blank'/> blank'/> +++Aldrei að hafa gaman af lífinu+++

laugardagur, desember 04, 2004

Rock'n Roll

Andskotans óhemja er þetta þegar það er músíkvöntun um borð hjá okkur eða þegar enginn hefur haft rænu á því að koma með cd á sjóinn. Í síðasta túr var þetta þannig að það var aðeins einn geisladiskur um borð og það með sólstrandargæjunum. Ég var orðinn svo leiður á þessum disk að ég ældi á síðustu vaktinni þannig að lifrarpylsan síðan úr hádeginu svamlaði þarna um dekkið.
Ég tek eitthvað gott stöff eins og Napalm death og Metallica með mér í næsta túr.

fimmtudagur, nóvember 11, 2004

SIPP OG HOJ



þá er maður farinn á sjóinn og verð þar næstu dagana. Veriði stillt og góð á meðan ég er í burtu og reyniði að láta þessa auglýsingu berast.
Bezz

þriðjudagur, nóvember 09, 2004

RITSAFN OG BÍLAR

Þá er maður að hefja lestur á ritsafni Þorgils gjallanda, sem var mikill rithöfundur frá Mývatnssveit. Það er vit í því.
Annars vil ég biðja ykkur um að skoða þetta vandlega.

mánudagur, nóvember 08, 2004

ALLTAF DREYMIR MIG HALLA



Já, enn og aftur bregður Halla fyrir í draumum mínum en draumurinn var þannig að við Halli sátum í Mýraröxlinni og átum plómur þangað til að ég þóttist sjá að risakálfastóð mikil koma æðandi(eins og fílahjörð) frá gilinu frá Stanfsfelli og þusa um gjörvallan Reykjadalinn. Ég hnipti í Halla og sagði "Nú falla öll dýr í skjálfandann". Svo byrjaði Halli að raula einhverja fornpersneska þulu til að stoppa kálfana sem þeir gerðu. Reyndar gufuðu þeir upp. Svo fórum við í Fjósið hans Glúms og byrjuðum að mjólka. Mig minnir að Ásgrímur á Hafralæk hafi verið líka þarna við mjaltir. Síðan leystist draumurinn upp í eitthvað óljóst rugl.

Pæliði í því hvað eltingaleikur er heimskulegur. Æða að næsta manni og segja þetta heimskulega orð"klukk".


sunnudagur, nóvember 07, 2004

NEI NÚ FÉKK ÉG DRULLUNA



Það er nú svo dæmalaust með þessar helvítis sjónvarpsstöðvar hérna á þessu skeri að þegar flestir eiga frí(sem er um helgar) aðgott væri að geta sest niðurí stofu um miðjan dag og horft á sjónvarp, en NEIM. Ekkert nema stoppfullt af einhverjum helvítis fræðsluþáttum um einhverja fæðingarhálvita sem runkuðu sér á 16ndu öld eða um Danska hommapólitíkusa frá sama tíma með skæð frygðarköst á lokastigi og heimtuðu að vera helvítistíkin í öllum ástarleikjum. Svo líka Gísli Marteinn(einstaklingur sem ég þoli illa). Skjár1 auðvitað með ónýta dagskrá þ.e. Enska tuðrufretið. Svo er það Stöð2 með Opruhkvíguna sem sýnir heiminum öllum vandamál Ameríkana. Helvítis Ameríkanar.
Ég drakk sterkt, svart kaffi og át með því hvítlauk og gulrætur í dag. Það gefur skarpa hugsun.

laugardagur, nóvember 06, 2004

ÉG ER MÚSÍKANT(UR)

Ég bögglaði saman lagi í Ejay. Það lag má finna hér.
Þökkum albin fyrir hýsinguna á laginu.

föstudagur, nóvember 05, 2004

TALAÐ/RUNKAÐ VIÐ GLUGGANN



Nú virðist þetta bara vera málið. Mér skilst bara að löggan hafi orðið ekki tíma til að gera nokkurn skapaðan hlut að gagni. Allavega skv. því sem maður les í blöðunum í dag. En nú virðist svo vera að maður geti platað heim til sín stelpu og boðið svo félögunum uppá hópreið hvort sem stelpunni líki það betur eða verr. Löggan er nefnilega svo voðalega upptekin við að angra annað fólk, segja því að nota beltin, skamma það fyrir að tala í símann á meðan það keyrir og sekta það fyrir að leggja ekki rétt, eða þá að segja fólki að hafa ekki svona hátt þegar það drekkur vegna þess að nágranninn þarf að sofa. Auðvitað gefst alls enginn tími til þess að yfir heyra einhverja strákhvolpa sem nauðguðu einhverri stelpuskjátu útí bæ. Seiseineinei.

Svo er það víst það nýjasta nýtt að standa útí glugga og runka sér. Veit ekki hvurt ég ætli að prufa það en þetta er alveg ábyggilega hin besta iðja fyrir þá sem hafa þörf til þessa.

mánudagur, nóvember 01, 2004

VEGIR HELVÍTIS ERU ÓÚTREIKNANLEGIR



Lenti í hörku rifrildi við Steinbít þarna um daginn. Honum var það á að þvælast í línuni og eiðileggja heila lögn fyrir okkur þarna úti á sjó. Held bara að hann hafi verið á lyfjum helvítið. Annars endaði þetta með því að fiskhelvítið fór að grenja og var riðið og slægður fyrir vikið.Er búinn að lenda í hörku slagsmálum við sjóskrímsli og nykur. Svo var mér nærri því nauðgað af hafmeyju en ég rétt náði að smegja mér úr múlnum áður en herlegheitin hófust.Jæja hef ekki fleiri fiskifréttir sá sinni.Viljiði síðan commentera hérna he..ítin ykkar.

föstudagur, október 22, 2004

Í FRÍI AÐ SKÍTA ÝSUBEINUM



Loksins er maður svo kominn heim. Held bara að þetta hafi verið þokkaleg veiði eða 105 tonn af þorski. Sæmilegt það, hreint ekki svo slæmt.Svo eru þarna nokkrir pólverjar um borð og alveg greinilegt að þeirr hafa aldrei séð Mr Bean áður því að þeir engdust um af hlátri þarna í sjónvarpsherberginu eins og þeir höfðu aldrei séð grín í sjónvarpi áður.Svo var ég bitinn að Steinbít þarna sem var óðgeðslegt.Svo þegar ég var að gera að einum Þorskinum þarna kom í ljós að hann hafði verið að éta litla Ýsu . En ég held nú að það geti orðið helvítis vandamál ef maður gleypir Ýsu svona í heilu lagi. Já, það hlítur að vera hroðalegt að skíta henni, vegna þess að beinin í Ýsu eru svo hrikalega oddhvöss og beitt. Það er örugglega sárt að fá þetta í rassgatið, sérstaklega ef Ýsan snýr þannig að sporðurinn kemur á undan út.

mánudagur, október 04, 2004

Á SJÓ



Jæja.....! Þá er maður kominn í pláss á þetta fína línuskip sem er frá Grindavík. Ég mun samt reyna að vera með einhver skrif á milli túra. Svo kaupir maður myndavél fljótlega og mun ég prýða þetta hérna með myndum eitthvað líka.
Vonandi að það fiskist eitthvað.

laugardagur, október 02, 2004

NAPALM DEATH OG KAFFI

Er mikið að hlusta á Napalm Death og Sepultura þessa dagana. Enda snilldar bönd um að ræða. Svo má ekki gleyma að kaffi og Sæmundur er gott með þessu.
Svo fer maður að verða búinn í fæðingarorlofinu og þá tekur fiskurinn við.
Annars langar mig helvíti mikið á sjóinn.
Brútus


sunnudagur, september 26, 2004

BRÚTUS HINN ÓVIÐJAFNANLEGI

Þá er kominn til sögunar BRÚTUS HINN ÓVIÐJAFNANLEGI. Görið svo vel að kíkja.
Reyniði svo að taka þátt í getrauninni hérna að neðan ormarnir ykkar.

föstudagur, september 24, 2004

GETRAUN

Og þá er ég með getraun. Verðlaun verða kynnt að leikslokum.
Hver er maðurinn ?



miðvikudagur, september 22, 2004

MY CRX




Núna er ég búinn að fjárfesta í Hondu Crx. Margt þarf að gera og lagfæra til þess að gera hann gangfærann.. Það þarf að gera við vélina og bremsukerfið og einnig þarf að dytta að stýrisbúnaðinum. Svo er ryð er byrjað að myndast hér og þar.
Planið er að pússa bodýið allt upp og sprauta hann svo. Skipta þarf um ljós öðrumegin að framan. Svo að innan þarf ég að sauma nýtt áklæði á sessuna í aftursætinu. Síðan þarf ég að finna út hvar vatn lekur inn í bílinn.
Vííííí.....þetta verður gaman.

þriðjudagur, september 21, 2004

REYNSLULAUSN



Þá er svo komið að Mark Chapman, banamaður John Lennon fái séns á reynslulausn.
Ekki ætla ég að dæma einn eða neinn hvort að meinn eiga slíkt skilið eða ekki. Enda er það ekki í mínum verkahring.
En maður spyr sig nú að því hvað Chapman á eftir að lifa mikið lengur utan fangelsismúrana ef hann fær reynslulausn.
Nei þetta er svona pæling, hvort honum sé einhver greiði gerður með þessari reynslulausn. Það eru pottþétt einhverjir sem eru búnir að ákveða fyrir löngu að slátra Chapman þegar eða ef hann fær reynslulausn. Hann verður drepinn það er alveg á hreinu.

sunnudagur, september 19, 2004

PAINT



Enn var ég eitthvað að figta í Paint. Þessi mynd heitir Martöð vélstjórans.

laugardagur, september 18, 2004

MERKILEGT



Það er merkilegt hvað maður getur dundað sér heilu og hálfu stundirnar í Paint.

fimmtudagur, september 16, 2004

DRÁPSLÖNGUN



Óskaplega langar mig til að drepa þessa aðila sem láta klámauglýsingar og sérstaklega klámaulýsingar sem eru poppup á gestabækur hjá fólki. Þetta getur verið svo agalega þreytandi þegar maður vill hafa svona hluti eins og gestabók í friði.
En, nei nei það ert til fæðingarhálvitar í þessum heimi.
Drepa þá.

