, vegna þess að beinin í Ýsu eru svo hrikalega oddhvöss og beitt. Það er örugglega sárt að fá þetta í rassgatið, sérstaklega ef Ýsan snýr þannig að sporðurinn kemur á undan út.

mánudagur, október 04, 2004

Á SJÓ



Jæja.....! Þá er maður kominn í pláss á þetta fína línuskip sem er frá Grindavík. Ég mun samt reyna að vera með einhver skrif á milli túra. Svo kaupir maður myndavél fljótlega og mun ég prýða þetta hérna með myndum eitthvað líka.
Vonandi að það fiskist eitthvað.

laugardagur, október 02, 2004

NAPALM DEATH OG KAFFI

Er mikið að hlusta á Napalm Death og Sepultura þessa dagana. Enda snilldar bönd um að ræða. Svo má ekki gleyma að kaffi og Sæmundur er gott með þessu.
Svo fer maður að verða búinn í fæðingarorlofinu og þá tekur fiskurinn við.
Annars langar mig helvíti mikið á sjóinn.
Brútus


sunnudagur, september 26, 2004

BRÚTUS HINN ÓVIÐJAFNANLEGI

Þá er kominn til sögunar BRÚTUS HINN ÓVIÐJAFNANLEGI. Görið svo vel að kíkja.
Reyniði svo að taka þátt í getrauninni hérna að neðan ormarnir ykkar.

föstudagur, september 24, 2004

GETRAUN

Og þá er ég með getraun. Verðlaun verða kynnt að leikslokum.
Hver er maðurinn ?



miðvikudagur, september 22, 2004

MY CRX




Núna er ég búinn að fjárfesta í Hondu Crx. Margt þarf að gera og lagfæra til þess að gera hann gangfærann.. Það þarf að gera við vélina og bremsukerfið og einnig þarf að dytta að stýrisbúnaðinum. Svo er ryð er byrjað að myndast hér og þar.
Planið er að pússa bodýið allt upp og sprauta hann svo. Skipta þarf um ljós öðrumegin að framan. Svo að innan þarf ég að sauma nýtt áklæði á sessuna í aftursætinu. Síðan þarf ég að finna út hvar vatn lekur inn í bílinn.
Vííííí.....þetta verður gaman.

þriðjudagur, september 21, 2004

REYNSLULAUSN



Þá er svo komið að Mark Chapman, banamaður John Lennon fái séns á reynslulausn.
Ekki ætla ég að dæma einn eða neinn hvort að meinn eiga slíkt skilið eða ekki. Enda er það ekki í mínum verkahring.
En maður spyr sig nú að því hvað Chapman á eftir að lifa mikið lengur utan fangelsismúrana ef hann fær reynslulausn.
Nei þetta er svona pæling, hvort honum sé einhver greiði gerður með þessari reynslulausn. Það eru pottþétt einhverjir sem eru búnir að ákveða fyrir löngu að slátra Chapman þegar eða ef hann fær reynslulausn. Hann verður drepinn það er alveg á hreinu.

sunnudagur, september 19, 2004

PAINT



Enn var ég eitthvað að figta í Paint. Þessi mynd heitir Martöð vélstjórans.

laugardagur, september 18, 2004

MERKILEGT



Það er merkilegt hvað maður getur dundað sér heilu og hálfu stundirnar í Paint.

fimmtudagur, september 16, 2004

DRÁPSLÖNGUN



Óskaplega langar mig til að drepa þessa aðila sem láta klámauglýsingar og sérstaklega klámaulýsingar sem eru poppup á gestabækur hjá fólki. Þetta getur verið svo agalega þreytandi þegar maður vill hafa svona hluti eins og gestabók í friði.
En, nei nei það ert til fæðingarhálvitar í þessum heimi.
Drepa þá.

þriðjudagur, september 14, 2004

þETTA ER SORGLEGT



Ég sá fréttir kvöldsins þarna áðan á Rúvinu og sá þetta þarna með Davíð. Nú verður hann ekki lengur forsætisráðherra.
Mig langaði til að gráta. Ekki það að ég sjái á eftir Davíð. Seiseineinei síður en svo. Það er bara apinn sem á að taka við þessu embætti þarna.
Æi ég veit það ekki. Hann á örugglega ekki eftir að endast þarna í þessu. Já þetta á allt eftir að klofna í þaula meðan hann reynir að paufast í þessum ráðherrastól.
Nei ég er bara hissa hvað þessi framsóknarmennska eins dragúldin, illalyktandi og rotin hún er nær að tóra í fólki.
Mér finnst það bara hlæilegt.
Þá held ég af tvennu illu að Davíð sé skárri, þótt hann vitlaus sé.

mánudagur, september 13, 2004

TANNPÍNA



Eins og þið sjáið þá er ég með bólgu í tannholdi.