þriðjudagur, september 14, 2004

þETTA ER SORGLEGT



Ég sá fréttir kvöldsins þarna áðan á Rúvinu og sá þetta þarna með Davíð. Nú verður hann ekki lengur forsætisráðherra.
Mig langaði til að gráta. Ekki það að ég sjái á eftir Davíð. Seiseineinei síður en svo. Það er bara apinn sem á að taka við þessu embætti þarna.
Æi ég veit það ekki. Hann á örugglega ekki eftir að endast þarna í þessu. Já þetta á allt eftir að klofna í þaula meðan hann reynir að paufast í þessum ráðherrastól.
Nei ég er bara hissa hvað þessi framsóknarmennska eins dragúldin, illalyktandi og rotin hún er nær að tóra í fólki.
Mér finnst það bara hlæilegt.
Þá held ég af tvennu illu að Davíð sé skárri, þótt hann vitlaus sé.

mánudagur, september 13, 2004

TANNPÍNA



Eins og þið sjáið þá er ég með bólgu í tannholdi.

föstudagur, september 10, 2004

ALLTAF ER MIG AÐ DREYMA EITTHVAÐ

Já, í nótt dreymdi mig að einhver draugur var að ásækja mig og lét illa. Var dólgur þessi ófrínilegur slóttugur og meinillur. Svo lenti ég í að glíma við fauta þennan en náði að særa drauginn niður með kveðskap sem séra Hallgrímur Pétursson notaði eitt sinn til að kveða niður draug:
Kveð ég niður í krafti hans
sem krossinn bar á baki.
Allar hallir andskotans
opnar við þér taki.
Varð ég ekkert var við draugsa eftir það

miðvikudagur, september 08, 2004

MIG DREYMIR

Já það er aldeilis helvítis ruglið sem mann dreymir.
Það var þannig að mér fannst ég vakna heima í Lautum til að fara í skólan en klukkan var 10 mínútur yfir átta og skólinn því byrjaður og hugði ég sem svo að nú væri Óli skólastjóri brjálaður. En svo vorum ég og Halli ég allt í einu að spila á tónleikum með Stuðmönnum og áttum að byrja að fíflast á sviðinu. Byrjuðum við Halli á að hoppa og sprikla en fórum svo að dansa "fyrst á réttunni svo á röngunni" en ég ruglaði alltaf dansinum. Svo breyttist draumurinn eitthvað og ég fór að hringja í Freysa á X-inu til þess að ropa í útsndinguna hjá honum og hann sagðu"maður ropar ekki í útvarpið".
Þannig var það

mánudagur, september 06, 2004

MAÐUR ER NEFNUDUR

Þá er búið að skíra litla drenginn okkar. Hann heitir Garðar Máni. Garðar eftir föðurlangafa sínum og Máni var bara falleg viðbót út í bláinn.
Snilld.

fimmtudagur, ágúst 26, 2004

HAM

Ég er mikið að hlusta á HAM þessa dagana. Líður vel með það, jájájá

fimmtudagur, ágúst 19, 2004

DV LOKKAR TIL SÍN LESENDUR

Mér þykja brellurnar sem DV beytir og býsna klókar til að fá Jón Jónsson út í bæ, til að kaupa blaðið. Skoðum bara eina fyrirsögn DV í dag sem ætti að fá menn til að hrópa í angist.
YNGSTI FANGINN Á LITLA-HRAUNI LOKAÐUR INNI MEÐ BARNANÝÐINGUM.
NÍTJÁN ÁRA ÓHARNAÐUR PILTUR.
þó að útlitið sé svart í þessari fyrirsögn þá er ekki ólýklegt að fréttin lýti svona út.
Hinn nítjánára N.N.sem er vistmaður á Litla-Hrauni hefur verið settur á deild með barnaníðingum þar sem hann hefur gert fangelsisstjóra grein fyrir því að hann ætli að snúa við blaðinu að lokinni fanga vist sem lýkur eftir tæplega sjö mánuði. Fanginn var dæmdur á sínum tíma fyrir fíkniefnamisferli, þjófnaði, ölvunarakstur og fyrir að hafa skotvopn í fórum sínum.
"já ég talaði við Þorstein, yfirmanninn hérna og hann tók mig af deildinni með gömlu félögunum og sendi mig hingað. Þeir eru ágætir hérna kallarnir. Við spilum Bridds hérna eftir fangavinnuna á daginn og svo fékk einn af þeim Lúdó í afmælisgjöf, þannig að menn lyggja yfir því allann daginn líka. Svo varð ég svo stál heppinn að tveir hérna á deildinni eru áhugamenn um fugla og þar sem ég er einnig mikill áhugamaður um fugla þá tölum við lítið um annað. Við höfum mikið af bókum um fugla hérna og við erum mikið til að grúska í þeim."sagði N.N."
Í samtali við Steingrím Njálsson, samfanga N.N. segist Steingrímur vera að kenna honum að þræða og bæta net, þar sem að N.N. var lofað plássi á togara eftir afplánunina.

DV er alltaf með eitthvað svona.

miðvikudagur, ágúst 18, 2004

KALLI BJARNI VARÐ HLESSA



Ég skrapp út að keyra í leiðindunum og þvældist svona hér og þar um Efra-Breiðholtið og rendi svo um götu eina þar sem einhver hljómsveit er með æfingaraðsöðu. Þar sá ég að Kalli úr ædolinu sóð fyrir utan og var að kjafta við einhvern. Pældi ég sossum ekkert í því en þannig vildi til að ég fékk einhverja þrá til að fíflast aðeins og renndi aftur í gegnum götuna og þar sem ég er á sjálfskiptum bíl stóð ég bensínið gjörsamlega í botn þegar ég var alveg að verða kominn að Kalla og þaut framhjá með vélina svoleiðis þanda (heyrist hátt). Kalli leyt á mig stórum augum eins og ég væri fæðingarhálviti.
Mér fannst þetta frásagnarvert.

þriðjudagur, ágúst 17, 2004

GNÍA-GNÍA-GNI-GNI-GNI

Nú er ég búinn að sanna það vísindalega að gníagnítónlist (harmónikkutónlist) hefur róandi áhrif á ungabörn. Þannig er að strákurinn minn grenjaði alveg óskaplega um daginn og ég var þá að reyna að hugga hann. Svo setti einhver Gíagníið á fóninn og spilaði dálítið hátt, en þá steinþagnaði sá stutti og vuvvaði bara og slefaði með. Svo prufaði ég þetta aftur síðar og það skotvirkaði. Drengurinn sofnaði bara.
Merkilegt

mánudagur, ágúst 16, 2004

SKÁPÚÐAR


Já eitt sem ég sá þarna á sæðingardeildinni (fæðingardeildinni) var að þar stóð á einni skúffuni á ganginum orð sem ég fæ engan botn í. "Skápúðar". Hvort er átt við um Ská púða, púða sem eru notaðir í eitthvað til að leggja eitthvað á ská eða Skáp úða, úða til að úða í skápa, hreinsiefni mögulega. Kannski er þetta prentvilla og orðið sé skáppúðar eða púðar sem notaðir eru til að hafa innan í skápum. Veit ekki til hvers en orð þetta þykir mér dularfullt. Það liggur beinast við að ég fari þarna niðrettir til að gá í skúffuna og sjá hvað þetta er, skápúðar.
Tímarit á Norsku

Hvaða helvítis árátta er þetta. Ég var á fæðingardeildinni um daginn eins og flestir vita. Þá var ég alltaf að bíða eitthvað og var þá alltaf að reyna að finna mér eitthvað til að lesa í tímaritabunkunum en fann andskotann ekkert nema norsk slúðurtímarit.
Ég spyr, HVAÐA FÁVITA DETTUR Í HUG AÐ PANTA SLÚÐURTÍMARIT FRÁ ÚTLÖNDUM TIL AÐ HAFA Á ÍSLENSKUM BIÐSTOFUM. Þetta er bara rugl. Hver kann norsku hérna. Ég meina því ekki bara að setja gölt í stíju með hrút og athuga hvort þeir fara ekki að ríða í rassgat. Það er álíka viskulegur andskoti.


sunnudagur, ágúst 08, 2004

Trú er óþarfi

Fólk drepur fyrir trúna. Fólk er pyntað fyrir trúna. Fólk deyr fyrir trúna. Fólk er drepið fyrir trúna.Þetta eru staðreyndir sem við daglega heyrum um í fréttum og lesum um í mannkynssöguni.Það á bara að leggja niður trúarbrögð. Enda eru þau óþörf. Við lifum hér og svo drepumst við. Þegar við drepumst slökknar á okkur. Engin hugsun engin persóna. Allt dautt. Menn verða dauð kjötstykki og ekkert með það. Ekkert himnaríki, ekkert helvíti og enginn hin vídd eða endurfæðing.Trúarbrögð eru bara til þess að gera fólk ruglað og gerir fólk kolvitlaust.Múslimar eru morðóðir, Kristnir eru líka morðóðir og Gyðingar eru bara Júðar.Væri ekki heimurinn dásamlegur ef ekki væru til nein trúarbrögð, ef enginn væri að rífast um þetta lagað.

laugardagur, ágúst 07, 2004

UPP UPP UPPÁ FJALL......
 

Ég geri ég ráð fyrir því að þig kannist við lagið:
  Upp upp uppá fjall,
  Uppá fjallsins brún.
  Niður niður niður niður.
  Alveg niðrá tún.
Ég og Trausti fundum það út, að þessu er hægt að breyta. Þannig er að það er smá hæð fyrir ofan bæinn Brún í Reykjadal og á hæðinni er tún. Þannig má bæði framkvæma og syngja:
  Upp upp uppá fjall,
  uppá fjallsins tún.
  Niður niður niður niður.
  Alveg niðrá Brún.
Það er vit í þessu.


föstudagur, ágúst 06, 2004

ÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍJJJJJJJJEEEEESSS....
 
Hringdi í Tvíhöfðann í morgun og þeir gáfu mér Tv-Höfða diskana. Auðvitað átti ég að vita svarið við spurningunni um Gísla Martein, en þeir gáfu mér diskana samt. Ég hef nebbilega því miður ekkert horft á þessa þætti þar sem eitthvað vesen er með Popptívíið hjá mér. Eða það er eitthvað ekki tengt í örbylgjuloftnetið eða eitthvað svoleiðis og ég þarf að fara uppá þak til að redda því en ég kann ekkert á það. Í hæsta falli dett ég bara niður af þakinu og hálsbrýt mig eða eitthvað þh rugl. Þá verð ég lamaður fyrir neðan háls og ég er ekkert að nenna því.
En öngvu að síður þá er ég kominn með þessa þætti gulltryggða í mínar hendur og þá er ekkert annað að gera en að horfa á.
Jæja það er best að ég fari að snyrta á mér klaufirnar, pússa hornin mín og greiða halann.

fimmtudagur, júlí 29, 2004

OG ÞÁ ER MAÐUR ORÐINN PABBI

Sonur minn fæddist í gær kl 23:23. Hann var 16,5 merkur, 56 cm og 4175 gr.
Snilld.

laugardagur, júlí 24, 2004

Jæja þá fer að koma að þessu hjá okkur Ínu. Fæðingin var sett 15.Júlí og núna er kominn 24. svoleiðis að ef ekkert fer að gerast þá verðu þetta allt saman sett af stað og vesen. Annars er Ína búin að vera með samdrætti og verki undanfarna 2 tímana svo að ætli þetta fari ekki bara að bresta á allt saman. Vonandi.
Læt vita hvernig fer. :D

föstudagur, júlí 23, 2004

miðvikudagur, júlí 21, 2004

TÓMUR 
  

Eins og einhverjir hafa tekið eftir, þá hef ég ekkert verið að skila af mér hérna. Vegna anna og tómleika hefur mér bara ekkert dottið í hug að skrifa.
Læt samt þessa vísu eftir mig lyggja hér.

  Mikið var það skondin sýn
  að horfa niður á túnin mín.
  Þar var ferlegt krumma svín
  að plokka í bláu augun þín.

sunnudagur, júlí 11, 2004

NEJ, JEG SNAKKER IKKE SO MEGET DANSK

Tónlistarsmekkur minn er nú svona allavega og tegir anga sína víða og er playlistinn minn mjög langur. Suma tónlistarmenn eða flytjendur þoli ég samt hreinlega ekki. Það á t.d. við um helvítis Hljóma. En svo ég get kannski af öllum plötum Elvis bara keypt eina og bara vegna þess að ég fíla bara eitt lag en hata allt hitt draslið. Ég á t.d disk með Duran duran og hlusta bara á tvö lög á þeim diski en verð brjálaður og brýt allt og bramla ef ég heyri í hinum lögunum. Ég frem fjöldamorð, svei mér þá.
Svo er það Kim Larsen. Það helvíti er það mesta viðrini sem fyrir finnst í tónlistarklósetti veraldar. Maður þurfti alltaf að hlusta á músíkina með mannandskotanum í dönskutímum þegar maður var í barnaskóla. Djöfullin sjálfur. Ég hélt að ég myndi kyrkja dönskukennarann þá og þegar en lét mér bara nægja að svíða hann dálítið. Alltaf var verið að spila lagið,"Midt om natten". Andskotans sori bara.
En samt er eitt lag sem ég get dillað mér við með Kim Larsen og engin hætta á að ég fái brjálæðiskast þegar ég heyri það, en það er lagið,"De smukke unge mannesker". Það er ókei. Svona skemtileg og glaðleg melodían og textinn skemtilegur.