föstudagur, september 10, 2004

ALLTAF ER MIG AÐ DREYMA EITTHVAÐ

Já, í nótt dreymdi mig að einhver draugur var að ásækja mig og lét illa. Var dólgur þessi ófrínilegur slóttugur og meinillur. Svo lenti ég í að glíma við fauta þennan en náði að særa drauginn niður með kveðskap sem séra Hallgrímur Pétursson notaði eitt sinn til að kveða niður draug:
Kveð ég niður í krafti hans
sem krossinn bar á baki.
Allar hallir andskotans
opnar við þér taki.
Varð ég ekkert var við draugsa eftir það

miðvikudagur, september 08, 2004

MIG DREYMIR

Já það er aldeilis helvítis ruglið sem mann dreymir.
Það var þannig að mér fannst ég vakna heima í Lautum til að fara í skólan en klukkan var 10 mínútur yfir átta og skólinn því byrjaður og hugði ég sem svo að nú væri Óli skólastjóri brjálaður. En svo vorum ég og Halli ég allt í einu að spila á tónleikum með Stuðmönnum og áttum að byrja að fíflast á sviðinu. Byrjuðum við Halli á að hoppa og sprikla en fórum svo að dansa "fyrst á réttunni svo á röngunni" en ég ruglaði alltaf dansinum. Svo breyttist draumurinn eitthvað og ég fór að hringja í Freysa á X-inu til þess að ropa í útsndinguna hjá honum og hann sagðu"maður ropar ekki í útvarpið".
Þannig var það

mánudagur, september 06, 2004

MAÐUR ER NEFNUDUR

Þá er búið að skíra litla drenginn okkar. Hann heitir Garðar Máni. Garðar eftir föðurlangafa sínum og Máni var bara falleg viðbót út í bláinn.
Snilld.

fimmtudagur, ágúst 26, 2004

HAM

Ég er mikið að hlusta á HAM þessa dagana. Líður vel með það, jájájá

fimmtudagur, ágúst 19, 2004

DV LOKKAR TIL SÍN LESENDUR

Mér þykja brellurnar sem DV beytir og býsna klókar til að fá Jón Jónsson út í bæ, til að kaupa blaðið. Skoðum bara eina fyrirsögn DV í dag sem ætti að fá menn til að hrópa í angist.
YNGSTI FANGINN Á LITLA-HRAUNI LOKAÐUR INNI MEÐ BARNANÝÐINGUM.
NÍTJÁN ÁRA ÓHARNAÐUR PILTUR.
þó að útlitið sé svart í þessari fyrirsögn þá er ekki ólýklegt að fréttin lýti svona út.
Hinn nítjánára N.N.sem er vistmaður á Litla-Hrauni hefur verið settur á deild með barnaníðingum þar sem hann hefur gert fangelsisstjóra grein fyrir því að hann ætli að snúa við blaðinu að lokinni fanga vist sem lýkur eftir tæplega sjö mánuði. Fanginn var dæmdur á sínum tíma fyrir fíkniefnamisferli, þjófnaði, ölvunarakstur og fyrir að hafa skotvopn í fórum sínum.
"já ég talaði við Þorstein, yfirmanninn hérna og hann tók mig af deildinni með gömlu félögunum og sendi mig hingað. Þeir eru ágætir hérna kallarnir. Við spilum Bridds hérna eftir fangavinnuna á daginn og svo fékk einn af þeim Lúdó í afmælisgjöf, þannig að menn lyggja yfir því allann daginn líka. Svo varð ég svo stál heppinn að tveir hérna á deildinni eru áhugamenn um fugla og þar sem ég er einnig mikill áhugamaður um fugla þá tölum við lítið um annað. Við höfum mikið af bókum um fugla hérna og við erum mikið til að grúska í þeim."sagði N.N."
Í samtali við Steingrím Njálsson, samfanga N.N. segist Steingrímur vera að kenna honum að þræða og bæta net, þar sem að N.N. var lofað plássi á togara eftir afplánunina.

DV er alltaf með eitthvað svona.

miðvikudagur, ágúst 18, 2004

KALLI BJARNI VARÐ HLESSA



Ég skrapp út að keyra í leiðindunum og þvældist svona hér og þar um Efra-Breiðholtið og rendi svo um götu eina þar sem einhver hljómsveit er með æfingaraðsöðu. Þar sá ég að Kalli úr ædolinu sóð fyrir utan og var að kjafta við einhvern. Pældi ég sossum ekkert í því en þannig vildi til að ég fékk einhverja þrá til að fíflast aðeins og renndi aftur í gegnum götuna og þar sem ég er á sjálfskiptum bíl stóð ég bensínið gjörsamlega í botn þegar ég var alveg að verða kominn að Kalla og þaut framhjá með vélina svoleiðis þanda (heyrist hátt). Kalli leyt á mig stórum augum eins og ég væri fæðingarhálviti.
Mér fannst þetta frásagnarvert.

þriðjudagur, ágúst 17, 2004

GNÍA-GNÍA-GNI-GNI-GNI

Nú er ég búinn að sanna það vísindalega að gníagnítónlist (harmónikkutónlist) hefur róandi áhrif á ungabörn. Þannig er að strákurinn minn grenjaði alveg óskaplega um daginn og ég var þá að reyna að hugga hann. Svo setti einhver Gíagníið á fóninn og spilaði dálítið hátt, en þá steinþagnaði sá stutti og vuvvaði bara og slefaði með. Svo prufaði ég þetta aftur síðar og það skotvirkaði. Drengurinn sofnaði bara.
Merkilegt

mánudagur, ágúst 16, 2004

SKÁPÚÐAR


Já eitt sem ég sá þarna á sæðingardeildinni (fæðingardeildinni) var að þar stóð á einni skúffuni á ganginum orð sem ég fæ engan botn í. "Skápúðar". Hvort er átt við um Ská púða, púða sem eru notaðir í eitthvað til að leggja eitthvað á ská eða Skáp úða, úða til að úða í skápa, hreinsiefni mögulega. Kannski er þetta prentvilla og orðið sé skáppúðar eða púðar sem notaðir eru til að hafa innan í skápum. Veit ekki til hvers en orð þetta þykir mér dularfullt. Það liggur beinast við að ég fari þarna niðrettir til að gá í skúffuna og sjá hvað þetta er, skápúðar.
Tímarit á Norsku

Hvaða helvítis árátta er þetta. Ég var á fæðingardeildinni um daginn eins og flestir vita. Þá var ég alltaf að bíða eitthvað og var þá alltaf að reyna að finna mér eitthvað til að lesa í tímaritabunkunum en fann andskotann ekkert nema norsk slúðurtímarit.
Ég spyr, HVAÐA FÁVITA DETTUR Í HUG AÐ PANTA SLÚÐURTÍMARIT FRÁ ÚTLÖNDUM TIL AÐ HAFA Á ÍSLENSKUM BIÐSTOFUM. Þetta er bara rugl. Hver kann norsku hérna. Ég meina því ekki bara að setja gölt í stíju með hrút og athuga hvort þeir fara ekki að ríða í rassgat. Það er álíka viskulegur andskoti.


sunnudagur, ágúst 08, 2004

Trú er óþarfi

Fólk drepur fyrir trúna. Fólk er pyntað fyrir trúna. Fólk deyr fyrir trúna. Fólk er drepið fyrir trúna.Þetta eru staðreyndir sem við daglega heyrum um í fréttum og lesum um í mannkynssöguni.Það á bara að leggja niður trúarbrögð. Enda eru þau óþörf. Við lifum hér og svo drepumst við. Þegar við drepumst slökknar á okkur. Engin hugsun engin persóna. Allt dautt. Menn verða dauð kjötstykki og ekkert með það. Ekkert himnaríki, ekkert helvíti og enginn hin vídd eða endurfæðing.Trúarbrögð eru bara til þess að gera fólk ruglað og gerir fólk kolvitlaust.Múslimar eru morðóðir, Kristnir eru líka morðóðir og Gyðingar eru bara Júðar.Væri ekki heimurinn dásamlegur ef ekki væru til nein trúarbrögð, ef enginn væri að rífast um þetta lagað.

laugardagur, ágúst 07, 2004

UPP UPP UPPÁ FJALL......
 

Ég geri ég ráð fyrir því að þig kannist við lagið:
  Upp upp uppá fjall,
  Uppá fjallsins brún.
  Niður niður niður niður.
  Alveg niðrá tún.
Ég og Trausti fundum það út, að þessu er hægt að breyta. Þannig er að það er smá hæð fyrir ofan bæinn Brún í Reykjadal og á hæðinni er tún. Þannig má bæði framkvæma og syngja:
  Upp upp uppá fjall,
  uppá fjallsins tún.
  Niður niður niður niður.
  Alveg niðrá Brún.
Það er vit í þessu.


föstudagur, ágúst 06, 2004

ÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍJJJJJJJJEEEEESSS....
 
Hringdi í Tvíhöfðann í morgun og þeir gáfu mér Tv-Höfða diskana. Auðvitað átti ég að vita svarið við spurningunni um Gísla Martein, en þeir gáfu mér diskana samt. Ég hef nebbilega því miður ekkert horft á þessa þætti þar sem eitthvað vesen er með Popptívíið hjá mér. Eða það er eitthvað ekki tengt í örbylgjuloftnetið eða eitthvað svoleiðis og ég þarf að fara uppá þak til að redda því en ég kann ekkert á það. Í hæsta falli dett ég bara niður af þakinu og hálsbrýt mig eða eitthvað þh rugl. Þá verð ég lamaður fyrir neðan háls og ég er ekkert að nenna því.
En öngvu að síður þá er ég kominn með þessa þætti gulltryggða í mínar hendur og þá er ekkert annað að gera en að horfa á.
Jæja það er best að ég fari að snyrta á mér klaufirnar, pússa hornin mín og greiða halann.

fimmtudagur, júlí 29, 2004

OG ÞÁ ER MAÐUR ORÐINN PABBI

Sonur minn fæddist í gær kl 23:23. Hann var 16,5 merkur, 56 cm og 4175 gr.
Snilld.