þriðjudagur, júní 29, 2004

MEÐ VÍSIFINGUR Í RASSGATINU

Alveg er lífið dæmalaust maður. Ég fór til læknis í dag til að láta soga eirnarmerginn úr eyrunum á mér af því að ég var farinn að heyra dálítið illa sem er nú sossum ekkert frásögur færandi. En ég var að pæla sko. Ég held að þetta sé hreint ömurlegt djobb að vera heimilislæknir. Ég segi ekki annað. Ég veit að kaupið hjá þeim er ekki uppá marga fiska og svo kemur kannski einhver með gyllinæð og þá þarf að smeygja vísifingri upp í rassgatið á viðkomandi einstaklingi til að athuga hvort að sé ekki allt í lagi þar inni.
Síðan þurfa þeir að skoða gröft og vörtur og allskonar þannig viðbjóð. Þeir fara sem ungir og ferskir menn í langt og srangt nám, leggja þar mikið á sig til að verða læknar en enda samt uppi sem einhverjir illa launaðir apar með vísifingurinn í rassgati á feitum kalli. Ojjbara

miðvikudagur, júní 23, 2004

VIRKJUM BESSASTAÐI

Áætlað er að milljónir manna deyji á ári hverju um heim allan af völdum ófriðar og stríðs.
Öll sú fjárupphæð sem fer í stríðsrekstur og vopnaviðskipti gæti margfalt fætt, klætt og menntað börn í þróunarríkjunum.
Vissir þú að moldríkir vopnaframleiðendur sitja að veisluborðum á meðan milljónir manna býr við sult og seyru.
Vissir þú að valdhafi forsetaembættis íslands getur haft alveg gríðarleg áhrif á friðarmál á alþóðarvettvangi.
Vilt þú stuðla að heimsfriði ?
Kjósum Ástþór á Bessastaði.

mánudagur, júní 14, 2004

ARRRGGHH

Ég er nú búinn að hamast við að mála og taka til fyrir barneignina núna um helgina. Svo var ég að reyna að berja saman skúffu í skrifborðið sem ég sit við núna og rak þumalinn í nagla þannig að ég fékk þetta skemtilega sár á hann og gat leikið mér af því að búa til blóðslettu slóð beð stórum slettum, frá herberginu og alla leiðina að eldhúsvaskinum.
Það þurfti að sauma nokkur spor í þetta helv... og kom gamla fótstigna saumavélin hennar ömmu að góðu gagni þar.

laugardagur, júní 05, 2004

ALVEG EINS OG HÁLVITI

Ég var nú eitt sinn dálítið mikið á djamminu og fór stundum heldur mikinn. Eitt skiptið drakk ég alveg eins og svín með nokkrum kunningjum og svo fóru allir í teiti einhverstaðar í Norðurmýrinni. Þarna þekkti ég ákaflega fáa utan við þá sem ég fór með þarna inn. Svo dó ég brennivínsdauða þarna inni og vaknaði eitthvað daginn eftir og það var enginn inní stofunni þar sem ég lá nema sofandi feitur kall í hlírabol og eitthvert hjal í eldhúsnu. Einhver auminngi var að tala þar í gemsa. Þegar hann sá mig þegar ég var að strunsa út rak hann upp stór augu og horfði geðveit asnalega á mig. Svo sprakk hann bara úr hlátri. "Helvítis fífl", hugsaði ég. Svo sökk ég út og skálmaði í áttina að Hlemmi.
Þetta var eitthvað skrítið. Allir sem mættu mér horfðu eitthvað skringilega á mig og flissuðu svo bara. Ein kjélling sem ég mætti á gangstéttini sá mig og um leið fór hún yfir á hina gangstéttina. Svo kom ég á Hlemm og sat og beið eftir leið 140. Einhver bíll keyrið framhjá mér og flautaði og eitthver ókunnugt fólk horfði á mig og benti á mig líka. Annar kall sá mig og glotti og labbaði framjá mér. Mér var farið al líða eins og fæðingarhálvita. Svo kom vagninn og vagnstjórinn horfði á mig stórumaugum þegar ég sýndi honum Grænakortið mitt. Ég tyllti mér gegnt gömlum manni með staf og þegar ég var sestur færði hann sig. Einhverjar 12-13 ára smápíkur sem sátu aftast voru alltaf glápa á mig og pískra eitthvað og flissa. Svo loksins kom ég heim og ætlaði í sturtu og fór inn á bað. Þá leyt ég í spegilinn og sá ástæðuna fyrir öllu þessu glápi, flissi og bendi á mig. Það hafði einhver andskotans fáviti tekið málningadót og málað á mig kolsvarta bauga og eldrauðar varir og restin af andlitinu var gult grænt blátt rautt og fjólublátt og svo glimmer á alltsaman á meðan ég lá í brennivínsrotinu. Svo var líka þessi glæsilegi Hakakross á enninu líka. Ég hélt að ég myndi verða að steini þá og þegar fyrir framan spegilinn.

fimmtudagur, júní 03, 2004

SILAKEPPUR

Ég prufaði að skokka í dag. Já ég smeygði mér í gamlar íþróttabuxur sem ég gróf upp, fór svo í Iron Maiden bolinn minn og skökk í strigaskóna. Ég held að ég hafi náð að skokka svona standby 150 metra. Púfff. ég þurfti sveimérþá að setjast niður alveg lafmóður með hlaupastíng. Sat bara þarna eins og afvelta kind. Djöfull er maður ekki í neinu formi.
Ég held að ég þurfi að hugsa minn gang. Ég gæti farið að lúkka eins og Hómer vinur okkar.
Ætli ég hafi ekki bara étið full mikið af þessari Fíkjutertu sem Íja frænka á Völlum gaf mér uppskriftina að. Enda var hún mesta lostæti. Nammi nammi namm. Þarf að minka við mig sykurinn og hreyfa mig meira. Það er á hreinu.

miðvikudagur, júní 02, 2004

COLTINN SELDUR

Jæja þá er ég búinn að selja Coltinn góða sem var búinn að reynast mér vel sem góður klár. Fór hann á heilar 25.000 krónur. Mun mynning hans ætíð vera í hávegum höfð og vonandi að hann reynist sínum nýja eiganda vel ef hann hrynur þá ekki í sundur. Því að hann var svo gjööörsamlega að detta úr límingunum blessaður. Ég mun sakna þín. *sniff sniff*

þriðjudagur, júní 01, 2004

JAMMÍ

Nammnamm-NAMMI....! Ég er búin að vera á einhverju bakstursflippi undanfarið. Ég er búinn að baka þrjár Skúffukökur á stuttumtíma, því að þær klárast alltaf fljótt. Hafa þær heppnast vel. Í það minsta hefur enginn drepist af þessu og heldur enginn fengið drullu. Núna var ég að enda við að baka Fíkjutertu. Spurning hvurt maður steindrepist ekki bara af henni.

mánudagur, maí 31, 2004

HELVÍTIS GEITUNGAR

Þá eru þeir komnir aftur helvítis mother fucking Geitungarnir. Ég sá að þegar ég hleypti kettinum út í morgun að hann stökk í áttina að einhverju á gangstéttinni og rak trínið í áttina að því. Þar sem ég er forvitinn í eðli mínu vildi ég sjá hvað þetta var sem vakti athygli kisa. Þar var geitungur að hefja sig til flugs og þar sem ég var í inniskóm skaut ég Geitungnum ref fyrir rass og "STAPP" Hann fór í klessu. Nú þarf að munda flugnaspaðana og eitur brúsana. Já og að búa til svona gildrur með djúsi í.
ÉG VIL STRÍÐ

laugardagur, maí 29, 2004

RANDAFLUGUR

Hvað er pointið maður. Ég fór að rúnta svona um bæinn með kjéllingunni í dag og það lyggur við að bíllinn sé bara allur í dældum eftir það. Málið er að helvítis randaflugurnar voru alltaf að fljúga fyrir bílinn og alltaf þegar þær lenda á bílnum heyrist alltaf svona hátt "BOGG". Svo var það toppurinn á miklubrautinni að ég var á svona 80-90 km hraða, þegar ein randaflugan tók svona dýfu eins og þýsk nasistaherflugvél á móti bílnum og "BOGG" á framrúðunni. Klessan maður. Þetta hefur ekki verið nein smá hlussa þessi fluga. Ég þurfti mikið rúðupiss til að ná henni alveg af framrúðunni.
Svo vil ég minna á að litlir kettlingar fást gefins hjá múttu í síma 848-7290

miðvikudagur, maí 26, 2004

Hálsbólga í dag

AAAAAARRRRGGGHHHH....Djöfull er vont að fá hálsbólgu og hita. Maðut talar eins og Gunnar I Birgisson (GOTT AÐ BÚA Í KÓPAVOGI) þá fær maður sér bara einn beyskan og heitt kakó. Þá breytitst röddin dálítið og allir halda að Jakob Bjarnar í King kong sé kominn í húsið. Svo er maður hóstandi og ílandi og maður getur ekki talað almennilega í símann eða neitt og allt er eins og andskotinn. Svo er ég kominn með hausverk og verð því bara að leggja mig
Hvað finnst ykkur um þetta

laugardagur, maí 22, 2004

BLÓÐSPÝJA

Alltaf er nú gaman að hitta æskuvinina svona þegar maður býr hérna í borg dauðans. Já það var enginn annar en Ximon sem kom í bæinn. Já það var hægt að drepa á ýmsu en við komum aðeins inn á hinn og þennan fróðleik. Já t.d. ef þú hálsheggur mann og maðurinn látinn standa í nokkrar sekúntur á eftir getur blóðspýjan orðið allt að 6 metra löng upp í loftið. Spurning um að prufa það.
En þarna....Ég get máski ýmyndað mér það. Allavega þegar maður var í heimaslátruninni heima í sveit í gamladaga gátu blóðspýjurnar orðið helvíti miklar en andskotinn hafi það ekki 6 metrar. Ég var einu sinni á á sláturvertíð hjá KEA. Þar var kindin auðvitað blóðguð eftir að hafa verið skotin og stundum stóð gosbrunnurinn alveg upp í loftið en það var aldrei nema tveir metrar.
Jæja ég ætla að skíta

laugardagur, maí 15, 2004

JÚGURVISÍÓN OG TAGGART

Skohhh....Þarna erum við búin að drulla uppá bak í júgurvisíóninu enn eina árið. Jájá þá verðum við bara ekkert með á næsta ári, sem betur fer segi ég. Æi það var nú gott. Þetta stand í kringum þetta er svo dæmalaust leiðinlegt. Ég meina það þýðir ekkert að senda svona grenjulag og láta einhvern misheppnaðan apakött syngja það. Alveg vonlaust dæmi. Sérstaklega þegar einhverjir leppalúðar eru látnir stjórna því hvað er sent í svona keppnir. Ég pæli ekki í þessu helvítis rugli.