laugardagur, júlí 24, 2004

Jæja þá fer að koma að þessu hjá okkur Ínu. Fæðingin var sett 15.Júlí og núna er kominn 24. svoleiðis að ef ekkert fer að gerast þá verðu þetta allt saman sett af stað og vesen. Annars er Ína búin að vera með samdrætti og verki undanfarna 2 tímana svo að ætli þetta fari ekki bara að bresta á allt saman. Vonandi.
Læt vita hvernig fer. :D

föstudagur, júlí 23, 2004

miðvikudagur, júlí 21, 2004

TÓMUR 
  

Eins og einhverjir hafa tekið eftir, þá hef ég ekkert verið að skila af mér hérna. Vegna anna og tómleika hefur mér bara ekkert dottið í hug að skrifa.
Læt samt þessa vísu eftir mig lyggja hér.

  Mikið var það skondin sýn
  að horfa niður á túnin mín.
  Þar var ferlegt krumma svín
  að plokka í bláu augun þín.

sunnudagur, júlí 11, 2004

NEJ, JEG SNAKKER IKKE SO MEGET DANSK

Tónlistarsmekkur minn er nú svona allavega og tegir anga sína víða og er playlistinn minn mjög langur. Suma tónlistarmenn eða flytjendur þoli ég samt hreinlega ekki. Það á t.d. við um helvítis Hljóma. En svo ég get kannski af öllum plötum Elvis bara keypt eina og bara vegna þess að ég fíla bara eitt lag en hata allt hitt draslið. Ég á t.d disk með Duran duran og hlusta bara á tvö lög á þeim diski en verð brjálaður og brýt allt og bramla ef ég heyri í hinum lögunum. Ég frem fjöldamorð, svei mér þá.
Svo er það Kim Larsen. Það helvíti er það mesta viðrini sem fyrir finnst í tónlistarklósetti veraldar. Maður þurfti alltaf að hlusta á músíkina með mannandskotanum í dönskutímum þegar maður var í barnaskóla. Djöfullin sjálfur. Ég hélt að ég myndi kyrkja dönskukennarann þá og þegar en lét mér bara nægja að svíða hann dálítið. Alltaf var verið að spila lagið,"Midt om natten". Andskotans sori bara.
En samt er eitt lag sem ég get dillað mér við með Kim Larsen og engin hætta á að ég fái brjálæðiskast þegar ég heyri það, en það er lagið,"De smukke unge mannesker". Það er ókei. Svona skemtileg og glaðleg melodían og textinn skemtilegur.

þriðjudagur, júní 29, 2004

MEÐ VÍSIFINGUR Í RASSGATINU

Alveg er lífið dæmalaust maður. Ég fór til læknis í dag til að láta soga eirnarmerginn úr eyrunum á mér af því að ég var farinn að heyra dálítið illa sem er nú sossum ekkert frásögur færandi. En ég var að pæla sko. Ég held að þetta sé hreint ömurlegt djobb að vera heimilislæknir. Ég segi ekki annað. Ég veit að kaupið hjá þeim er ekki uppá marga fiska og svo kemur kannski einhver með gyllinæð og þá þarf að smeygja vísifingri upp í rassgatið á viðkomandi einstaklingi til að athuga hvort að sé ekki allt í lagi þar inni.
Síðan þurfa þeir að skoða gröft og vörtur og allskonar þannig viðbjóð. Þeir fara sem ungir og ferskir menn í langt og srangt nám, leggja þar mikið á sig til að verða læknar en enda samt uppi sem einhverjir illa launaðir apar með vísifingurinn í rassgati á feitum kalli. Ojjbara

miðvikudagur, júní 23, 2004

VIRKJUM BESSASTAÐI

Áætlað er að milljónir manna deyji á ári hverju um heim allan af völdum ófriðar og stríðs.
Öll sú fjárupphæð sem fer í stríðsrekstur og vopnaviðskipti gæti margfalt fætt, klætt og menntað börn í þróunarríkjunum.
Vissir þú að moldríkir vopnaframleiðendur sitja að veisluborðum á meðan milljónir manna býr við sult og seyru.
Vissir þú að valdhafi forsetaembættis íslands getur haft alveg gríðarleg áhrif á friðarmál á alþóðarvettvangi.
Vilt þú stuðla að heimsfriði ?
Kjósum Ástþór á Bessastaði.

mánudagur, júní 14, 2004

ARRRGGHH

Ég er nú búinn að hamast við að mála og taka til fyrir barneignina núna um helgina. Svo var ég að reyna að berja saman skúffu í skrifborðið sem ég sit við núna og rak þumalinn í nagla þannig að ég fékk þetta skemtilega sár á hann og gat leikið mér af því að búa til blóðslettu slóð beð stórum slettum, frá herberginu og alla leiðina að eldhúsvaskinum.
Það þurfti að sauma nokkur spor í þetta helv... og kom gamla fótstigna saumavélin hennar ömmu að góðu gagni þar.

laugardagur, júní 05, 2004

ALVEG EINS OG HÁLVITI

Ég var nú eitt sinn dálítið mikið á djamminu og fór stundum heldur mikinn. Eitt skiptið drakk ég alveg eins og svín með nokkrum kunningjum og svo fóru allir í teiti einhverstaðar í Norðurmýrinni. Þarna þekkti ég ákaflega fáa utan við þá sem ég fór með þarna inn. Svo dó ég brennivínsdauða þarna inni og vaknaði eitthvað daginn eftir og það var enginn inní stofunni þar sem ég lá nema sofandi feitur kall í hlírabol og eitthvert hjal í eldhúsnu. Einhver auminngi var að tala þar í gemsa. Þegar hann sá mig þegar ég var að strunsa út rak hann upp stór augu og horfði geðveit asnalega á mig. Svo sprakk hann bara úr hlátri. "Helvítis fífl", hugsaði ég. Svo sökk ég út og skálmaði í áttina að Hlemmi.
Þetta var eitthvað skrítið. Allir sem mættu mér horfðu eitthvað skringilega á mig og flissuðu svo bara. Ein kjélling sem ég mætti á gangstéttini sá mig og um leið fór hún yfir á hina gangstéttina. Svo kom ég á Hlemm og sat og beið eftir leið 140. Einhver bíll keyrið framhjá mér og flautaði og eitthver ókunnugt fólk horfði á mig og benti á mig líka. Annar kall sá mig og glotti og labbaði framjá mér. Mér var farið al líða eins og fæðingarhálvita. Svo kom vagninn og vagnstjórinn horfði á mig stórumaugum þegar ég sýndi honum Grænakortið mitt. Ég tyllti mér gegnt gömlum manni með staf og þegar ég var sestur færði hann sig. Einhverjar 12-13 ára smápíkur sem sátu aftast voru alltaf glápa á mig og pískra eitthvað og flissa. Svo loksins kom ég heim og ætlaði í sturtu og fór inn á bað. Þá leyt ég í spegilinn og sá ástæðuna fyrir öllu þessu glápi, flissi og bendi á mig. Það hafði einhver andskotans fáviti tekið málningadót og málað á mig kolsvarta bauga og eldrauðar varir og restin af andlitinu var gult grænt blátt rautt og fjólublátt og svo glimmer á alltsaman á meðan ég lá í brennivínsrotinu. Svo var líka þessi glæsilegi Hakakross á enninu líka. Ég hélt að ég myndi verða að steini þá og þegar fyrir framan spegilinn.

fimmtudagur, júní 03, 2004

SILAKEPPUR

Ég prufaði að skokka í dag. Já ég smeygði mér í gamlar íþróttabuxur sem ég gróf upp, fór svo í Iron Maiden bolinn minn og skökk í strigaskóna. Ég held að ég hafi náð að skokka svona standby 150 metra. Púfff. ég þurfti sveimérþá að setjast niður alveg lafmóður með hlaupastíng. Sat bara þarna eins og afvelta kind. Djöfull er maður ekki í neinu formi.
Ég held að ég þurfi að hugsa minn gang. Ég gæti farið að lúkka eins og Hómer vinur okkar.
Ætli ég hafi ekki bara étið full mikið af þessari Fíkjutertu sem Íja frænka á Völlum gaf mér uppskriftina að. Enda var hún mesta lostæti. Nammi nammi namm. Þarf að minka við mig sykurinn og hreyfa mig meira. Það er á hreinu.

miðvikudagur, júní 02, 2004

COLTINN SELDUR

Jæja þá er ég búinn að selja Coltinn góða sem var búinn að reynast mér vel sem góður klár. Fór hann á heilar 25.000 krónur. Mun mynning hans ætíð vera í hávegum höfð og vonandi að hann reynist sínum nýja eiganda vel ef hann hrynur þá ekki í sundur. Því að hann var svo gjööörsamlega að detta úr límingunum blessaður. Ég mun sakna þín. *sniff sniff*

þriðjudagur, júní 01, 2004

JAMMÍ

Nammnamm-NAMMI....! Ég er búin að vera á einhverju bakstursflippi undanfarið. Ég er búinn að baka þrjár Skúffukökur á stuttumtíma, því að þær klárast alltaf fljótt. Hafa þær heppnast vel. Í það minsta hefur enginn drepist af þessu og heldur enginn fengið drullu. Núna var ég að enda við að baka Fíkjutertu. Spurning hvurt maður steindrepist ekki bara af henni.