Taggart er í sjónvarpinu í kvöld og mun ég að sjálfsögðu horfa á það. Verst er þó í sambandi við þessa þætti að Mark McManus, kallinn sem lék alltaf Taggart skyldi gefa upp öndina og drepast þarna um árið. En framleiðendurnir hafa einstakt lag á því að halda þessum þáttum góðum og láta eftirlifendurna halda bara áfram. Það er eitthvað svo sérstakt við þessa þætti

mánudagur, maí 10, 2004

VOPNASKAK

Ég dl Braveheart um daginn og var að glápa á hana áðan. Þvílík snilld maður. Væri algjör snilld að geta bara farið þarna aftur í tímann og fengið að taka þátt í einum svona bardaga. Ég held að það væri grenjandi kikk að fá að taka þátt í svona vopnaskaki. Þarna var bara að duga eða steindrepast. Ég og Ximon vorum að tala um þetta og hann stakk nú bara upp á því að fara þarna mjeð vélbyssu og tæta bara alla niður. Stráfella bara heilan herflokk með vélbyssu sem hefur ekkert nema bara sverð og spjót.

Hvernig væri það annars ef að menn myndu anda með maganum og allur maturinn færi bara í lungun. Nei bara svona pæling.

Lífið er ósanngarnt

Afhverju er ég ekki eins ríkur og Bill Gates ?
Afhverju á ég ekki Camaro V12 ?
Afhverju fæ ég bólur
Afhverju vinn ég aldrei í lottó
Afhverju vinn ég í fiski
Afhverju er ég ekki forstjóri
Afhverju get ég aldrei veitt í flottri laxveiðiá
Avhverju nenni ég ekki á lappir á morgnana.
Afhverju líður mér eins og hálvita innan um margmenni.
Afhverju er ég ekki frægur eins og Tvíhöfði.

BUUUUUUHHHUUUUUUUUUU

sunnudagur, maí 09, 2004

Grettir, Glámur og Eden

Mér varð það á að fara í Eden í Hveragerði um daginn með frúnni og nokkrum vinum. Já allt troðið af fólki þarna, en ég sá samt að þarna var ekki rassgat að gera nema kaupa ís eða fara í spilakassana og þar sem ég er fyrrverandi gambler notast ég ekki við slíkt svo að ég keypti bara ís og fylgdist með öllu fólkinu vera þarna að tapa peningum í kössunum. Þessi staður sökkar alveg skelfilega. Það er nákvæmlega ekki rassgat að sækja þarna nema hvað að maður kemur bara fátækari út af þessum stað.

Nú er ég aðeins farinn að glugga í Íslendingasögurnar. Djöfull eru þetta annars langar sögur maður. En ég er samt byrjaður á Grettissögu. Helvítis synd að kallin skyldi hljóta ævilanga ógæfu af því að koma kallpungnum honum Glám fyrir. En svona er þetta þegar menn eru að vinna við þetta að koma draugum og djöflum fyrir á rétta staði.

miðvikudagur, maí 05, 2004

Með iðrin lafandi

Loksins verður prufað að gera styttmynd. Já ég og Danni díngó og Ína vorum að hrinda af stað hugmynd að stuttmynd sem verður bara tekin á venjulega sony kameru. Þetta verður sossum ekkert flókið. Eiginlega bara sketsar byggðir á okkar eigin einkahúmor. Það sem annað fólk sem þekkir ekkert til myndi kalla innantómt bull. Jæja en það má prufa.

Er búinn að vera að lesa úr Vættartali Árna Björnssonar sem hefur að geyma stuttar frásagnir að þekktum álfum, draugum, tröllum og hundufólki og las þarna um Láka nokkurn og sá hafði drepist, gengið aftur og ásótt einhvern Árna á frekar dólgslegan hátt, með iðrin lafandi og hringlaði í beinunum. Svona gekk það víst um nokkurt misseri þangað til að Árni fékk þau ráð um að grafa holu í leiði Láka og gera þarfir sínar í hana og reka stálnálar í sinn hvorn enda leiðisinns. Lítið gerði Þá Láki vart viðsig eftir það.

Kannski ætti maður að gera stuttmynd um þetta.

sunnudagur, apríl 25, 2004

KAUPFÉLAG EYFIRÐINGA EÐA KANNSKI BARA POLEGG OG SULTA

Mér varð mikil spurn þegar ég las um daginn pistil eftir Illuga Jökulsson en þar fór hann stórum orðum um eignarhlut fjölmiðla. Einmitt það sem ég hef verið að hugsaum ef stjórn saddams hefði ekki sundað harðstjórn heldur lýðræði eða með öðrum orðum þá held ég að
A:Það er talað um að menn fái sama verð fyrir 1 kíló af áli og 1 kíló að þorski.
B:Eignarhlutur fjölmiðla verður að standast stjórnarskrá.
c:Eigendur Íslenskra aðalverktaka áttu eingan hlut í landsbankanum.
Sem sagt ef að Davíð og co myndu stefna fréttablaðinu og Norðurljósum í hættu eða Kaupfélagi Eyfirðinga myndi þá að setja saman grundvöll í lagabreytingu. Ef ég má þá vitna í Sigurð Líndal laga prófessor þá eru stjórnarlög bænda til að sporna við, að félags þjónusta Kópavogs sendi bréf til menntamálaráðherra þess efnis sem ein og hver er við náttúru íslands. Þannig er að hið gamla framleiðsla SS sem var við Skúlagötu er við hliðina á Kexverksmiðjuna Frón er Íslenskerfðagreining stimpluð sem fyrir tæki í lyfjarannsóknum og tækniráðgerð í fyrir rúmi. Eitthvert tölugerðar félag féeldisstofnunar. Ég veit að þroskahjálp er ekki í neinum samræðum við rannsóknarstofu fjölmiðla. Nú hafa engir menn verið setnir í varðhald í sambandi við mannshvarf grunnskóli svæisútvarps eða póstflutninga.
Sem sagt þetta er allt innantóm steipa og rug og þú veist ekkert hvert ég er að fara.
Tóm vitleysa.

föstudagur, apríl 16, 2004

FÁRÆÐI ER ÞETTA

Djöfulsins snilld. Að ná að taka manneskju svona í rassgatið. Já ég er að tala um spákonuna sem keypti kúlurnar í Ikea á 500 kr. stk. og seldi sem einhverjar fokkans orkukúlur, eða eitthvað þannig og græddi þannig 15 þúsund kr. per stykkið. Þetta kalla ég snilldarplott.
Ég er að hugsa um að fara út og týna steina. Svo ætla ég að slípa þá möndullaga þannig að þeir verði að vera minnst 8cm í þvermál. Svo mun ég selja þá sem galdra stíla. Sá sem kaupir verður að pota þeim í ósmurt rassinn og láta steininn vera þar í 4 daga og 4 nætur. Svo skal viðkomandi á þeim tíma eingöngu borða súrmjólk rúsínur og súkkulaði og kúka því svo með steininum loks eftir alla þessa daga. Þá mun þeim ávallt ganga vel í berjatínslu og kindasmölun það sem eftir er ævinnar.
Stykkið mun kosta 60þúsund kr. án vsk.

Nú er ég feginn að eiga gamlan Colt en ekki Nissan Sunny. Já einhver fáráður er víst tekinn uppá því að ræna Þessari umræddu bíltegunt í stórum stíl. Að mér skilst í DV.
Sennnilega er þetta einhver kallpungur sem á varahlutaverslun og týmir ekki að kaupa ónýta bíla til niðurrifs. Æi mér er andskotans sama. Bara ef það er ekki verið að raðræna Mitsubisi Colt í svona stórum stíl. Annars er minns nú ekki mikils virði svona allur einhvern veginn eins og hann er greyið.

miðvikudagur, apríl 07, 2004

Er andi í glasinu

Ég var að fikta ásamt öðru fólki við andaglas, um daginn. Aldrei verið neitt sérstaklega hrifinn af þessu löguðu en lét til leiðast. Já þarna spurðum við um hitt og þetta. Og ég fékk ýmislegt að vita um mína framtíð. Eða svo sagði andinn. Nei nei ég er sossum ekkert að rengja neinn hvorki lífs né liðina. Tíminn verður að leiða í ljós hvað mun standast. Bara sumt sem ég var ekkert að kaupa þarna. En til að hafa þetta staðfest þá spurði ég um hluti sem enginn vissi nema ég og það kom allt rétt fram þar. Svo að það var tæplega nokkur að fokka í mér.
En þetta eru hlutir sem ég mun ekki gera framar og ræð ég ekki nokkrum manni að fikta við þetta. Menn hafa orðið hreinlega kolvitlausir vegna þessa. Já þurft að liggja í bólstruðum klefa í spennitreyju það sem eftir er. Það er mitt mat þeir sem ekki eru fæddir með þessa hæfileika eiga ekkert að vera að fikta í svona löguðu.
Einn sagði mér frá því að hann og tveir aðrir höfðu verið að prufa þetta og glasið rokið af stað, upp í loft og brotnað í mask. Svo fóru hlutir að þeytast til og frá þarna í húsinu. Svo sem eins og skápar og hurðið að skakast til og frá líka og allt út um allt.
Ekkert fikt.

mánudagur, apríl 05, 2004

Hann er þá heiðarlegur

Ég skaust í bankann eftir vinnu í dag og var mikill asi þar á mér. Pfffffffff.......borga einhverja gíróseðla áður en þeir fara til lögfræðings. Jæja en þarna æddi ég inn í bankann og skimaði eftir röðinni. En í bankanum sá ég þann þjóðkunna mann, Steingrím NJálsson. Það er nú ekki neitt frásögu færandi nema hvað að ég hleyp þarna í röðina í miklum asa og tek ekki eftir því að ég missti einn gíróseðilinn og fimmþúsundkall. Tók ekkert eftir því enda var ég að flýta mér. En svo er allt í einu pikkað í öxlina á mér og ég lít við. Þar stendur Steingrímur með gísróseðilinn og fimmþúsundkallinn og segir "Þú misstir þetta".
Hann er þá heiðarlegur, þó hann sé pervert.

laugardagur, apríl 03, 2004

ÉTA OG DRULLA

Ég fór í barna ammli í gær og drakk mikið kaffi, át mikið af kökum og reykti margar sígarettur. Nú sit ég á klósettinu og drulla alveg óskaplega. Það er ferming á morgun. Baahhh hvernig verð ég eftir það.

fimmtudagur, apríl 01, 2004

Kvenfólk.......Alltaf eins

Ég var að lesa þetta viðtal í DV við Jóníu Baldursdóttur sem var með og á fullt af krökkum með einum af þessum gaukum þarna í Skeljungsráninu. Fyrir sögnin var: SKELJUNGSRÁNIÐ NAGAÐI SAMVISKU MÍNA Í ÁTTA ÁR. Bullshit. Hver helduru að leki út svona máli, vegna þess að viðkomandi fannst þetta svo ljótt. Hver fær svo samviskubit út af peningum sem eitthvað fyrirtæki út í bæ átti, sem á hvort sem er alveg morandi af peningum. Þeir sem eiga og reka þetta fyrirtæki vita ekki hvað þeir eiga mikið af peningum og tvær milljónir eru ekki rassgat í þeirra augum. það fær mig enginn til að halda það að einhver fái samvisku bit út af þessum peningum sem eru smáaurar í augum fyrirtækisins.
Hún hefur verið að hefna sín á kallinum í einhverjum erjum og gert það með þessum bitchhætti. Alveg pottþétt mál

föstudagur, mars 26, 2004

OJBARA

Oj oj oj oj oj bðððööööaaakkkk. Ég lenti í spjalli við Araba nokkurn sem er búinn að lifa hérna á Íslandi í nokkur ár en ég lenti í óvæntu spjalli við hann um daginn og veginn. Já já svona há dú jú læk æsland og þannig kjaftæði. Jamm hann sagðist vera 24 ára frá Saudi Arabia. Það er nefnilega það og hvað er konan þín svo gömul? Ha hún....Hún er 52 ára.
Oj oj oj oj oj helvítis viðbjóður. Ég fæ hroll þegar ég hugsa úti kynlíf þeirra. Baahhhh