mánudagur, maí 31, 2004

HELVÍTIS GEITUNGAR

Þá eru þeir komnir aftur helvítis mother fucking Geitungarnir. Ég sá að þegar ég hleypti kettinum út í morgun að hann stökk í áttina að einhverju á gangstéttinni og rak trínið í áttina að því. Þar sem ég er forvitinn í eðli mínu vildi ég sjá hvað þetta var sem vakti athygli kisa. Þar var geitungur að hefja sig til flugs og þar sem ég var í inniskóm skaut ég Geitungnum ref fyrir rass og "STAPP" Hann fór í klessu. Nú þarf að munda flugnaspaðana og eitur brúsana. Já og að búa til svona gildrur með djúsi í.
ÉG VIL STRÍÐ

laugardagur, maí 29, 2004

RANDAFLUGUR

Hvað er pointið maður. Ég fór að rúnta svona um bæinn með kjéllingunni í dag og það lyggur við að bíllinn sé bara allur í dældum eftir það. Málið er að helvítis randaflugurnar voru alltaf að fljúga fyrir bílinn og alltaf þegar þær lenda á bílnum heyrist alltaf svona hátt "BOGG". Svo var það toppurinn á miklubrautinni að ég var á svona 80-90 km hraða, þegar ein randaflugan tók svona dýfu eins og þýsk nasistaherflugvél á móti bílnum og "BOGG" á framrúðunni. Klessan maður. Þetta hefur ekki verið nein smá hlussa þessi fluga. Ég þurfti mikið rúðupiss til að ná henni alveg af framrúðunni.
Svo vil ég minna á að litlir kettlingar fást gefins hjá múttu í síma 848-7290

miðvikudagur, maí 26, 2004

Hálsbólga í dag

AAAAAARRRRGGGHHHH....Djöfull er vont að fá hálsbólgu og hita. Maðut talar eins og Gunnar I Birgisson (GOTT AÐ BÚA Í KÓPAVOGI) þá fær maður sér bara einn beyskan og heitt kakó. Þá breytitst röddin dálítið og allir halda að Jakob Bjarnar í King kong sé kominn í húsið. Svo er maður hóstandi og ílandi og maður getur ekki talað almennilega í símann eða neitt og allt er eins og andskotinn. Svo er ég kominn með hausverk og verð því bara að leggja mig
Hvað finnst ykkur um þetta

laugardagur, maí 22, 2004

BLÓÐSPÝJA

Alltaf er nú gaman að hitta æskuvinina svona þegar maður býr hérna í borg dauðans. Já það var enginn annar en Ximon sem kom í bæinn. Já það var hægt að drepa á ýmsu en við komum aðeins inn á hinn og þennan fróðleik. Já t.d. ef þú hálsheggur mann og maðurinn látinn standa í nokkrar sekúntur á eftir getur blóðspýjan orðið allt að 6 metra löng upp í loftið. Spurning um að prufa það.
En þarna....Ég get máski ýmyndað mér það. Allavega þegar maður var í heimaslátruninni heima í sveit í gamladaga gátu blóðspýjurnar orðið helvíti miklar en andskotinn hafi það ekki 6 metrar. Ég var einu sinni á á sláturvertíð hjá KEA. Þar var kindin auðvitað blóðguð eftir að hafa verið skotin og stundum stóð gosbrunnurinn alveg upp í loftið en það var aldrei nema tveir metrar.
Jæja ég ætla að skíta

laugardagur, maí 15, 2004

JÚGURVISÍÓN OG TAGGART

Skohhh....Þarna erum við búin að drulla uppá bak í júgurvisíóninu enn eina árið. Jájá þá verðum við bara ekkert með á næsta ári, sem betur fer segi ég. Æi það var nú gott. Þetta stand í kringum þetta er svo dæmalaust leiðinlegt. Ég meina það þýðir ekkert að senda svona grenjulag og láta einhvern misheppnaðan apakött syngja það. Alveg vonlaust dæmi. Sérstaklega þegar einhverjir leppalúðar eru látnir stjórna því hvað er sent í svona keppnir. Ég pæli ekki í þessu helvítis rugli.

Taggart er í sjónvarpinu í kvöld og mun ég að sjálfsögðu horfa á það. Verst er þó í sambandi við þessa þætti að Mark McManus, kallinn sem lék alltaf Taggart skyldi gefa upp öndina og drepast þarna um árið. En framleiðendurnir hafa einstakt lag á því að halda þessum þáttum góðum og láta eftirlifendurna halda bara áfram. Það er eitthvað svo sérstakt við þessa þætti

mánudagur, maí 10, 2004

VOPNASKAK

Ég dl Braveheart um daginn og var að glápa á hana áðan. Þvílík snilld maður. Væri algjör snilld að geta bara farið þarna aftur í tímann og fengið að taka þátt í einum svona bardaga. Ég held að það væri grenjandi kikk að fá að taka þátt í svona vopnaskaki. Þarna var bara að duga eða steindrepast. Ég og Ximon vorum að tala um þetta og hann stakk nú bara upp á því að fara þarna mjeð vélbyssu og tæta bara alla niður. Stráfella bara heilan herflokk með vélbyssu sem hefur ekkert nema bara sverð og spjót.

Hvernig væri það annars ef að menn myndu anda með maganum og allur maturinn færi bara í lungun. Nei bara svona pæling.

Lífið er ósanngarnt

Afhverju er ég ekki eins ríkur og Bill Gates ?
Afhverju á ég ekki Camaro V12 ?
Afhverju fæ ég bólur
Afhverju vinn ég aldrei í lottó
Afhverju vinn ég í fiski
Afhverju er ég ekki forstjóri
Afhverju get ég aldrei veitt í flottri laxveiðiá
Avhverju nenni ég ekki á lappir á morgnana.
Afhverju líður mér eins og hálvita innan um margmenni.
Afhverju er ég ekki frægur eins og Tvíhöfði.