þriðjudagur, mars 23, 2004

Jack Nicholson er frábær

Ég hef verið að horfa dálítið á myndir með Jack Nicholson, sem reyndar er í miklu favoríti hjá mér. En myndirnar eru About Schmidt, The witches of Eastwick. The shining og Gaukshreiðrið.
About Schmidt fannst mér alveg hreint gerenjandi snilld. Spreng hlægileg og skondin. En jafnframt dálítið grátleg í senn.
Hinar þrár eiga það sameiginlegt að þar leikur Jack geðsjúklinga. Reyndar djöfulinn í The witches of Eastwick, en það er nógu geðveikt. En það er ekki endilega málið, heldur hvernig hann nær því með einskærri snilld að leika geðsjúklinga, svona hvern á sinn ólíka hátt. Já því er ekki logið upp á manninn þann arna, að hann tekur sig vel út sem geðsjúklingur. En svo í myndinni As Good as it Gets, sem ég sá einnig um daginn, leikur sérvitan fáráð sem lætur ser engu skipta þó að hann móðgi fólk, troði því um tær eða nágranninn í næstu íbúð sé barinn í klessu. En að vísu verður það mál gert að hans vandamáli sem leiðir til þess að hann hugsi sinn gang og breyti viðhorfum sínum.
Svo vil ég minna á ný uppvakinn fréttavef en það er Apótek. Endilega kíkið.

sunnudagur, mars 21, 2004

Hott hott á hesti

Ég lenti í því fyrir skömmu að vanta svona stutta mynda klippu af hlaupandi hesti. Ekkert með það sossum nema hvað að ég fer inn á Kazaa Lite og leita með orðinu "horse" en ekki viðlit að finna neitt nema eitthvað helvítis dýraklám. Jú ég fann þarna eitt undir nafninu"running horse" sem var ca 5 mb og smellti á það til að dl því. Nú en svo þegar ég leyt á þessa klippu var þetta mynd af konu sem laggðist upp við grindverk og þar kom folinn labbandi að og skellti sér uppá hana og r++ð henni og hún fílaði það. Helvítis.

þriðjudagur, mars 16, 2004

Harðlífi

Ég reyndi að hringja í flóamarkað Freysa á X-inu 977 í dag en náði ekki inn. Fyrr má nú vera ösin. Gat hann ekki svarað á línunni sem ég var á, andskotans.
Heyriði mig vantar harðann disk. 30gb eða eitthvað þannig. Borga ekki meira en 3000 kr. Ég Fékk notaðann 30gb harðan disk á 2000 kr um daginn. vantar bara annan. Sendið mér Emil í mannandskoti@hotmail.com ef þið getið látið eitthvað af hendi.

sunnudagur, mars 14, 2004

Enginn friður.

Nú er friðurinn úti. Helvítis. Er ekki Skjáreinn búinn að versla sér inn sýningarréttinn á enska boltanum. Djöfullinn bara. Nú verður ekki horfandi á neitt sjónvarp fyrir einhverjum helvítis fótbolta. Það var nú ágætt að hafa eina sportfría stöð, svona án þess að verið væri að fjalla eitthvað um íþróttir. Það er alveg óþolandi sjónvarpsefni(Þó ekki NBA kannski).
Einusinni ætlaði ég td að fá að horfa á sjónvarpið á Laugardegi en það var bara fótbolti á öllum stöðvum nema þó ekki á Skjáeinum. Þar minnir mig að hafi verið eitthvað skemtó í gangi. Man ekki hvað það var. Þar undi ég við gott.
Annars er gott að geta gripið óáhorfða dvd eða vídeóspólu þegar þetta sjónvarpsstöðvarsorp okkar bregst. En það var auðvitar sjaldséð fyrirbæri áður en maður uppgötvaði að til væri dc++.
Jæja það er best að fara og fá sér kaffisopa og fara svo að sofa.

miðvikudagur, mars 10, 2004

Úr kexverksmiðjunni Frón

Kexverksmiðjan Frón er einn af mínum fjölmörgu fyrrum vinnustöðum og vinnur þar nú svona fólk sem er nú svona allavega eins og við öll erum. Nú en þar vann t.d. manneskja sem ég þekkti nú afar lítið og átti svo lítil sem engin samskipti við en mér sýndist hún hálf skrítin eða það var allavega eitthvað bogið við hana.
En svo var það að einu sinni einn daginn þegar ég var að vinna í kexverksmiðjunni Frón í gamladaga að konu nokkuri sem þar vinnur áskotnaðist heill kassi af agúrkum sem og hún mætti með þarna í vinnuna og máttu menn hirða og eiga ef menn vildu og ég tók frá þarna tvær þessar líka forláta, feitar og safaríkar agúrkur og geymdi þær á borðinu inn á kaffistofu og ætlaði að taka þær með mér heim þegar vinnu lyki þann daginn.
Nú svo var ég búinn að vinna þarna allann daginn og flestir eru að fara heim, að ég ætla að grípa agúrkurnar mínar og hypja mig út þegar að ég sé að agúrkurnar mínar eru horfnar. Ég stend þarna bölvandi og ragnandi, allt og alla í sand og ösku þegar lagerstjórinn kemur æðandi að mér og biður mig um þann greiða að fara inn á kassalger fyrir sig til að tína saman hvað vanti mikið af kössum og og hvað þurfi að panta mikið af kössum frá kassagerðinni, daginn eftir.
Nú ég geri það, enda sjálfsagt að gera mönnum greiða. Þarna drattaðist ég upp á lagerinn sem er afar fáfarinn staður á efstu hæðinni og umferðin þar um kannski einusinni á morgnana og stutta stund í senn og svo ekkert meir.
Ég er þarna sum sé eitthvað að rýna þarna um og á einhverja pappíra um leið til skiptis, þegar ég heyri háa en mjög snögga kvennmannsstunu."Ahh" heyrði ég."Hmm" hugsaði ég. Hvað var nú þetta. Ég gekk á ákaflega veikt hljóð þarna á lagernum þangað til að ég fann að ég var alveg kominn að þessu hljóði. Þar stóð ég hjá meira en mannhæðarhárri kassastæðum og er litið á milli þeirra og hvað haldiði að ég hafi séð hvað var að gerast hinumegin við stæðurnar.
Já hvað haldiði. Það var skrítna stelpan sem var þarna, en hún lá ber að neðan á sykur pokunum með aðra af agúrkunum mínum inní p++unni á sér og með smörlíki við hliðina á sér til sleipningar. Ég stóð og horfði á hana skakast með gúrkuna inní sér í smá stund, þegar hún tók upp hina gúrkuna, dýfði henni í smjörlíkið og byrjari að reyna að tylla henni við Ra++++ið á sér og ýta henni svo inn. Sem henni heppnaðist. Þarna skakaðist hún með tvær gúrkur, töluvert breiðar, inní sér og naut þess vel. Ég fór út, heim og ældi í klósettið. Það þarf víst ekki að taka það fram að ég hef aldrei getað étið gúrku eftir þetta.

mánudagur, mars 08, 2004

Djöfulsinsandskotans
Jájájájá ég er hérna. Ég sagði það síðast þegar ég bloggaði hérna að ég hafði verið að reyna að dánlóda Kaaza Lite og það hafði heppnast eitthvað illa. Það vildi nú eiginlega ekki betur til en svo að það downloduðust vírusar inní kvikindið hjá mér og allt fór í mask hérna. Já þetta voru helvítis trojuvírusar sem virka þannig að það geta hvaða jólasveinar komist inní tövuna ef þeim bara þóknast. Og það eru menn sem þóknast það. Helvítis aumingjar sem á að drepa. Já alla með tölu.
Ég er jú sum sé búinn að vera með draslið á verkstæði í langan tíma og þess háttar

Fýllinn er alveg merkilegur fugl. Hann ælir ef honum er ógnað. Alveg grenjandi snilld. Hann er alltaf á þvælingi í kringum öll fiskiskip meðan þau eru á veiðum í leit að æti. Svo ef einhver önnur fuglategund er að andskotast í honum eða pirra hann þá bara ælir hann á viðkomandi. Pæliði í því, ef menn færu að taka upp á þessum óskunda. Lenda í slagsmálum niðrí bæ og æla bara á andstæðinginn. Eða konur sem verða fyrir heimilis ofbeldi æla bara á kallinn ef hann ætlar að fara að banka eitthvað í kellinguna. Þetta er pæling.

föstudagur, febrúar 13, 2004

Ég er búinn að reyna að dánlóda Kazaalite bæði í kvöld og í gærkvöldi. Annað hvort er ég heilalaus eða þetta system hjá þeim er alveg útúr öllum kortum. Ásgarður er líka bilaður og það er sama hvað ég reyni, það lagast ekkert. Helvítis batterý. Ég skal slíta af þeim hausinn. Annars eru hér nokkrir pungtar sem vert er að nefna:
1. Svínasúpan er sniðug.
2. sjómennska er hörð.
3. Hitler var snillingur.
4. Normalbrauð er vont.
5. Kvígur eru heimskar.
6. Mig klæjar.
7. Mývatnssveitin er æði
8. Aðgát skal höfð í nærveru sálar
Ég er farinn í háttinn og læt mig dreima eitthvað sniðugt. Bezz

mánudagur, febrúar 09, 2004

Mannaskítur og vindlar
Ég var í veislu ekki fyrir svo margt löngu og sat gegnt manni sem ég þekkti ekki en hann reykti þar London docks vindla og át brauðtertu. Svo einkennilega vildi til að ég var að éta sömu brauðteru og þótti okkur hún góð, því að við ræddum mikið um hvað þetta væri nú annars ljómandi góð brauðtera. Svo leið nú góð stund og ég var nú eitthvað að kjafta við þennan kall af því að hann var nú þarna á annaðborð og við löngu hættir að tala um brauðtertuna. Nú allt í einu fórum við að reka við eins og graðir hundar sem eru búnir að éta úldið saltkjöt af sjálfdauðum hrút. Þótti okkur það einkennilegt en höfðum nú samt ekkert orð á þessum viðrekstri. Svo allt í einu greip kallinn sem var ný búinn að kveikja sér í nýjum vindli um magann á sér, gretti sig, stóð upp og hljóp eitthvað fram. Ég bara.....bíddu, hvað á að æða? Hann svaraði ekki og hélt för sinni áram. Nú ég hristi bara hausinn og hélt áfram að sörta kaffi og éta brauðtertur, skúffukökur og möffins þangað til að mér fannst eins og skrúfað væri frá öllum krönum innan garnasvæðisins innan í mér nema þó ekki endaþarminum því að ég þurfti allt í einu að drulla alveg hreint óskaplega. Ég spratt á lappir og tók stímið á ofsahraða í átt að klósettinu. Þar ætlaði ég svo að opna dyrnar en þá var kamarinn upptekinn. Svoleiðis mátti ég bíða í 5 mínútur. Þegar út af klósettinu kemur vindlamaðurinn alveg kófsveittur og búinn að púa vindilinn þarna inni alveg upp til agna, beið ég ekki boðanna heldur hljóp inn, lokaði, girti niðrumig og byrjaði að drulla alveg hreint óskaplega og það miklum af krafti. Þetta gerðist svo hratt að ég tók ekki eftir skítalyktinni sem var eftir kallinn og það sem verra var að þetta var sambland af vindlalykt og skítalykt. Þvílíkan og annan eins hreinan andskotans viðbjóð hef ég aldrei fundið á æfinni. Mér varð svo mikið um þetta að ég tók skúringafötu sem var þarna á gólfinu og ældi oní hana í hreinum djöfulmóð og gerði stórt um leið.
Mér er spurn: Hvur djöfullinn var í brauðtertunni ?