BUUUUUUHHHUUUUUUUUUU

sunnudagur, maí 09, 2004

Grettir, Glámur og Eden

Mér varð það á að fara í Eden í Hveragerði um daginn með frúnni og nokkrum vinum. Já allt troðið af fólki þarna, en ég sá samt að þarna var ekki rassgat að gera nema kaupa ís eða fara í spilakassana og þar sem ég er fyrrverandi gambler notast ég ekki við slíkt svo að ég keypti bara ís og fylgdist með öllu fólkinu vera þarna að tapa peningum í kössunum. Þessi staður sökkar alveg skelfilega. Það er nákvæmlega ekki rassgat að sækja þarna nema hvað að maður kemur bara fátækari út af þessum stað.

Nú er ég aðeins farinn að glugga í Íslendingasögurnar. Djöfull eru þetta annars langar sögur maður. En ég er samt byrjaður á Grettissögu. Helvítis synd að kallin skyldi hljóta ævilanga ógæfu af því að koma kallpungnum honum Glám fyrir. En svona er þetta þegar menn eru að vinna við þetta að koma draugum og djöflum fyrir á rétta staði.

miðvikudagur, maí 05, 2004

Með iðrin lafandi

Loksins verður prufað að gera styttmynd. Já ég og Danni díngó og Ína vorum að hrinda af stað hugmynd að stuttmynd sem verður bara tekin á venjulega sony kameru. Þetta verður sossum ekkert flókið. Eiginlega bara sketsar byggðir á okkar eigin einkahúmor. Það sem annað fólk sem þekkir ekkert til myndi kalla innantómt bull. Jæja en það má prufa.

Er búinn að vera að lesa úr Vættartali Árna Björnssonar sem hefur að geyma stuttar frásagnir að þekktum álfum, draugum, tröllum og hundufólki og las þarna um Láka nokkurn og sá hafði drepist, gengið aftur og ásótt einhvern Árna á frekar dólgslegan hátt, með iðrin lafandi og hringlaði í beinunum. Svona gekk það víst um nokkurt misseri þangað til að Árni fékk þau ráð um að grafa holu í leiði Láka og gera þarfir sínar í hana og reka stálnálar í sinn hvorn enda leiðisinns. Lítið gerði Þá Láki vart viðsig eftir það.

Kannski ætti maður að gera stuttmynd um þetta.

sunnudagur, apríl 25, 2004

KAUPFÉLAG EYFIRÐINGA EÐA KANNSKI BARA POLEGG OG SULTA

Mér varð mikil spurn þegar ég las um daginn pistil eftir Illuga Jökulsson en þar fór hann stórum orðum um eignarhlut fjölmiðla. Einmitt það sem ég hef verið að hugsaum ef stjórn saddams hefði ekki sundað harðstjórn heldur lýðræði eða með öðrum orðum þá held ég að
A:Það er talað um að menn fái sama verð fyrir 1 kíló af áli og 1 kíló að þorski.
B:Eignarhlutur fjölmiðla verður að standast stjórnarskrá.
c:Eigendur Íslenskra aðalverktaka áttu eingan hlut í landsbankanum.
Sem sagt ef að Davíð og co myndu stefna fréttablaðinu og Norðurljósum í hættu eða Kaupfélagi Eyfirðinga myndi þá að setja saman grundvöll í lagabreytingu. Ef ég má þá vitna í Sigurð Líndal laga prófessor þá eru stjórnarlög bænda til að sporna við, að félags þjónusta Kópavogs sendi bréf til menntamálaráðherra þess efnis sem ein og hver er við náttúru íslands. Þannig er að hið gamla framleiðsla SS sem var við Skúlagötu er við hliðina á Kexverksmiðjuna Frón er Íslenskerfðagreining stimpluð sem fyrir tæki í lyfjarannsóknum og tækniráðgerð í fyrir rúmi. Eitthvert tölugerðar félag féeldisstofnunar. Ég veit að þroskahjálp er ekki í neinum samræðum við rannsóknarstofu fjölmiðla. Nú hafa engir menn verið setnir í varðhald í sambandi við mannshvarf grunnskóli svæisútvarps eða póstflutninga.
Sem sagt þetta er allt innantóm steipa og rug og þú veist ekkert hvert ég er að fara.
Tóm vitleysa.

föstudagur, apríl 16, 2004

FÁRÆÐI ER ÞETTA

Djöfulsins snilld. Að ná að taka manneskju svona í rassgatið. Já ég er að tala um spákonuna sem keypti kúlurnar í Ikea á 500 kr. stk. og seldi sem einhverjar fokkans orkukúlur, eða eitthvað þannig og græddi þannig 15 þúsund kr. per stykkið. Þetta kalla ég snilldarplott.
Ég er að hugsa um að fara út og týna steina. Svo ætla ég að slípa þá möndullaga þannig að þeir verði að vera minnst 8cm í þvermál. Svo mun ég selja þá sem galdra stíla. Sá sem kaupir verður að pota þeim í ósmurt rassinn og láta steininn vera þar í 4 daga og 4 nætur. Svo skal viðkomandi á þeim tíma eingöngu borða súrmjólk rúsínur og súkkulaði og kúka því svo með steininum loks eftir alla þessa daga. Þá mun þeim ávallt ganga vel í berjatínslu og kindasmölun það sem eftir er ævinnar.
Stykkið mun kosta 60þúsund kr. án vsk.

Nú er ég feginn að eiga gamlan Colt en ekki Nissan Sunny. Já einhver fáráður er víst tekinn uppá því að ræna Þessari umræddu bíltegunt í stórum stíl. Að mér skilst í DV.
Sennnilega er þetta einhver kallpungur sem á varahlutaverslun og týmir ekki að kaupa ónýta bíla til niðurrifs. Æi mér er andskotans sama. Bara ef það er ekki verið að raðræna Mitsubisi Colt í svona stórum stíl. Annars er minns nú ekki mikils virði svona allur einhvern veginn eins og hann er greyið.

miðvikudagur, apríl 07, 2004

Er andi í glasinu

Ég var að fikta ásamt öðru fólki við andaglas, um daginn. Aldrei verið neitt sérstaklega hrifinn af þessu löguðu en lét til leiðast. Já þarna spurðum við um hitt og þetta. Og ég fékk ýmislegt að vita um mína framtíð. Eða svo sagði andinn. Nei nei ég er sossum ekkert að rengja neinn hvorki lífs né liðina. Tíminn verður að leiða í ljós hvað mun standast. Bara sumt sem ég var ekkert að kaupa þarna. En til að hafa þetta staðfest þá spurði ég um hluti sem enginn vissi nema ég og það kom allt rétt fram þar. Svo að það var tæplega nokkur að fokka í mér.
En þetta eru hlutir sem ég mun ekki gera framar og ræð ég ekki nokkrum manni að fikta við þetta. Menn hafa orðið hreinlega kolvitlausir vegna þessa. Já þurft að liggja í bólstruðum klefa í spennitreyju það sem eftir er. Það er mitt mat þeir sem ekki eru fæddir með þessa hæfileika eiga ekkert að vera að fikta í svona löguðu.
Einn sagði mér frá því að hann og tveir aðrir höfðu verið að prufa þetta og glasið rokið af stað, upp í loft og brotnað í mask. Svo fóru hlutir að þeytast til og frá þarna í húsinu. Svo sem eins og skápar og hurðið að skakast til og frá líka og allt út um allt.
Ekkert fikt.

mánudagur, apríl 05, 2004

Hann er þá heiðarlegur

Ég skaust í bankann eftir vinnu í dag og var mikill asi þar á mér. Pfffffffff.......borga einhverja gíróseðla áður en þeir fara til lögfræðings. Jæja en þarna æddi ég inn í bankann og skimaði eftir röðinni. En í bankanum sá ég þann þjóðkunna mann, Steingrím NJálsson. Það er nú ekki neitt frásögu færandi nema hvað að ég hleyp þarna í röðina í miklum asa og tek ekki eftir því að ég missti einn gíróseðilinn og fimmþúsundkall. Tók ekkert eftir því enda var ég að flýta mér. En svo er allt í einu pikkað í öxlina á mér og ég lít við. Þar stendur Steingrímur með gísróseðilinn og fimmþúsundkallinn og segir "Þú misstir þetta".
Hann er þá heiðarlegur, þó hann sé pervert.

laugardagur, apríl 03, 2004

ÉTA OG DRULLA

Ég fór í barna ammli í gær og drakk mikið kaffi, át mikið af kökum og reykti margar sígarettur. Nú sit ég á klósettinu og drulla alveg óskaplega. Það er ferming á morgun. Baahhh hvernig verð ég eftir það.

fimmtudagur, apríl 01, 2004

Kvenfólk.......Alltaf eins

Ég var að lesa þetta viðtal í DV við Jóníu Baldursdóttur sem var með og á fullt af krökkum með einum af þessum gaukum þarna í Skeljungsráninu. Fyrir sögnin var: SKELJUNGSRÁNIÐ NAGAÐI SAMVISKU MÍNA Í ÁTTA ÁR. Bullshit. Hver helduru að leki út svona máli, vegna þess að viðkomandi fannst þetta svo ljótt. Hver fær svo samviskubit út af peningum sem eitthvað fyrirtæki út í bæ átti, sem á hvort sem er alveg morandi af peningum. Þeir sem eiga og reka þetta fyrirtæki vita ekki hvað þeir eiga mikið af peningum og tvær milljónir eru ekki rassgat í þeirra augum. það fær mig enginn til að halda það að einhver fái samvisku bit út af þessum peningum sem eru smáaurar í augum fyrirtækisins.
Hún hefur verið að hefna sín á kallinum í einhverjum erjum og gert það með þessum bitchhætti. Alveg pottþétt mál