fimmtudagur, febrúar 05, 2004

Hei sjáiði Þetta Kjút. Svona er þetta klám og biðbjóður alla daga alltaf og ekkert lát þar á. Ég hef akkúrat ekkert að segja núna því að ég er ekkert búinn að vera að fylgjast með í þjóðlífinu né heldur að reyna að pæla í því. Bara stúta fiski allan daginn og sofa þess á milli. Í nótt dreymdi mig að ég væri að fara í útreiðartúr með Flosa ólafs. Þvílíkt bullshit.

laugardagur, janúar 31, 2004

Jæja gott fólk. Þá er best að maður upplýsi það hér fyrir þá sem ekki vita, en ég er að verða pabbi. Hún Ína mín er komin 5 mánuði á leið og ég hlakka mikið til þessa. Já það verður gaman að fá að kynnast föðurhlutverkinu. Ég er í 7unda himni. Tíminn tifar og tifar. Mér finnst vera svo stutt síðan ég var lítill og skeyt á stofugólfið fyrir framan sjónvarpið heima. Lék mér í sandinum eða þegar maður var að gera símaat og spila körfubolta með Haraldi og Ximon eða fór í skólann og í íþróttahúsið til að espa Nóna upp (húsvörðinn) og þannig lagað. Æskan er furðu fljót að líða þótt manni finnist það ekki meðan hún stendur yfir."Tíminn fýkur tíminn svíkur".
Hér að neðan sjáiði svo skipið sem ég vinn á. Marta Ágústsdóttir GK

sunnudagur, janúar 25, 2004

"Ja það verður að drep'ann". Þetta er ending sem er notuð mikið af Ximon en einnig hefur hann smitað þetta til mín og fleiri. Þannig er því háttað að ef maður er að tala um einhvern á góðum eða slæmum nótum um að einhver geri þetta eða hitt vel og talað um viðkomandi í þeim tón sem um ræðir hveju sinni, þá er um að gera að enda frásagnirnar á: "ja það verður að drep'ann". Án þess þó að maður ætli sér nokkuð að gera það eða veita viðkomandi nokkurt mein. En það er annað mál.


Djöfull eru bækur Arnalds mergjað góðar. Ég fékk "Bettý" í jólagjöf og las hana nánast alla samfleytt um jólin. Sú bók er hrein snilld og mjög vel skrifuð. Svo í hálfkæringi keypti ég mér "Synir duftsins" eða konan gaf mér hana reyndar svona í ganni og sú bók er sko ekkert að gefa þessu eftir. Ég er með þá bók í kojunni hjá mér í skipinu og er að farast úr spenningi. Hún er mjög góð. Arnaldur er algjör snillingur og kann vel að skrifa góða reifara. Ja það verður að drep'ann.

Svo var nýr og glæsilegur veitingastastaður "tætt hæna" að opna fyrir stuttu og hvet ég alla matmenn til þess að reka þar hausinn inn og gæða sér á ljúffengum réttum. Matseðilinn má berja augum hjá Ximon

mánudagur, janúar 19, 2004

Hei það er eitthvað að þessu helvíti núna. Ég sé engar myndir. Bara tóma ramma með rauðu x-i inní. Það verður að drepa einhvern. Jæja ég laga þetta þegar ég fæ næði til þess.
Annars á ég fullt í fangi með að drepa þorska í vinnuni. Já og svo má maður taka með sér óspart í soðið. fiskinn miiiiiinnn, naminamminamm. sndlfjkqpfn egjkoejgfo eoiuhf oaseh eouaoebf feijfhae ihefgohaefg. Vaaaaaaaaaansköpun.

laugardagur, janúar 17, 2004

Þá er maður loksins komin með netið í heimahúsin og þá þarf maður ekki að vera að æða þetta alltaf í bókasafnið endalaust til að fara í þessa takmörkuðu netnotkun þar. Enda var ég hættur að nenna því. Nú eins og sést hafa hér engin skrif verið hér síðan milli Jóla og nýárs svo að grátandi húsmæður og svöng börn geta tekið gleði sína á ný. Spritti er risinn upp úr netleysinu.

Hey ég er loksins hættur að vinna hjá Granda og farinn á sjó. Þetta eru dagróðrar. Helvíti magnað að vera þarna. Brjáluð vinna, fínt að éta og betra kaup. Nú er mikill uppgangur í Þorski og það kallast vertíð. Já það er fínt að vera á netum. Mér var nú annars sagt að eftir að ég er búinn að prufa neta draslið og búinn að veiða með því í dálítinn tíma þætti mér allt annað betra. Ég veit það ekki. Það sama er sagt um það að vera á línu. Það er mesta smáslysatíðnin á línunni. Já menn eru að fá þessa króka í hendurnar eða hvar sem er ef menn eru að þvælast fyrir í þessu. Annars lætur Auddi félagi minn vel af þessu línu dótarí. Bezz

laugardagur, desember 27, 2003

Gleðileg jól allir. Ég ætti að vera búinn að drullast til að skrifa en ég er því miður búinn að kljást við mikið netleysi nú um mundir svoleiðis að ég hef þurft að nýta mér bókasöfn eða að sníkja mér einhversstaðar í tölvu hjá vinum og kunningjum. Djöfull er maður nú annars búinn að úða í sig fínum steikum og djöfuldóm að konfekti. Ég held bara að ég eigi eftir að rekavið út allt næsta ár ef ég hætti ekki í makkintossinu. En ef ég skrifa ekkert meira á árinu þakka ég öllum allt gamalt og gott á liðnum öldum.

laugardagur, desember 20, 2003

Ég vaknaði í morgun eins og flestir og í tómi mínu ætlaði ég að vita hvort að það væri ekki eitthvað í sjónvarpinu og þá, æjæj...ég á ekki orð. Að fólk skuli sjónvarpa þessu helvíti. Þetta er hreint helvíti bara. Ég var nærri því búinn að spúa uppsölunni á sjónvarpið í morgun, en tókst samt að halda brauðterunni og salatinu niðri í þetta sinn. Ég er að tala um Boild að the beautiful. Aaaaarrrrhhh. Nú er sjónvarpið mitt ónýtt. Þetta er búið að koma í sjónvarpinu mínu, alveg óvart. Ég meina fólk gerir ekkert annað en að grenja eða stinga undan hvoru öðru. Þetta á einnig við um Leiðindaljós. Hver fann uppá því að framleiða þennan óskunda. Ég bara spyr.

Ammma þín hvað ?
Svo eru nú að fara að koma jólin. Mjér hlakkar svo til. (eins og einhver saggði)

þriðjudagur, desember 16, 2003

Þá er búið að finna karlpunginn þann arna, þótt fyrr hebbði mátt vera. Óskaplegt var að sjá þennan "rakka" í Fréttablaðinu. Æi maður hálf vorkennir þessum ræfil. Hann er orðinn hálfgert hræ. Ennnnnn gert er gert og rétt skal vera rétt. Þennan bastarð þarf að dæma, hengja upp og flengja. Þá kannski að hann fái að komast í rafmagnsstólinn sem fyrst svo að hann komist í það að ríða djöflinum í rassgatið.(sjá nánar í South Park)
Æi ég veit ekki hvort að maður ætti að láta þau orð falla um svona ýmislegt ágæti í sambandi við hann og hans gjörðir í sambandi við Ísrael. Já Ísraelar eru ekkert nema glæpamenn sem níðast á minnimáttar. Geta þeir ekki séð Palestínumenn í friði, hvernig er það.
En hann er svona þarna. Það er búið að ná karlfauski og það er gott mál. Ég er feginn fyrir Írösku þjóðina en votta Palestínumönnum samúð mína.

sunnudagur, desember 07, 2003

!-!-!-!-!-!-!-!-!-!
ARRRR. Þá er ég búinn að fara á sjóinn. Það hafa allir jaxlar gott af því að prufa það og aumingjar ættu að láta það alfarið í friði. Þetta var dagróður og var unnið með miklum krafti og hamast mikið. Auðvitað ældi ég og spjó eins og berserkur í djöfulmóð fyrstu klukkutímana og í eitt skiptið hélt ég hreinlega að ég væri að tapa iðrunum.
En ég vann og djöflaðist á hörkunni og þá hætti bara sjóveikin. Draga inn netin, blóðga og stökkva svo niðrí lest að gera að og ísa og svo aftur þessi rútína. Þetta er helvíti hörð geðsjúklings vinna þar sem ekkert má gefa eftir og er mér að skapi. Ég fæ að fara aftur ef eitthvað losnar. Vonandi gerist það. Mér líkar sjómennskan. ARRR

þriðjudagur, desember 02, 2003

Æi helvítis blogger er hreinn vanskapnaður. Jújú ég eða Húlda systir settum nýja línka en svo vitist sem eitthvað væri ekki alveg í lagi. Við reyndum að setja línk á albin en eitthvað hafði mistekist og ekki varð aftur snúið að leiðsétta það. Ég krubbði málið til hins ítrasta og komst til botns í því. Þetta kom allt. Það varð aftur snúið. Annars hef ég ekkert að segja. Segið þið eitthvað. Reyniði nú að gefa þessu commennt börnin góð.

mánudagur, desember 01, 2003

jæja þá á ég ammli. Já, á þessum herrans degi fæddist ég. Í gær var fjölskylduboð og eldaði mútta þennan fína mat og tengdamamma gaf mér flíspeysu og í dag fer ég út að éta með kjéllinguni.
Meira helvítið hvað kvefið er að drepa mig núna. Ég kurra og ýlfra hér öllum stundum. Svo ég man það að akkúrat fyrir ári síðan var ég líka að drepast úr kvefi. Þetta er þá ábyggilega dagur kvefsins. Vííííí teljarinn er kominn í tíuþúsund hjá mér
Jæja svo vil ég minna ykkur á að kaupa rauða borðann til að styrkja eyðnibaráttuna.
Haldiði svo kjafti.

sunnudagur, nóvember 30, 2003

Við Ximon vorum sem aldrei fyrr að rifja upp gamladaga, þegar við vorum ennþá í barnaskóla. Þá var það nú ekki neitt neitt þó að kennarinn tuktaði krakkana eitthvað til ef þeir fóru að haga sér illa. En það voru siðir sem lýðast því miður ekki dagin í dag. Er því ábyggilega erfiðara að fá börnin til að gegna í tímum en tíðkast hefur í gegnum tíðina. Eitt skiptip var okkur mjög minnisstætt þegar að einn ónefndur kennari brjálaðist þegar einn skólafélaginn var að ólátast og gekk að honum, hristi hann og kallaði "MANNANDSKOTI" á hann og sagði honum svo að hundskast í sætið sitt. Síðan settist kennarinn rólega niður við borðið sitt og sagði,"Get ég hjálpað einhverjum fleirum." HAHAHAHA þetta er fyndið þó svo að maður hafi orðið svolítið smeykur við hennarann þegar hann var í þessu stuði.HAHAHAHAHA

Svo var það nú einn ágætur kennarinn sem tók í einu bræðiskastinu svona stóra reglustriku til að nota á töfluni og öskraði "hafiði þögn" og lamdi reglustrikunni í borðið svi að hún brotnaði í þrjá parta. Einn parturinn skaust í einn nemandann og þá tók hann bara eitt brotið og setti það í eina skúffuna á borðinu og gekk svo út. Það er ennþá skarð á borðbrúninni eftir þessa athöfn. Þessi kennari var einu sinni að hjálpa mér að læra og hnerraði á borðið svo að það kom stór horslumma á bókina mína. Svo var það einn annar kennarinn sem átti það til að hárreyta krakkana ef þeir fóru full mikinn.
Jæja ætli ég fari nú ekki og fái mér kaffisopa og sæmund og klóri mér jafnvel dálítið í pungnum. Svo ætla ég að fara og horfa á einhverja mynd. Bezz. :)

föstudagur, nóvember 28, 2003

Og þá er komin helgi og ég ekki búinn að ákveða hvurnig þeim tíma skuli varið. Mögulega verður farið í djöflamessu eða reynt að sjúga blóð úr fólki. Alveg örugglega annað hvort. Ég nenni ekki að fara í Kolaportið. Ég er orðinn leiður á því að spranga þar um og sjá alltaf sama pakkið vera að pranga einhverju drasli inná fólk. Alveg merkilegt hvað fólk nennir að tussast þarna inni. Jújú ef mig langar í fá mér hákarl eða Harðfisk, fer ég og fæ mér smökkun. Annars kaupi ég aldrei neinn mat þarna. Það er vegna þess að þetta er mest allt framleitt í heimahúsum og þar með engin gæðaskoðun eða neitt þessháttar. Svoleiðis að það gæti hvaða jólasveinn sem er verið ný búinn að runkasér og farið svo að vinna við þetta án þess að þvo sér um hendurnar og hnerrað síðan hressilega yfir allt saman. Skrifa meira seinna.

laugardagur, nóvember 22, 2003

Jæja ég afrekaði það að horfa á gömlu útgáfuna Texas chainsaw massacer. Ég skal segja ykkur það að meiri brútal mynd hefi ég ekki á ævinni litið, nema þegar ég var í stuttmyndagerðinni Splatt film á Laugum en þar í hlut áttu einnig Ximon og Trausti auk fleiri bastarða sem höfðu gaman af stutt mynda gerð.
Í einni myndinni notuðum við eyðibýli. Gamalt steinhús sem málningin var flögnuð af og rúðurnar voru brotnar svo að gamlar gardínurnar flögsuðu draugalega úr þeim. Þar lékum við stráka sem fóru að skoða eyðibýlið en inni í eyðibýlinu var skrímsli eða einhver bastarður í Kraftgalla og með grímu fór að kála þeim einum og einum í rólegheitunum. Til frekari raunveruleika notuðum við kindablóð og kindainnifli sem einn okkar hafði nappað úr heimaslátrun deginum áður.
En nú ætla ég að fara að fá mér í vörina og glápa á vídeó með Kjéllingunni. Bezzzz

fimmtudagur, nóvember 20, 2003

Ég var með pælingar í sambandi um hið illa og hið góða eðli í okkur mannskepnuni. Jújú rétt er það sem Þórbergur Þórðarson skáld sagði við litla afabarnið sitt,"Allir hafa eitthvað vont og gott í sálinni sinni. Flestir hafa mikið gott og lítið vont og nokkrir hafa mikið vont og lítið gott í sálinni." Þessi barnalega en sára einfalda útskýring er alveg hárrétt hjá Þórbergi. Flest börn hafa e.t.v. prufað að gera sér að leik að afhausa bangsann, kveikja í dúkkuni sinni, sinn kremja flugur, stíga á ánamaðka, slíta allar lappirnar af köngulóm eða pinta jafnvel köttinn sinn dálítið. Þau sjá svo að sér og fara að finna til með þessum tilfinningaverum og laga dúkkuna og bangsan. Meira að segja ég þekki það úr eigin bernsku að láta svona og fá svo samvisku bit yfir þessu öllu saman og fara að skæla. En svo eru til börn sem prufa þetta en fá finna ekkert til með þessum skepnum og mis þyrma dýrum og kviðrista dúkkuna hennar litlusystur. Svo halda þeir áfram á unglins árunum að andskotast, leggja krakka í einelti og þ.h. Slíkir menn verða oft löggur, fangaverðir eða handrukkarar sem lemja konurnar sínar. Í verstu tilfellunum fá svona menn völd og verða einræðisherrar. Þá langar mig að nefna Anté Pavelic sem í skugga seinni heimsstyrjaldarinnar hóf uppreisn í Júgóslavíu og stofnaði á ný Króatíu. Hann var harðstjóri þar og vegna andstöðu sinnar í garð lúthersku kirkjunnar í Serbíu (sem er gamalt lýðveldi og er brot úr Júgóslavíu) hóf hann að myrða þar óbreytta borgara hægri og vinstri. Einnig gekk hann til liðs við Hitler og sendi alla gyðinga sem hann náði, beint í útrímingunarbúðir nasista. Þannig naut hann stuðnings Hitlers í valdaráninu í Króatíu. Nú en suma gyðinga tók hann að sér að drepa sjálfur, svona í greiðasemi fyrir Hitler.
Ég segi þá gyðinga ákaflega heppna sem lentu í útrýmingum Hitlers í staðin fyrir Pavelic. Pavelic var nefnilega að ég tel, haldinn þessu illa sem að sum börnin ná ekki að venja af sér, vegna þess að hann þótti afar brútal í aðferðum sínum. Þá nefni ég aðferð sem hann notaði til deiðingar á Serbum en það var svipað og með kjúklingaslátrun. Öllum var raðað upp og festir í sérstaka bása hlið við hlið og hausinn skorðaður rétt til. Svo var settur í gang hnífur sem skar alla á háls einn í einu alla röðina þannig að menn heyrðu þegar hnífurinn nálgaðist smátt og smátt. Þessa tiltæku hnífategund kallaði Pavelic Srbosek eða á beinni þýðingu Serbaskeri. Svo til að flýta fjöldamorðum á litlum börnum, henti hann þeim lifandi inn í brennsluofna.
Það asnalega við þetta að þegar seinna stríðinu lauk, náði Pavelic að flýja til Spánar, undir verndar væng Franco. Þar eyddi hann þar ævinni sem kaþólskur prestur.

miðvikudagur, nóvember 12, 2003

Bahh...martraðar minning Ég er nú búinn að vera að grúska eitthvað í arsívinu hérna og rakst á næst elsta pistilinn minn en þar sagði ég frá því þegar gamli kallin reyndi við mig í gufubaðinu í Kópavogslaug. Sjá nánar um það hér. Pistill skrifaður þann 12. nóvember 2002 skoða
Svo er hérna einn brandari.
Tveir fyrrverandi fangar, Siggi og Daði voru á labbi á Laugarvegi þegar einhver stelpa labbaði framhjá og þá sagði Daði: Úúú ég fíla svona 16 ára smápíkur.
Siggi: thahh...Þessi var nú ekki eldri en 13 ára. Það mætti nú halda að þér sýndist kvenfólk alltaf vera eldra en það er í raun og veru.
Daði: Já það er einmitt ásæðan fyrir því að ég fór í fangelsi.
HAHAHAHAHAHAHAH

þriðjudagur, nóvember 11, 2003

Jæja, þá á ég 1ns árs blogg ammli. Aldei hebbði mér grunað að ég entist svo lengi í þessum geira, en þar sem púkarnir í höbbðinu á mér eru alltaf að hrærast og grassera með nýjar og nýjar hugmyndir og vitleysu, hef ég ætíð alltaf skrifað meira. Svona automatískt. Jú eitthvað voru vinir og kunningjar að reyna og heppnaðist í flestum tilfellum vel. Svo kom í mig óþrjótandi löngun til að láta ljós mitt skína. Hefur það vonandi ekki neinum að fjörtjóni.
Þegar ég var að skrifa fyrst minnir mig samkvæmt öllu að ég hafi verið ákaflega spenntenntenntennntur og var því eitthvað í essinu mínu (eða káinu kannski líka). Ég hef svo sannarlega verið í essinu mínu síðan með því að létta af mér eigin geðveiki og andsetningu. Ég vona að þetta megi halda áfram. Annars er ég Glötuð og týnd sál, já týndur og tröllum gefinn. Síg hæl.

sunnudagur, nóvember 09, 2003

Helvíti er gott að fá sér svona kaffi og sæmund á svona góðu kvöldi, þegar tunglið er fullt. Annars finnst mér þetta góður tími þegar myrkrið er sem lengst. Best er þó að vera til, alveg í því kolvartasta skammdeginu. Ahhh ég fíla myrkrið. Verst að maður skuli ekki vinna á nóttunni eins og áður. Djöfull var það gott.
Ég og Halli vorum að spjalla um það hvort að ég væri ekki æskilegur í að fara í sálarrannsóknarskólann. Ég vissi sossum ekkert hvaða erindi ég ætti þangað. En þá kom sú hugmynd um að reyna að útskrifast sem særingarmaður og djöflafæla og safna klaufum. Aftur á móti var mér sagt af manni sem hefur vitsmuni á æðri sviðum lífsins að ég hefði sjáandahæfileika en þyrfti bara að virkja þessa hæfileika. Það yrði mikil vinna að opna sig fyrir því en það myndi hafast ef maður hefði sig allan við.
Veit ekki. Ég held ég láti það kjurt lyggja að kukla eitthvað svona. Fæ kannski áhuga á því seinna.

laugardagur, nóvember 08, 2003

Helvítis rugl. Mér varð á að fara á irkið sem ég geri mjögsjaldan og fór að eitthvað að rugla. Ég held að all flestir sem fara á irkið séu geðsjúklingar. Allavega fóru menn eitthvað að tala um drykki og endaði með því að sumir fóru að mæla með frostlegi, rúðupissi og glóandihrauni til drykkjar. Jafnvel að éta malbik, svo að ég stakk upp á malbiki með osti og reyktum laxi. Það væri kannski mögulegt að reyna að gæða sér á götuhellu með múrspartli og gluggakítti.
Jæja þá er best að fara að gefa kettinum að éta því að hann er að mjálma á mig. Ég ætla nú samt ekki að fóðra hann á malbiki eða spreutu vökva. Svo þarf að fara og láta gelda greyið bráðum. Verst hvað það kostar helling. Bólusetning og gelding kostar um 8000 krónur. Gefin er 25% afsláttur ef um kvellgeldingu er að ræða.
Svo var Brynjar bróðir að segja mér frá því að það var einhverstaðar verið að slátra nauti og sá sem slátraði því vildi einhverra hluta vegna ekki skjóta það, heldur hjó að því hausinn og hausinn lenti bara þarna á jörðinni á meðan nautið hljóp hauslaust af stað og hljóp að mér skilst alveg steindautt dálítið langa vegalengd. Þannig er þetta í pottinn búið. Svo vil ég láta vita að
Íris máfkonamín er nú innan blogggeirans og fer þar mikinn. Skrif sem hægt er að lesa með kátínu.

þriðjudagur, nóvember 04, 2003

Núnú, og þá er að koma sér í gírinn fyrir skrif. Þá fara jólin senn að koma og jólasveinninn fer þá brátt að koma til byggða til þess að senrta börnin meðan þau sofa. Helvítis pervertar. Einu sinni var ég settur í það verk að leika jólasvein á skólaballi og þar var umsviflaust togað í skeggið á mér. Síðan þegar ég fór, var ég bara eltur út og þurfti að hlaupa langar leiðir til þess að losna við helvítis krakkana.
Verst að maður skuli ekki búa heima í sveit lengur. Þá væri ég sennilega ekki að skrifa. Þá væri ég örugglega á Velsléða eða renna mér á snjóþotu. (Úps...! Er ekki annars kominn snjór fyrir norðan). Reyniði svo að kommentast hérna, andskotinn er þetta.

sunnudagur, nóvember 02, 2003

Lífið er grátt og miskunnarlaust, hart og kaldhæðið og ég hef komist að því að heimurinn er viðurstyggð og fólkið sem í honum býr líka. Öll tilvera þín er vonlaus og vill hafa þig að fífli. Þú stritar fyrir öllu sem þú þarft, heldur uppi ástum og brostnum væntingum og reynir að hafa tilveru þína góða. Þú klúðrar því og fríkar út og endar sem illaliktandi geðsjúklingur eða róni á hlemmi. Öllum er sama. Flestir sem þú hittir á lífsleiðinni er sama. Vinnufélagarnir, skátafélagarnir eða vinir þínir í hestamanna félaginu eða lionsfélagarnir. Allt frægafólkið sem þú dáðir og dýrkaðir. Konan sem þú skildir við. Börnin þín líka. Þau fá hvort eð er nýjan fósturbabba. Vindurinn sem nístir á þér er sama og laufið sem berst með haustrokinu líka. Stjörnurnar sem vaka yfir öllum á nóttunni er alveg sama.
Þú ert eins og kind sem er föst í skurði. Öllum hinum kindunum er sama. Þær halda bara áfram að bíta gras eins og ekkert hafi í skorist.
Þú ert kind í skurði.
Lífið er tussa

mánudagur, október 13, 2003

Þá er það á hreinu að kötturinn minn étur fiðrildi. Flestir kettir veiða þau bara og skilja síðan eftir dauð eða illa leikin. Minn kisi lætur það ekki nægja heldur étur þau líka. Kisan hennar Húldu systur étur plast, veiðir orma og ber þá inn í hús. Félagi minn var svo að segja mér frá kettinum sínum en þannig var að strákurinn fór í bað og lá þar í góðum fílíng þegar kötturinn kom inn í bað herbergið, fór að herma eftir honum og lagðist í vaskinn. Svona eru kettir alveg herint stór furðulegir á köflum. Annars eru kettir bestu skinn.

laugardagur, október 04, 2003

Jæja svona er þetta barasta. Ég hef ekkert verið að skila af mér undanfarið enda búinn að vera hálf hugmyndalaus um skrif og þess háttar. Það hefur legið illa á mér uppá síðkastið og ég hefi mátt þola töluvert mótlæti. Stundum langar mig til að drapa náunga minn en ef ekki þá langar mig bara til að svíða hann dálítið. Lífið er tussa og af þeim sökum verður maður að berjast eins og skepna til að verða ekki undir og enda sem fillibytta eða geðsjúklingur á Hlemmi. Ég ætla líka að reyna að bæta aðeins stemminguna hjá mér á andlega sviðinu því að hún er ekki nógu góð. Nenni ekki að ræna farþega flugvél og hrapa henni á stjórnarráðið eða labba í sjóinn. Nei nei þetta er kannske ekki svona slæmt að maður þurfi að farga sér en það má kannske leigja sér góðran hest og ríða á honum niður Laugarveginn með beitta sveðju í hönd og fara að höggva mann og annan. Fólk er fífl

mánudagur, september 29, 2003

Ég var staddur í klípu heima hjá mér um daginn vegna þess að það var eitthvað lítið til að éta. Jú svona eitthvað sitt lítið af hverju og svo einn pakki af núðlum. Svo að ég bjó til súpu þó að mér fafi alltaf fundist núðlur vera mesta helvítis ógeð lukkaðist þetta bara nokkuð vel. Svo hér kemur uppskriptin:
Sjóðið 4 meðalstórar kartöflur í 45 mín og eina lúku af hrísgrjónum þangað til að þær verða linar eða í ca 25 mín. Brytjið 3 pylsur í bita og og mundið fram tómatsósuna. Britjið svo kartöflurnar í bita og takið svo hrísgrjónin og látið í pott með slatta af vatni í. Sprautið svo vel af tómatssósu í pottinn svo að súpan verði á litin eins og tómatssúpa (fiskibollur í tómatssósu). Takið svo Pylsurnar og núðluna og sjóðið þangað til að núðlan verður lin og pylsubitarnir soðnir. Takið ok etið. Ég varð alveg pakksaddur við þetta helvíti.

fimmtudagur, september 25, 2003

Jæja þá hef ég komist að því að það eru til fæðingarhálfvitar sem halda að það séu til menn sem eru meiri fæðingarhálvitar en þeir eru sjálfir. Ég meina afhverju sagðist helvítis fíflið ekki bara vera sauð heimskur aumingi sem nennir ekki að vinna og situr uppi með drykkjusjúka móður með alsæmer og sé því, vegna aumingjaskaparins alveg pikkfastur eins og hildar í belju, í skuldarsúpu og þess vegna hafi konan skilið við hann af því að hún hafði enga peninga út úr honum lengur. Síðan hefði hann getað bætt við að hann byggi í gömlu fjósi og að þau þurfi að lifa á heyi og hundasúrum og líka að segjast ekki geta verið innan um fólk vegna þess að hann geti hvorki haldið hlandi né heldur skít og skíta fnykurinn sé svo yfir þyrmandi að enginn þolir við í kringum hann í eina mínútu og að hann eigi það einnig til að æla á fólk uppúr þurru og því hafi hann einangrað sig frá öllu fólki og deili sorgum sínum með mömmu sinni sem ekkert veit í sinn ónýta haus. Það væri kannske vit í að prufa þetta sjálfur.

mánudagur, september 22, 2003

Mig langar mikið til að vita það hverjum datt það í hug að finna upp hitamæli sem maður treður upp í rasssgatið á sjálfum sér til að finna út hvort maður sé veikur eða ekki. Hverslags helvítis kynórar standa þarna að baki. Sá sem fann þetta upp hlýtur að hafa verið veikur heima og í einhverju hendings greddukasti fundið þetta upp og notað sem afsökun að hann væri bara að mæla sig en ekki að r... sér í görnina. Ég nota ekki mæla þegar ég veikist vegna þess að ég finn það þegar ég veikist og þegar mér batnar.

föstudagur, september 19, 2003

Helvítis rugl og saurleki....Já ég heyrði það í fréttum að maður nokkur sem tók að mér skyldist flugið frá Stokkhólmi til Bretlands eða öfugt. En þegar vélin var komin í loftið og að nálgast að vera hálfnuð tók flugstjórinn eftir því að eitthvað var að farþega hurðinni og lét flugfreyjuna aðgæta það. Þá kom hún að manninum vera að reyna að dunda við að opna og komast út úr vélinni. Já heimskan í fólki er alveg dæmalaus stundum. maður ætti kannski að prufa að opna glugga á línuskipi í hevvíbrælu úti á ballar hafi einhverntímann."Jæja ég er búinn að hanga hérna uppá dekki í tvo sólarhringa stanslaust að gera að þorsk. Ég vil fara heim." Svo bara opna glugga og reyna að æða út og í land.

fimmtudagur, september 11, 2003

Það er þriðjudagurinn 11. September klukkan 13:30 á Íslandi árið 2001. Ég vaknaði út sofinn en hálf pirraður af því að ég var ný búinn að missa vinnuna sem ég var í hja Samskip og hafði því ekkert að gera allan daginn nema slæpast heima og gera ekki neitt. Ég rís upp og sé að sjónvarpið er í gangi. Ég hafði sofnað útfrá því kvöldið áður og enginn slökkt á því. Skjáreinn sýndi gamalt tónleikamyndband með Iron Maiden. Ég nennti ekki að horfa á þetta eina myndband þó að ég sé mikill aðdáandi Iron Maiden. Þá ákvað ég í staðinn fyrir að slökkva á sjónvarpinu að stilla á RÚV. Horfa á skjáleikinn. Ekkert þarfara að gera. Þá blasti við mér skrítin sjón. Annar World trade center turnin hafði orðið fyrir árás og rödd Boga Ágústssonar hjalaði í leiðinni um atburðinn. Næstu klukkutímana sat ég límdur við skjáinn og trúði ekki mínum eigin augum. Fyrst hélt ég að þetta væri bíómynd í sjónvarpinu en í staðinn var þetta blákaldur raunveruleikinn. Hvar varst þú þegar árásin var gerð á tvíbura turnana ?

miðvikudagur, september 10, 2003

Það var einn gæi sem ég þekki að segja mér frá því að hann hafði lent í ságsmálum við einhvern araba niðrí bæ um helgina. Þessi arabi réðist víst á hann af fyrrabragði vegna þess að hann átti að hafa verið að tala eitthvað illa um araba. Ég viddiggi hvað kann að vera satt í þessu. Æi jájá, arabar eru sossum ágætis hró. Bara menn eins og ég og þú. En djöfull þoli ég ekki þessa heitt trúuðu múslima sem hafa sagt mér að þeim finnist Saddam hafa verið góður við sína þjóð og syni hans vera hreinustu öðlinga. Og það sé í lagi að lemja eða drepa konuna sína ef hún heldur framhjá. Einn sagði mér meira að segja að honum finnist Mohammad Gaddafi sem er einræðis herra Lýbíu vera ákaflega réttlátur maður. Djöfulsins heiðingjar bara. Svona menn á að drepa. Smala þessu saman alveg undir eins á sláturhús. Búa til kattamat úr þessu bara.

mánudagur, september 08, 2003

ég verð að biðja fólka afsökunar á því að engin skrif hafa sést hér undanfarið en ég hef engu verið að nenna eða ekki haft tíma til neins nema vinna sofa eða XXXX svo að þið skiljið mig alveg. Ég rak augun í timaritið Orðlaus og sá að könnun hafði verið gerð meðal karlmanna og var meðal annars spurt hvað þeir höfðu reynt eða gert við getnaðarliminn sinn. Stærsta hlutfallið hafði rakað hann oftar en einu sinni. Svo kom sá hópur sem hafði reynt að sjúga hann á sjálfum sér. Svo voru einhverjir sem reyndu að breyta því hvernig hann var í laginu og aðrir prufað að láta kálf totta sig. Ég varð orðlaus.

þriðjudagur, september 02, 2003

Ég kom við á Hlemmi um daginn og beið eftir strætó. Hitti þar mann fyrir utan sem ég spjallaði mikið og oft við á Keisaranum í den tíð. Ég nikkaði til hans og hann kom og spjallaði. Sossum innihaldslaust spjall um ekki neitt. Bara hvort ég ætti sígarettu eða hundraðkall fyirir einu Kardó og hvort ég væri ennþá edrú. Jájá ég var nú það. Svo dróg hann upp Nokia 3310 upp úr vasanum sínum og spurði hvort ég vildi síma á mjög hagstæðu verði. Nei nei ég átti síma "en hvað fékkstu svo þennan síma" spurði ég. Hann sagðist nú bara hafa fundið hann. Það þýddi nú ekkert að segja mér það, að hann hefði fundið hann. Ég var nú einusinni í svipuðum málum og hann sjálfur."Æi ég bara man ekkert hvar ég rændi þessum síma" sagði hann. Svo kom einhver kall í bláum vinnugalla sem hafði verið að hlusta á okkur allan tímann og bað um að fá að sjá símann."Hahh...akkúrat það sem mig vantar minn er nefnilega hálf ónýtur". Kallinn keypti svo stolna símann á 2000 kall og allir urðu ánægðir. Nema kannski réttur eigandi símans.
Ég keypti einu sinni stolinn síma fyrir löngu síðan. Þá lenti ég í feitu veseni. Jájá löggan fór í spilið og allt. Þetta var um vorið 1999
og símar kostuðu þá alveg óskaplega mikið af peningum. Síminn var alveg níðþungur miðað við hvernig símar eru í dag. Ég þurfti tvo menn til að styðja við hann á meðan ég talaði í hann.
Svo skal þess getið að ég fæ mér stundum í vörina og geta menn fengið upplýsingar um þá tegund sem ég nota hér.